Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Spænska veikin tók hundruð mannslífa á örskotsstundu – „Var skelfilegur dauðdagi“

Spænska veikin tók hundruð mannslífa á örskotsstundu – „Var skelfilegur dauðdagi“

Þrjátíu Íslend­ingar hafa lát­ist af völdum Covid-19 á Íslandi, far­ald­urs­ins sem setti landið, og heim­inn allan, á hlið­ina. Það var aftur á móti annar sjúk­dómur sem kost­aði 500 Íslend­inga lífið, ríf­lega 100 árum áður og er talin mann­skæð­asta far­sótt 20. ald­ar­innar.

Um var að ræða afbrigði af inflú­ensu sem hefur í gegnum tíð­ina verið kölluð Spænska veikin. Það vekur athygli hversu miklum hörm­un­ungum hún olli á til­tölu­lega stuttum tíma. Hún kom, lagði hund­ruð, og fór á innan við sex vikum.

Lungabólga var dauðadómur

Sagan segir að veikin hafi borist til Íslands með tveimur skipum, Botníu frá Kaup­manna­höfn og Willemoes frá Banda­ríkj­unum, þann 19. októ­ber 1918, sama dag og full­veldið var sam­þykkt.

Ekki var til neitt bólu­efni við þessum í inflú­ensu­stofni og til að bæta gráu ofan á svart þá var ekki búið að finna upp pen­isillín til að verj­ast lungna­bólgu sem var afskap­lega alvar­legur fylgi­kvilli. Á þessum tíma jafn­gilti það nán­ast dauða­dómi að fá lungna­bólgu.

Spænska veikin kom fram vorið 1918 og þótti þá frekar væg. Síð­sum­ars varð hún skæð­ari og að svoköll­uðum heims­far­aldri og í byrjun nóv­em­ber skall hún á með fullum þunga, meðal ann­ars hér á landi.

Tveir þriðju höfuborgarbúa rúmfastir

Fyrsta skráða dauðs­fallið á Íslandi er skráð í byrjun nóv­em­ber þegar Sólveig Vig­fús­dóttir frá Eystri-Skógum undir Eyja­fjöllum hafði harkað af sér og haldið áfram vinnu sinni í Reykja­vík þrátt fyrir að vera veik. Hún lagð­ist með lungna­bólgu og lést innan sól­ar­hrings. Næstu daga fór Spænska veikin yfir borg­ina sem eldur í sinu og þann 6. nóv­em­ber er talið að þriðj­ungur Reyk­vík­inga hafi legið sjúkur. Fimm dögum síðar er talið að tveir þriðju íbúa höf­uð­borg­ar­innar hafi verið rúm­fastir.

Neyð­ar­á­stand skap­að­ist og öll sjúkra­rúm Franska spít­al­ans og Landa­kots­spít­ala fyllt­ust. Mið­bæj­ar­skól­anum var breytt í sjúkra­skýli til að bregð­ast við. Götur Reykja­víkur tæmd­ust af fólki og dán­ar­til­kynn­ingar blað­anna fyllt­ust. Það gerði illt verra að á þessum tíma var hús­næð­is­skortur mik­ill, fólk bjó margt hvert í þrengslum við ömur­legar aðstæður og orðið sótt­kví ekki til í íslenskri tungu.

Til að bæta gráu ofan á svart gekk yfir mikið kulda­kast og hefur vet­ur­inn 1918 verið kall­aður Frosta­vet­ur­inn mikli. Talið er að tíu sinnum fleiri hafi smit­ast af Spænsku veik­inni en öðrum flensu­stofnum og var tala smit­aðra og lát­inna mjög há meðal ungs fólks, þá aðal­lega milli tví­tugs og fer­tugs. Enn í dag eru lækna­vís­indi ekki ein­huga um hvers vegna veikin lagð­ist svona heift­ar­lega á ungt fólk.

Lagðist á öll líffæri

Haraldur Briem, fyrr­ver­andi sótt­varn­ar­læknir, sagði í við­talið við DV árið 2018 að dauð­dag­inn hafi verið skelfi­legur. „Þegar veikin var sem svæsn­ust dó fólk vegna blæð­inga í lungum og í melt­ing­ar­vegi. Hún lagð­ist á öll líf­færi. Menn hóst­uðu upp blóði, blóð gekk niður af mönnum og var í þvagi. Sumir lifðu fyrstu dag­ana af en fengu síðan lungna­bólgu í kjöl­farið og dóu. Einnig bar á mið­tauga­kerf­is­ein­kennum, heila­bólgu og þess háttar. Fólk blán­aði, varð ruglað og lést jafn­vel af þeim sökum.“ Þá segir hann að margir sem lifðu af hafi hlotið var­an­legt tjón í lungum eða öðrum líf­færum og að kenn­ingar séu uppi um að veikin hafi valdið síð­komnum tauga­vanda­málum.

Reykja­vík fór lang­verst út úr far­aldr­inum, þar sem bæði far­ald­ur­inn hófst þar auk þess sem búseta í borg­inni var þétt­ust. Allt athafna­líf lam­að­ist. Flestar versl­anir lok­uð­ust og 6. nóv­em­ber hættu blöð að koma út vegna veik­inda starfs­manna. Samband við útlönd féll niður því allir starfs­menn Land­síma­húss­ins utan einn veikt­ust. Messu­fall varð og sömu­leiðis féll niður sorp­hirða og hreinsun útisal­erna.

Líkin urðu helblá

Þórður Thorodd­sen læknir lýsti spönsku veik­inni á eft­ir­far­andi hátt í bók­inni Ísland í ald­anna rás:

„Að öllu því er sjálfa veik­ina snertir, var hún mjög ein­kenni­leg og að mörgu leyti allt öðru­vísi en þær inflú­ensu­sóttir, sem áður hafa gengið og ég hef séð. Ég var alvanur við að sjá í fyrri sóttum barka­kvef og háls­bólgur, lungna­kvef og lungna­bólgur, bæði broncho-pneumon­íur og krúpösar, eyrna­bólgur, tauga­veiki, upp­köst og nið­ur­gang, konur hafa misst [fóstur] og sumir orðið hálf­brjál­aðir um tíma. En svo þungt lungna­kvef, svo tíðar lungna­bólgur sem í þess­ari sótt hef ég aldrei séð. Og þessar blæð­ingar. Blóðið streymdi ekki aðeins úr nösum, stundum óstöðv­andi, heldur og upp úr lungum, niður úr þörmum, upp úr maga og gegnum þvag­rás­ina. Lungna­bólgan kom, þótt menn lægju kyrrir í rúmunum og gættu allrar var­úðar. Og þótt lungna­bólgan rén­aði, fór hjartað að ólm­ast, hræðsla greip menn og kvíði, þyngsli komu og and­ar­teppa, menn bólgn­uðu í and­liti, á höndum og fótum og köfn­uðu að lokum. Og svo eftir allt saman urðu líkin hel­blá. Þetta er það, sem gerði þessa inflú­ensu­sótt svo ein­kenni­lega og ægi­legri en aðrar inflú­ensu­sóttir, sem ég hef séð“.

Gripið til fjöldagrafreita

Þann 9. nóv­em­ber var þeirra tíma þrí­eyki stofnað, sér­stök hjúkr­un­ar­nefnd sem skipti borg­inni í þrettán hverfi og var hafið að ganga skipu­lega húsa á milli og sinna sjúk­lingum eftir bestu getu. Víða blasti við ömur­leg sjón, til að mynda börn hjá lát­inni móður og fár­veikum föður. Öll til­tæk lyf klár­uð­ust, læknar unnu allan sól­ar­hring­inn og var gripið til að gefa lækna­nemum bráða­birgða­skír­teini. Andlátin voru það hröð að koma var upp lík­húsum til bráða­birgða og þann 20. nóv­em­ber þurfti að jarð­setja fólk í fjölda­graf­reitum.

Þáver­andi land­læknir, Guð­mundur Björns­son, var gagn­rýndur fyrir að bregð­ast seint við en þegar veikin var skoll­inn á var gripið inn í til að vernda lands­byggð­ina. Í grein DV segir að ferðir yfir Jökulsá á Sól­heima­sandi hafi verið bann­aðar og einnig yfir Holta­vörðu­heiði þar sem verðir gættu veg­ar­ins. Veikin breidd­ist hins vegar út á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum með skipum. Á Norður- og Aust­ur­landi var sett á hafn­bann og skip fengu ekki að koma að nema eftir til­skil­inn tíma til að tryggja að veiran væri ekki um borð.

Haraldur sagði í við­tal­inu að þar hafi um verið að ræða eitt af með fáum dæmum í ver­ald­ar­sög­unni þar sem tókst að hefta útbreiðslu heims­far­ald­urs með því að hindra manna­ferðir.

 Og nú hefur leik­ur­inn von­andi verið end­ur­tek­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi