Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragga Holm -Neyslan og móðir sem hún aldrei kynntist

Ragga Holm -Neyslan og móðir sem hún aldrei kynntist

„Þegar ég fædd­ist voru for­eldrar mínir ekki á þeim stað að geta hugsað um lítið barn,“ segir tón­list­ar­konan og plötu­snúð­ur­inn Ragn­hildur Jóns­dóttir eða Ragga Holm, eins og hún er kölluð, í við­tali við Frétta­blaðið.

Blóð­móðir Röggu átti alla tíð við mikið fíkni­vanda­mál að stríða og lifði á útjaðri sam­fé­lags­ins flest sín ár.

„Ég kynnt­ist aldrei blóð­móður minni og hitti ekki móð­ur­fjöl­skyld­una fyrr en í jarð­ar­för­inni hennar,“ segir Ragga.

En Ragga segir for­eldra sína ekki hafa geta hugsað um lítið barn þegar hún fædd­ist, svo föð­ur­amma og -afi Röggu tóku hana í fóstur.
Ragga var síðan sex ára gömul þegar hún flutti til föður síns og konu hans, sem hún hefur frá þriggja ára aldri kallað mömmu.

Á aðeins eina minningu af blóðmóður sinni

Ragga á aðeins eina minn­ingu af blóð­móður sinni á lífi. „Ég kynnt­ist þess­ari mömmu aldrei en ég man að ég fékk að hitta hana þegar ég var sjö ára.“

Þær mæðgur bök­uðu saman skúffuköku og eyddu smá tíma saman. Átti þessi heim­sókn að vera upp­hafið á reglu­legri umgengni þeirra, en það fór á annan veg. „Ég fór heim eftir þennan dag og hitti hana síðan aldrei aftur.“

Árið 2011 sendi blóð­móðir Röggu henni vina­beiðni á Facebook. Segist Ragga ekki hafa vitað hvernig hún ætti að bregð­ast við og að mikil geðs­hrær­ing hafi gripið hana.

Hún sam­þykkti aldrei vina­beiðn­ina.

Blóð­móðir hennar gifti sig tveimur vikum síðar. „Ég sé fyrir mér að hún hafi verið að reyna að glæða lífi í sam­band okkar með því að bjóða mér í gift­ing­una.“

Treysti sér ekki til að heimsækja hana

Hálf­bróðir Röggu hringdi í hana stuttu eftir brúð­kaup blóð­móður þeirra og til­kynnti henni að hún væri á gjör­gæslu í dái. „Ég vissi ekk­ert hvað ég ætti að gera eða hvað myndi taka við, hvort þetta væri tæki­færi til að kveðja hana á spít­al­anum eða hefja sam­tal á ný.“

Ragga treysti sér ekki til að heim­sækja hana og dag­inn eftir var hún látin, aðeins 43 ára gömul.

Fráfall blóð­móður Röggu var rann­sakað sem morð og var eig­in­maður hennar grun­aður. „Eig­in­maður hennar var í þannig ástandi að hann gat ekki með góðu móti gefið skýrslu um málið. Ég veit ekki hvort hann hafi verið í sjokki eða hvort hann hafi ekki munað hvað hafði gerst.“

Ragga seg­ist ekki vita hvert ástand þeirra var á þessum tíma, en þau hjónin hafi bæði verið fíklar. „Við krufn­ingu kom síðan í ljós að hún hefði lát­ist af höf­uð­höggi sem væri ekki af völdum bar­smíða.“

Ragga fór í jarð­ar­för blóð­móður sinnar og hitti þar í fyrsta skipti svo hún muni eftir, móð­ur­fjöl­skyldu sína.

Fór sjálf út í neyslu

Sjálf villt­ist Ragga út í neyslu. Árið 2015 segir hún botn­inum hafa verið náð þegar hún varð fyrir alvar­legri lík­ams­árás. Fór hún inn á Vog þar sem hún dvaldi í tíu daga. „Ég þurfti að átta mig á aðstæðum og finna drif­kraft­inn til að hætta að drekka.“

Næstu tvö ár var Ragga edrú en fann hún þó að eitt­hvað væri að. „Ég fór mikið upp og niður, ég vakn­aði og allt var geð­veikt og ég var með svaka­legan drif­kraft og svo vakn­aði ég dag­inn eftir og sá ekki til­gang í að fara á fætur.“

Þá greind­ist Ragga með geð­hvarfa­sýki tvö. „Að grein­ast með bipolar útskýrði margt fyrir mér, vegna þess að fólk með þennan sjúk­dóm á alls ekki að drekka.“

Ragga fékk við­eig­andi lyf sem aðstoð­uðu hana við að ná stöð­ug­leika í líf­inu. Í kjöl­farið byrj­aði hún í hljóm­sveit­inni Reykja­vík­ur­dætrum sem hafði lengi verið í miklu upp­á­haldi hjá henni.

Ragga ferð­að­ist um allan heim með hljóm­sveit­inni. „Ég var eig­in­lega í sjokki þegar við stóðum allt í einu fyrir framan sex þús­und manns að spila. Það var tryllt.“

Fór Ragga fljót­lega aftur að drekka áfengi. „Við tók þriggja mán­aða tíma­bil þar sem ég hætti að taka lyfin mín og fór í sturl­aða maníu.“

Á tón­list­ar­há­tíð­inni Sónar var Ragga búin að vera á þriggja daga fyll­eríi. Segist hún hafa spilað sitt versta gigg í líf­inu, texti og lög höfðu gleymst. „Eftir að hafa jar­mað þarna á svið­inu átt­aði ég mig á því að ég var búin að missa tökin og hætti aftur að drekka.“

Ragga segir að grein­ing hennar og drykkja eigi ekki saman og mælir með því að fólk í hennar sporum haldi sig frá áfengi. „Fyrir þau sem halda að maður geti stjórnað þessu vil ég segja af minni reynslu að það er ekki hægt. Það hrein­lega virkar ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi