Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rofin hraðainnsigli og drukkið rafskútufólk: 149 slasaðir eftir glæfraakstur á rafskútum

Rofin hraðainnsigli og drukkið rafskútufólk: 149 slasaðir eftir glæfraakstur á rafskútum
Raf­skútur geta verið hættu­legar ef menn eru ekki með réttu ráði.

Glæfra­akstur, akstur undir áhrifum áfengis og vímu­efna, ójafnt yfir­borð gagn­stíga og jafn­væg­is­skortur öku­manna á raf­skútum hér­lendis er vax­andi áhyggju­efni sér­fræð­inga. Nýút­komin skýrsla VSÓ ráð­gjafar, Raf­skútur og umferð­ar­ör­yggi, hlaut styrk frá Reykja­vík­ur­borg og rann­sókn­ar­sjóði Vega­gerð­ar­inar leiðir í ljós að 149 öku­menn þurftu að leita aðhlynn­ingar á bráða­mót­töku Lands­spít­al­ans sum­arið 2020.

Um 45 pró­sent þeirra sem leit­uðu á bráða­mót­töku síð­asta sumar voru undir 18 ára aldri en tæp­lega tvö þús­und raf­skútur eru til útleigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag. Þá hafa raf­skútur einnig dreift sér um landið, til bæja á lands­byggð­inni að því sem kemur fram í sam­an­tekt skýrsl­unnar og hefur raf­skútum í einka­eigu fjölgað tals­vert en töl­fræðin sýnir að raf­skútur er að finna á um 12% reyk­vískra heim­ila í dag. Orðrétt kemur þá fram í skýrslu VSÓ að „raf­skútu­not­endur kjósi að ferð­ast á hjólar­einum og – stígum og orsök marga slysa á raf­skútum megi rekja til yfir­borðs sem ýti undir mik­il­vægi upp­bygg­ingu inn­viða fyrir raf­skútur í sveit­ar­fé­lögum.“

Dauðans þörf

Á ein­földu máli merkja þessi orð aukna þörf á gerð hjóla­stíga eins og tíðkast víða í nágranna­löndum okkar ásamt því sem bæta þarf yfir­borð gang­stétta. Þá er stað­reyndin einnig sú að óheim­ilt er, sam­kvæmt íslenskri umferð­ar­lög­gjöf, að aka raf­skútum á umferð­ar­götum en Herdís Stoorgard, hjúkr­un­ar­fræð­ingur og verk­efna­stjóri hjá Miðstöð slysa­varna barna er gagn­rýnin á almennt við­hald gang­stíga hér­lendis. „Göngu­stígar og gang­stéttar hér á landi eru flestar skakkar og skældar,“ segir Herdís. „Ökumenn á raf­skútum geta hafnað á tröppum eða ójöfnum á gang­stíg; fólk kast­ast af raf­hlaupa­hjól­inu, slasast jafn­vel illa í and­liti og fær slæmt höf­uð­högg.“ Þá segir Herdís íslenskar reglur um notkun raf­hlaupa­hjóla byggja á und­an­þágu frá sam­evr­ópskri umferð­ar­lög­gjöf. „Víðs­vegar um Evrópu er tvö­falda reið­hjóla­stíga að finna um allar borgir og þar er skil­greint hvar má aka á raf­skútum og raf­magns­hjólum. Slík vél­knúin far­ar­tæki þurfa og eiga að halda sig á hrað­ari helm­ingnum á hjóla­stígnum. Þetta er vel skil­greint meðal nágranna­þjóða okkar en hér á Íslandi er þetta eitt kraðak.“

Áfengis- og vímefnaneysla

Guð­brandur Sig­urðs­son, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn umferð­ar­deildar Lög­regl­unnar tekur undir orð slysa­varna­full­trú­ans en segir ekki nóg að setja reglur og skerpa á örygg­is­stöðlum, fylgja þurfi settum reglum. „Það er vont að alhæfa, en þó öku­menn raf­hjóla sjái vel til hægri og vinstri er ekki þar með sagt að öku­menn bif­reiða sjái raf­hjólin á ferð. Þar sem göngu­leiðir þvera vegi eða akst­ursleiðir geta orðið slys.“ Þá segir Guð­brandur  áfengis- og vímu­efna­neyslu öku­manna raf­hlaupa­hjóla einnig valda að ófáum slysum. „Já, þetta er líka fíkni­efna- og áfeng­is­akstur að nóttu og um helgar. Fólk fer sér hrein­lega bara að voða,“ segir lög­reglu­þjónn­inn en orðin þau tekur Herdís undir og segir: „Það er tals­verður fjöldi full­orð­inna sem ekur á raf­skútum undir áhrifum áfengis; fólk er jafn­vel ölvað eða undir öðrum áhrifum og það hefur vissu­lega áhrif á akst­urs­hæfni.“ Hvað má bæta og hvernig má hægja á slysa­tíðni vegna raf­skútna? „Okkar er bara að fram­fylgja lögum og reglum eins og kostur er,“ svarar Guð­brandur. „En það er því miður of algengt að hraðainn­sigli séu rofin og þannig fari öku­menn miklu geystar en 25 km hámarks­hraði segir til um. Þá er ekki skylda að nota örygg­is­hjálm nema upp að 16 ára aldri á hlaupa­hjóli og reið­hjóli. Þeir sem eiga raf­skútu ættu þó að fjár­festa í góðum örygg­is­hjálmi fyrir ferða­mát­ann. Um það eru svo skiptar skoð­anir og mis­jafnt meðal fólks, heyr­ist mér á hjóla­hópum og hjóla­fólki.“

Hraðainnsigli rofin

Notkun örygg­is­hjálma er sam­kvæmt Guð­brandi leyf­is­skyld hjá leigu­skútum í eigu Reykja­vík­ur­borgar en annað gildir um raf­skútur í einka­eigu. Rofin hraðainn­sigli á raf­skútum eru þó öllu meira áhyggju­efni en lög­legur hámarks­hraði hér­lendis er 25 km/klst. „Raf­hjólin eru mörg hver fram­leidd til að ná 50 til 60 kíló­metra hraða en sam­kvæmt okkar upp­lýs­ingum er því miður mjög ein­falt að rjúfa inn­siglin,“ útskýrir Guð­brandur. „Við höfum fengið ófáar kvart­anir frá öku­mönnum sem segj­ast hafa ekið á hámarks­hraða en sjá raf­skútur þjóta hjá í umferð­inni. Það eitt segir að búið er að eiga við inn­siglin sjálf, því sam­kvæmt lögum má ekki fara svona hratt.“ Samkvæmt skil­grein­ingu íslenskra umferð­ar­laga flokk­ast raf­skútur sem reið­hjól. „Annað lítið vél­knúið öku­tæki sem ekki telst til létt­bif­hjóls og er hannað til akst­urs á hraða 6 til 25 km/klst,“ hermir í íslenskri umferð­ar­lög­gjöf og segir Guð­brandur stundum snúið viður­eignar, þar sem inn­fluttar raf­skútur beri allar inn­sigli. „Ef inn­sigla þarf raf­skútu, þá er tækið í mínum huga hannað til hrað­ari akst­urs en inn­siglið heim­ilar, en hér­lendis hefur alltaf verið leyfi­legt að inn­sigla raf­skútur og þar með eru þær orðnar lög­legar.“ Þessa skil­grein­ingu seg­ist Guð­brandur efins um. „Ef inn­sigla þarf raf­skútu í þessum til­gangi, passar slíkt ekki við ákvæði umferð­ar­laga. Skil­grein­ing á raf­skútu fellur undir vél­knúin hlaupa­hjól, eða tví­hjóla öku­tæki á einum öxli. Slíkum öku­tækjum má ekki aka á akbraut.“

Það eru einmitt rofin hraðainn­sigli sem að sögn slysa­varna­full­trúa og umferð­ar­deild lög­reglu valda slysa­hættu í umferð­inni. „Raf­hlaupa­hjólin fara um gang­stéttar og þar getum við tekið mark­tækt dæmi; þú mátt aka á 25 km/klst á leigu­hjóli en sjálft raf­hlaupa­hjólið er mjög þungt,“ segir Herdís og tekur í sama streng og Guð­brandur. „Þegar far­þegi bæt­ist svo við öku­mann raf­hlaupa­hjóls, þá ertu að marg­falda þennan sama hraða, þann efn­ismassa sem lendir á gang­andi veg­far­anda, full­orðnum eða barni. Þetta er margra tonna afl­þungi.“

Rafskútur frábær ferðamáti

Hug­mynda­fræðin sem býr að baki leigu á raf­skútum er að geta hoppað á og af eftir hent­ug­leika og þannig má sjá raf­skútur víða á gang­stéttum um alla höf­uð­borg Íslands þessa dag­ana. „En öku­menn eru jafn­vel á göngu í bænum og eru ekki alltaf með góðan örygg­is­hjálm í hlið­ar­tösk­unni. Það er stór hluti vand­ans og jafn­vel slysa­hættu,“ svarar Herdís og ber slysa­varna­full­trú­anum saman við varð­stjóra umferð­ar­deildar lög­reglu. „Raf­skútur eru flottir far­ar­skjótar og ferða­mát­inn er frá­bær,“ segir Herdís. „Því miður hafa þær fengið á sig mis­jafnt orð rétt eins og var um trampólínin hér um árið, þar sem tækin eru rang­lega notuð og slysa­tíðni þar af leið­andi alltof há.“

Framtíðin

Íslenskar kann­anir sýna að um 44% hafa prófað raf­skútur en 12% þeirra sem nota raf­skútur reglu­lega vilja aka raf­skútum á umferð­ar­götum þar sem hámarks­hraði er 30 km/klst eða lægri, sem þó er ekki heim­ilt. Raf­skútur eru hvorki skrán­ingar- né skoð­un­ar­skyldar hér á landi en Guð­brandur segir eft­ir­litið erfitt í lög­gæslu­legum skiln­ingi þeirra orða. Umferð­ar­deild lög­reglu virð­ist almennt á litið hlynnt far­ar­skjót­anum en brýnir rétta með­för og við­eig­andi örygg­is­búnað. „Við munum aldrei kom­ast yfir allt og lög­reglan getur ekki verið alls staðar og allra síst með svona hjól,“ segir Guð­brandur að lokum. „Við þurfum að meta hags­muni að hverju sinni, oft eru börn á raf­skútum og geta orðið ótta­slegin við afskipti lög­reglu. Þó eru raf­skútur fram­tíðin, þessi litlu raf­tæki sem eru þægi­leg og góð til brúks ef farið er rétt með og vel gengið um en raf­skútur geta þó verið stór­hættu­legar ef rangt er farið með.“

Skýrslu um notkun á raf­skútum má lesa HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi