Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skáldið Auður Jónsdóttir „er gerendameðvirk“: „Þurft að þola níð, útlitssmættun og hótanir“

Skáldið Auður Jónsdóttir „er gerendameðvirk“: „Þurft að þola níð, útlitssmættun og hótanir“
Auður Jóns­dóttir skáld. Mynd / Ernir Eyj­ólfs­son

„Síðustu tutt­ugu árin eða svo hef ég tekið þátt í fleiri umræðum en ég man, í fjöl­miðlum, á sam­fé­lags­miðlum, í bókum,“ segir rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir og bætir við:

„Allar þessar umræður hafa mótað mig og raunar lærði ég í námi í Danmörku að það að „deba­tera“ sé ákveðin list sem maður þurfi að læra; til að þróa hugs­anir sínar og tjá sig til skiln­ings. Svipað lærði ég í Þýska­landi. Eftir að hafa búið í þessum löndum hef ég grynnkað á til­finn­inga­semi í umræðu og frekar leikið mér að rök­leiðsl­unni, elt hana þangað sem hún fer með mig – stundum á óvæntan stað.“

Auður segir að „í þessu umræðu­ati hef ég oft brennt mig; orðið ósam­mála sjálfri mér – verið aðeins of hortug, sætt dóna­skap eða ávirð­ingum; verið gerðar upp skoð­anir eða afstaða á dramat­ískan hátt. Þurft að þola smá níð, jafn­vel útlits­smættun eða hót­anir, en líka oft skemmt mér stór­vel og dýpkað hugsun mína. Og leikið mér æ meira því umræða er leikur og íþrótt.“

Auður hefur til dæmis „lent í meið­yrða­máli þar sem ég hefði getað tapað öllu mínu og ærunni og málið stóð yfir í meira en tvö ár, en var einn besti skóli sem ég hef upp­lifað – það fannst mér þegar ég sigr­aði það og hafði fengið að upp­lifa mælsku­list í rétt­ar­sal, þar sem hvert orð vegur þungt,“ segir Auður og heldur áfram: „Það var tákn­rænn sigur að vinna mál sem gekk út á að ég mætti tjá upp­lifun mína.“

Auður hefur fengið mörg skila­boð frá fólki sem hefur þakkað henni fyrir að pæla aðeins því að það væri sjálft í ein­hverjum pæl­ingum en þyrði ekki að viðra þær upp­hátt „né að hætta sér inn í rök­ræð­una á vefnum mínum. Þetta fór líka skringi­lega undir skinnið því ger­enda­með­virkni er mjög við­kvæmur hlutur í lífi mínu. Já, ég er ger­enda­með­virk, mjög svo. Það hefur verði mesta eitrið í lífi mínu síðan ég var barn. Þeir sem eru kunn­ugir skáld­verkum mínum vita það. Mesta áskor­unin í lífi mínu hefur verið að lifa með ger­endum sem ég elska,“ segir Auður sem „lærði brengluð sam­skipti, eins og flestir vinir mínir af minni kyn­slóð, svo ég byrj­aði ung að gera mig seka um óhefluð sam­skipti. Ég er af kyn­slóð þar sem orðið mörk var bein­tengt við fyll­erí og marka­leysi í Þórsmörk.“

Andlegt ofbeldi

Auður þekkir marga sem „eiga sér bak­grunn mark­aðan af sam­skiptum þar sem and­legt ofbeldi var hluti af hvers­deg­inum. Það var ekki sama upp­lýs­ing og nú. Fólk vissi ekki og gat ekki betur. Þetta voru bara sam­skiptin sem maður lærði og ég hef séð ger­endur bæta sig, læra, átta sig og verða heil­brigð­ari í sam­skiptum. Ég hef líka séð þá gera það ekki. En það flókn­asta í lífi mínum hefur verið þessi dans með mörk og ást.“

Auður nefnir það að hún þekki það „að elska ein­hvern sem gerir eitt­hvað sárt en líka frá­bært. Alla ævi hef ég leit­ast við að skilja flæk­ings­legar kenndir og greina með skrifum. Ég hef lengi sætt því að þykja of ber­sögul; bara það að tala um alkó­hólsima í bók á þeim tíma þótti stuð­andi. Ég hef skrifað víð­lesnar greinar um ofbeldi sem hafa þótt fengur í í umræðu um þessi mál; farið í að greina flókin til­finn­inga­munstur í skáld­sögum mínum og afleið­ingar þeirra. Þetta er eilífð­ar­verk­efni mitt, þannig að það hefur verið gert grín að mér sem höf­undi fyrir að skrifa of mikið um með­virkni. Ég skrifa til að skilja – skrifa til að heila. Skrifa til að finna orsaka­sam­hengi. En það er engin aðferð svo heilög eða full­komin að það megi ekki spyrja spurn­inga því sam­tal er lyk­ill­inn að þróun.“

Auður er á því að „aðeins þannig fær mik­il­væg hreyf­ing og vit­und­ar­vakn­ing lifað; ann­ars étur bylt­ingin börnin sín – sem er slæmt – þegar bylt­ingin er svo þörf. Umræða er ekki síst til að við fáum skilið hugsun okkar og getum þróað hana sem best.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi