Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Konur fagna kosningarétti á morgun – Þingmenn óttuðust breytingar og settu fordæmislausar skorður

Konur fagna kosningarétti á morgun – Þingmenn óttuðust breytingar og settu fordæmislausar skorður

Á morgun, 19. júní, fagna konur Kven­rétt­inda­deg­inum, hátíðis- og bar­áttu­degi kvenna, en þá eru liðin 106 ár frá því að konur fengu í fyrsta sinn að ganga að til þing­kosn­inga. Því bar að þakka ákvæði í nýrri stjórn­ar­skrá Íslands, sem þáver­andi kóngur Dana, Kristján tíundi sam­þykkti. Þáttakan var þó ekki á færi allra því aðeins þær konur höfðu náð 40 ára aldri fengu að njóta kosn­inga­rétt­ar­ins.

„Hinn nafnfrægi, íslenski stjórnviskulegi búhnykkur“

Þetta ald­urs­á­kvæði var svo að segja eins­dæmi í heim­inum og voru Íslend­ingar eina þjóðin sem hafði sett slíkar skorður á þessum tíma. Eina sam­bæri­lega dæmið má finna meðal Breta sem settu mörkin við 30 ára ald­ur­inn árið 1918. Má til að mynda nefna að árið 1915 fengu danskar konur kosn­inga­rétt á pari við karl­menn og hvergi til­tekið neitt ald­urs­á­kvæði.

Má ætla að þar hafi þing­menn reynt að leggja stein í götu kven­rétt­inda­kvenna- og karla.

Ein af helstu frum­kvöðlum íslensku kvenna­bar­átt­unnar, Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir, kall­aði þetta „hinn nafn­fræga, íslenska stjórn­visku­lega búhnykk“ í blaði sínu, Kvenna­blað­inu.

Baráttta kvenna fyrir kosn­inga­rétti hafði staðið frá árinu 1885 og ára­tug síðar kom fram fyrsta opin­bera krafan sett fram af Sighvati Árnasyni, þing­manni. Til­lög­unni var vísað frá af þing­for­seta.

Mjög fáar konur gátu nýtt réttinn

Konur höfðu árið 1882 öðl­ast kosn­inga­rétt til hrepps­nefnda, sýslu­nefnda, bæj­ar­stjórna og safn­að­ar­nefnda. Þessi kosn­inga­réttur var þó afar tak­mark­aður og hljóð­aði upp á ein­vörð­ungu ekkjur og aðrar ógiftar konur sem sátu fyrir búi eða áttu með sig sjálfar fengju kosn­inga­rétt til nefnda og bæj­ar­tjórna. Þær þurftu enn­fremur að hafa náð 25 ára aldri og rétt­inum fylgdi ekki kjör­gengi. Þar sem vinnu­konur áttu sig ekki sjálfar voru það mjög fáar konur sem gátu nýtt sér þennan kosn­inga­rétt.

Konur urðu síðan kjör­gengar til nefnda og bæj­ar­stjórna árið 1902.

Óráðlegt með öllu að fjölga kjósendum

Það er áhuga­vert að líta til þeirrar rök­færslu sem þáver­andi þing­menn not­færðu sér við rétt­læt­ingu ald­urs­á­kvæð­is­ins. Árið 1911 hafði Alþingi sam­þykkt frum­varp sem gerði ráð fyrir jöfnum atkvæð­is­rétti karla og kvenna til Alþingis.

Við umræður lagði Jón Jónsson í Múla fram breyt­ing­ar­til­lögu þess efnis ald­urs­tak­mörkin yrðu 40 ár því það væri „óráð­legt með öllu væri að fjölga kjós­endum um 2/3 hluta í einu.” Tillagan var felld en hlaut ekki náð fyrir augum danskra stjórn­valda fremur en önnur stjórn­skip­un­ar­á­kvæði þetta árið því sam­bands­mál Dana og Íslend­inga voru í hnút.

Enn þurftu konur að bíða.

Ótti við breytingar

Á vef Kvenna­sögu­safns­ins er kastað fram þeirri spurn­ingu hvaðan sú hug­mynd hafi hvarflað að þing­mönnum norður í Dumbs­hafi að njörva þing­s­kosn­inga­rétt kvenna niður við 40 ára aldur. Og sé litið til sam­tíma­heim­ilda má sjá að þing­menn voru vel með­vit­aðir um þróun kosn­inga­réttar kvenna úti í heimi svo vart verður fáfræði kennt um.

Árið 1913 komu þing­menn sér saman um nýtt frum­varp varð­andi kosn­inga­rétt kvenna og nú sveif andi Jóns í Múla yfir vötnum að honum látnum. Meiri­hluti þing­manna virð­ist hafa ótt­ast mjög yfir­vof­andi breyt­ingar og sagði í athuga­semdum sínum við frum­varpið að var­huga­vert væri að „fjölga svo kjós­endum alt í einu, að núver­andi kjós­endur sjeu sviftir mest öllu valdi yfir lands­ins málum.“

Hér bregður fyrir ótta við yfir­vof­andi breyt­ingar hjá nefnd­inni. Sams konar ótta má finna í máli Jóns Magn­ús­sonar sem sagði í umræðum að hætt yrði við að konur myndu skoða sig sem sér­stakan flokk sem aðeins mætti kjósa konur á þing ef þær fengju kosn­inga­rétt­inn allar í einu. Síðan klykkti hann út: „Að minsta kosti höfum við Reyk­vík­ingar dæmi fyrir okkur í þessu.“ Er þá vísað til þess að árin 1908, 1910 og 1912 höfðu verið boð­inir fram kvenna­listar sem hlutu prýð­is­góðar und­ir­tektir.

Konur hafa ekkert til málanna að leggja

Auður Styr­kárs­dóttir segir í grein sinni, Barátta um vald, sem gefin var út árið 1994 að kosn­inga­starfið og vinnan í bæj­ar­stjórn­inni hafi hleypt konum kapp í kinn og sýnt hvers þær voru megn­ugar er þær stóðu saman. „Senni­lega er það þetta kapp sem þing­menn voru farnir að ótt­ast er hér var komið sögu. Svo var einnig um fleiri“.

Í lands­mála­blöð­unum Ísafold og Þjóðólfi fóru að birt­ast greinar er kom fram á vorið 1911 þar sem bein­línis var ráð­ist að konum og þær ekki taldar hafa neitt það til mála að leggja sem ætti erindi í stjórn­mál. „Í kosn­inga­fé­lag­inu Fram, félagi Heima­stjórn­ar­manna, hafði Jón Þor­láks­son borið upp snemma árs 1912 og fengið sam­þykkta til­lögu um að ráða Alþingi frá því að sam­þykkja rýmkun kosn­inga­rétt­ar­ins fyr­ir­vara­laust.

Hér var nýr tónn sleg­inn. Kven­rétt­inda­bar­áttan hafði verið til­tölu­lega mein­lítil hér á landi fram að þessu, en nú urðu eins og kyn­slóða­skipti í umræð­unni og að mein­leys­is­gríman rynni af þeim karl­mönnum sem komu nærri stjórn lands­ins. Fordæmið frá Reykja­vík mátti ekki end­ur­taka sig í lands­mál­unum”, skrifar Auður.

Loksins, loksins

Með kosn­inga­á­kvæð­inu 1915 er tekið fram að ald­urs­markið á Íslandi skyldi lækka um eitt ár á ári þannig að árið 1931 stæðu konur og karlar jafn­fæti, sem einnig er for­dæm­is­laust um heim all­ann. Svo fór sem betur fer að konur þurftu ekki að bíða því með sam­bands­laga­samn­ingum milli Dana og Íslend­inga árið 1920 var ýmsum ákvæðum breytt, meðal ann­ars um kosn­inga­rétt kvenna og hann færður til jafns á við karl­menn.

Var Ingi­björg H. Bjarna­son fyrst kvenna kosin til setu á Alþingi, en hún var lands­kjörin alþing­is­maður 1922–1930.

Haldið hefur verið upp á dag­inn frá árið 1916, lengi vel með fjár­öfl­unar Land­spít­ala­sjóðs­ins en það var kven­rétt­inda­konum lengi hjart­ans mál að safna fé til bygg­ingar Land­spít­ala í minn­ingu kosn­inga­rétt­ar­ins.

Heilar kvenna of smáir

Við þetta má bæta að í ár eiga sviss­neskar konur hálfrar aldar afmæli kosn­inga­réttar en Sviss var síð­asta landið í Evrópu til að veita konum kosn­inga­rétt. Kosið var um málið árið 1959 og það kol­fellt af 67% kjós­enda og sagði aðgerð­ar­sinni í við­tali við BBC eftir að nið­ur­stöð­urnar lágu fyrir að konur hafi syrgt.

Rök­semda­færsl­ur karl­manna fyr­ir því að kon­ur ættu ekki að fá að kjósa voru ým­iss kon­ar. Sum­um þótti nóg að at­kvæði þeirra kæm­ist til skila í gegn­um at­kvæði eig­in­manns­ins, öðrum þótti kosn­inga­rétt­ur kvenna „ónátt­úra“, enn aðrir sögðu heila kvenna of smáa.

Árið 1971 voru nýj­ar kosn­ing­ar boð­aðar um sama efni. Þá höfðu kon­ur þrýst mikið á breyt­ing­ar og sam­þykktu karl­arn­ir loks kosn­inga­rétt kvenna. Í þing­kosn­ing­um síðar á ár­inu tóku síðan fyrstu kon­urn­ar þing­sæti í Sviss.

Til ham­ingju með dag­inn á morgun íslenskar konur!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi