Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Viðar um gagnárás Baltasars: „Hans útgáfa af tveggja manna tali og mér er alveg sama“

Jón Viðar um gagnárás Baltasars: „Hans útgáfa af tveggja manna tali og mér er alveg sama“

Baltasar Kormákur skefur ekki af hlut­unum í við­tali við Vísir nú í dag, þar sem leik­stjór­inn og fram­leið­and­inn svarar nei­kvæðri umfjöllun leik­hús­gagn­rýn­and­ans Jóns Viðars Jóns­sonar fullum hálsi. „Hann er í raun bara nettröll,“ segir Baltasar og segir Jón Viðar hafa sjálfan sóst eftir starfi við hand­rits­gerð fyrir Netflix-ser­í­una Kötlu, sem frum­sýnd var í gær.

Mannlíf leit­aði við­bragða gagn­rýn­and­ans, sem neit­aði að gefa nokkuð upp í við­tali við blaða­mann rétt í þessu og segir aug­ljóst að leik­stjór­inn sé í miklu upp­námi eftir rit­dóm­inn. Baltasar rifjar hins vegar sam­talið upp og segir: „Ég hitti hann [Jón Viðar] í sundi af til­viljun og hann fór að ræða við mig og svo fór hann að bjóða fram krafta sína í skrifteymið þegar ég sagði honum að ég væri með þessa þætti í bígerð,“ og á leik­stjór­inn þar við nýút­komna þátta­röð­ina á Netflix. „Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið því mað­ur­inn hefur verið að rakka niður allt sem ég hef gert í fimmtán ár,“ heldur leik­stjór­inn áfram og nefnir nei­kvæða umsögn Jóns Viðars um fyr­ir­hug­aða þátta­gerð leik­stjór­ans sem byggir á Sjálf­stæðu fólki eftir Halldór Laxness. „Hann réð­ist á Sjálf­stætt fólk sem ég er ekki einu sinni búinn að gera.“

Jón Viðar hafi þá einnig ráð­ist gegn Gerplu, Ófærð I og II og að leik­hús­gagn­rýn­and­inn hafi loks sagt kvik­mynd­ina Everest í einu orði and­styggi­lega. Í kjöl­farið hafi svo Jón Viðar sóst eftir stöðu hand­rits­höf­undar við gerð Kötlu. „Ég auð­vitað þáði það ekki. Í ljósi þess­ara árása skýtur þetta skökku við. Ég kom alveg af fjöllum að mað­ur­inn vildi vinna fyrir mig, fyrst honum finnst ég svona lélegur og svo vissi ég ekki til þess að hann hafi skrifað eitt ein­asta kvik­mynda­hand­rit þannig að ég veit ekki hvers vegna ég hefði átt að ráða hann,“ segir leik­stjór­inn og einnig að nú sé nóg komið. “Þetta er meira en gagn­rýni, þetta eru per­són­u­árásir og eng­inn rök­stuðn­ingur eða kafað neitt ofan í málið. Hann er í raun bara nettröll.“ Þá gegni Jón Viðar ekki einu sinni opin­berri stöðu sem slíkur. „Af því að hann vann einu sinni sem gagn­rýn­andi virð­ist hann fá þetta ofboðs­lega pláss til að hrauna yfir fólk. Það er engin önnur stétt sem situr undir þessu.“

Leik­stjór­inn og gagn­rýn­and­inn hafa lengi eldað grátt silfur og rifjar Baltasar þannig upp orða­skak vegna útgef­inna hug­verka sem hann segir spanna tæpa tvo ára­tugi. „Hann hefur ráð­ist á allt sem ég hef gert eftir 2006. Hann fær auð­vitað mikla athygli þegar hann ræðst á mig.“ Þá segir leik­stjór­inn orða­lag Jóns Viðars jaðra við hreinan dóna­skap. „Hann er að hæð­ast að fólki og þetta er orðið svo yfir­drifið hjá honum. Þetta er búið að vera svona í fimmtán ár.“

Jón Viðar Jónsson sagði aðspurður um fyrr­greint í við­tali við blaða­mann MANNLÍF nú rétt í þessu að um tveggja manna tal milli þeirra Baltasars hefði verið að ræða. Engin ástæða væri til að greina fjöl­miðlum frá því hvort gagn­rýn­and­inn hafi nokkru sinni fal­ast eftir stöðu hand­rits­höf­undar við gerð Kötlu, Netflix-ser­í­unnar. „Ég ætla ekki að segja nokkurn skap­aðan hlut. Þetta eru bara hans [Baltasars] við­brögð og hans mál. Ég hef ekk­ert um þetta að segja og ber enga ábyrgð á því.“ Þá segir Jón Viðar það engu skipta þó leik­stjór­inn segi gagn­rýn­and­ann vera hreint og klárt nettröll. „Mér er alveg sama. Það skiptir mig engu máli. „Ég ætla ekki að munn­höggvast við hann. Hann verður bara að standa við það sem hann segir. Svo nær það ekk­ert lengra.“

Þegar blaða­maður innti Jón Viðar fremur eftir umsókn um stöðu hand­rits­höf­undar meðan þátta­röðin var enn á fram­leiðslu­stigi og ítrek­aði ummæli Baltasars í fjöl­miðlum nú í dag, neit­aði gagn­rýn­and­inn að svara fleiri spurn­ingum blaða­manns. „Þetta er bara hans útgáfa af tveggja manna tali og það yrði bara full­yrð­ing á móti full­yrð­ingu. Ég hef enga ástæðu til að bregð­ast við þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi