Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi tók stökk sem enginn í heiminum hafði framkvæmt: „Ég er með ógeðslega mikið keppnisskap“

Helgi tók stökk sem enginn í heiminum hafði framkvæmt: „Ég er með ógeðslega mikið keppnisskap“

„Mamma og pabbi segja að ég hafi byrjað að labba á höndum þriggja ára og ein­hvern tíma hafi þau verið í úti­legu og ég auð­vitað að labba á höndum og taka handa­hlaup út um allt. Þá snar­stopp­aði ein­hver kona og vildi vita hver ætti þetta barn og hvort það væri ekki örugg­lega í fim­leikum“, segir Helgi Laxdal Aðal­geirs­son, 22 ára fim­leika­maður úr Stjörn­unni.

Helgi byrj­aði að ganga á höndum og taka stökk þriggja ára og hefur ekki hætt síðan.

Hann braut blað í fim­leika­sögu Íslands á Íslands­mót­inu í hóp­fim­leikum á Akranesi í mán­uð­inum þegar hann fram­kvæmdi stökk á dýnu sem aldrei fyrr hefur verið fram­kvæmt á móti í hóp­fim­leikum í heim­inum fyrr. Í þriðju umferð­inni stökk Helgi stökk sam­sett af heilli skrúfu, kraftstökki og tvö­földu helj­ar­stökki með beinum lík­ama og tveimur og hálfri skrúfu.

„Ég vissi að ég gæti gert þetta þótt það væru ekki allir sam­mála mér. Ég er súper ánægður”.

Helgi var ekki gam­all þegar hann var byrj­aður að raða upp verð­launa­grip­unum.

Ekki búsetuleyfi á Skaganum án þess að vera í boltanum

Eftir ummæli kon­unnar ónefndu í úti­leg­unni ákváðu for­eldrar Helga að taka hana á orð­inu og skráðu hann í fim­leika á Akranesi þar sem fjöl­skyldan var búsett. „Ég reynd­ist fitta bara svona vel að ég er búin að vera í þeim síðan. Ég var reyndar svo bull­andi ofvirkur á þessum árum að ég hafði bara gott af hreyf­ing­unni,“ segir Helgi og hlær. „Ég fór reyndar í fót­bolt­ann líka því maður fær varla búsetu­leyfi Skaganum nema fara í bolt­ann. En svo byrja ég að æfa með Stjörn­unni árið 2013 og þá var þetta orðið það tíma­frekt að ég þurfti að velja”.

Það er ríf­andi stemmn­ing á mót­unum.

Helgi tók strætó frá Akranesi fjóra daga vik­unnar á æfingar auk þess sem reglu­lega voru haldnar lands­liðsæf­ingar þeim til við­bótar. Hann segir að vissu­lega hafi það bitnað á félags­líf­inu. „Maður missti tengslin við vini og skóla­fé­laga í grunn­skóla og mennta­skóla því um leið og skól­inn var búinn, var farið beint í strætó á æfingu og var ekki kom­inn heim fyrr en á mið­nætti”. Hann seg­ist þó ekki mikið hafa fundið fyrir því þar sem félags­lífið í kringum fim­leik­ana hafi alltaf verið öfl­ugt.

Helgi hefur alltaf haft mikla þörf fyrir hreyf­ingu og átti erfitt með að velja milli fim­leika og fót­bolta.

Stríðnin ýtti mér áfram

„Ég er með ógeðs­lega mikið keppn­is­skap, alveg frá því ég var barn. Lengi vel vorum við bara tveir strák­arnir sem æfðum á Akranesi en þegar ég fer í Stjörn­una er fullt af strákum sem voru betri en ég og átti rosa­lega erfitt með að sætta mig við það svo ég æfði bara stans­laust þangað til ég varð betri. En við erum allir svo góðir vinir að við ýtum hver á annan á jákvæðan hátt”.

Fim­leikar hafa löngum frekar verið tengdir við stúlkur en pilta. Helgi seg­ist vissu­lega hafa aðeins fundið fyrir því og verið spurður að því hvort hann væri í þrönga spand­exgall­anum að æfa splitt. „En svo varð ég svo góður að eng­inn gat sagt neitt. Ég hef líka alltaf staðið vel félags­lega og held að þessi smá­stríðni hafi frekar ýtt mér áfram en haldið aftur af mér”.

Allir að bugast í Covid

Fim­leika­sam­band Íslands hefur staðið í stóru verk­efni sem kall­ast Fim­leika­hring­ur­inn. „Við erum búnir að vera geð­veikt mikið að aug­lýsa stráka í fjöl­miðlum og reyna að fá fleiri stráka inn. Það hefur gengið mjög vel”.

Helgi á yngri árum.

Helgi gefur lítið fyrir það aðspurður hvort hann hafi verið að gef­ast upp á ein­hverjum tíma­punkti en segir að Covid tíma­bilið hafa verið eitt­hvað það versta sem hann hafi upp­lifað. „En það hjálp­aði mér svo mikið að ég er að þjálfa fim­leika og sá að iðk­endur mínir, á öllum aldrei, voru bara að bug­ast. Reyndar voru allir iðk­endur, í öllum íþrótta­greinum, alveg að fá nóg. Það voru engar æfingar, engar keppnir og engin mark­mið”. Hann segir líka geta verið erfitt að halda áfram eftir stór­mót þar sem hann hafi náð sínu besta. „Við strák­arnir erum alltaf að keppa hvor við annan, sem heldur manni gang­andi, en maður er líka alltaf að keppa við sjálfan sig. Þetta er auð­vitað alveg galið!”

Það er mikil vin­átta og félags­skapur í fim­leik­unum.

Aðspurður um hvað hann haldi lengi áfram að keppa segir Helgi elsta Íslend­ing­inn sem keppt hafi á Norð­ur­landa­móti hafa verið 33 ára svo það er ljóst að hann á nóg eftir. Sjálfur hefur hann keppt á þremur Evr­ópu­meist­ara­mótum og fjórum Norð­ur­landa­mótum og er stefnan tekið á næsta EM í des­em­ber. „Við stefnum hátt þar.”

Fim­leika­fólkið okkar hefur ekki fengið greitt fyrir íþrótta­iðkun­ina og segir Helgi að mörgum vinum hans í fót­bolt­anum finn­ist það hálf­ga­lið. „Það hefur aldrei skipt mig máli, ég er að gera það em ég elska”.

Og þar með er Helgi rok­inn. Það er æfing.

Stökkið magn­aða má sjá hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi