Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjartmar segir stjórnvöldum að hundskammast sín: „Mér er annt um landið mitt“

Bjartmar segir stjórnvöldum að hundskammast sín: „Mér er annt um landið mitt“
Bjartmar Guð­laugs­son.

Bjartmar Guð­laugs­son og hljóm­sveitin Berg­risarnir eru að vinna að sinni annarri plötu og er fyrsta lagið „Á ekki eitt ein­asta orð“ farið í spilun. Bjartmar segir að það hafi fengið afburða góðar við­tökur. Bjartmar talar hér meðal ann­ars um lagið, jarð­ar­kaup útlend­inga hér á landi, heið­ar­leik­ann í tóni og texta, stíl­leysið og fal­leg­asta orðið.

„Við Berg­risarnir höfum alltaf verið rokk­hljóm­sveit og sungið rokktexta. Við ákváðum að gera okkar aðra plötu og staðan er sú að við erum búnir að setja fyrsta lagið, „Á ekki eitt ein­asta orð“, í spilun sem hefur fengið afburða góðar mót­tökur. Textinn fjallar um mjög mikla vá sem varðar eign­ar­hald á land­inu og auð­lindum þess. Nú er verið að selja útlend­ingum jarðir á Aust­ur­landi og víðar um land. Það virð­ist eng­inn veita þessu mikla athygli; það virð­ast engir stjórn­mála­menn vera að velta þessu fyrir sér. Þetta kemur lítið til umræðu og mér finnst vera óskap­lega sér­kenni­legt að það skuli eng­inn stjórn­mála­maður hafa neina stefnu eða skoðun á þessu máli. Svör þeirra eru að vísu að það sé ekki hægt að hefta kaup útlend­inga á íslenskum fast­eignum. Það er alveg furðu­legt að þeir skuli reikna þetta sem fast­eignir. Þetta er ekki eins og verið sé að selja tveggja her­bergja íbúð í Vest­ur­bænum. Málið er að þetta eru ekki fast­eigna­kaup. Þetta eru jarða­kaup. Það er búið að kaupa því­líkt magn af landi að það er með ólík­indum og það er búið að ákveða alls konar hluti sem eru á huldu fyrir þjóð­inni varð­andi þessi mál. Þetta er eft­ir­lits­laust og þeir ættu að hund­skamm­ast sín sem stjórna þessu landi.“

Bjartmar er spurður hvort hann sé mik­ill Íslend­ingur í sér og hvað Ísland sé í huga hans.

„Ég bý á þess­ari jörð og mér er annt um þessa jörð. Mér er annt um ver­öld­ina en Ísland er bara Ísland. Ég hef búið ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum og hef farið víða en að sjálf­sögðu er ég Íslend­ingur. Ég er Íslend­ingur að hálfu en móðir mín var fær­eysk. Ísland er bara landið mitt, þjóðin mín, án þess að ég sé með neina þjóð­ern­is­hyggju eða eitt eða neitt. Ég á það ekki til í mínu hjarta og hef aldrei staðið í því að vera í póli­tískum flokki. Ég veit ekki einu sinni hvort ég muni kjósa í haust. Áherslan virð­ist vera lögð á að græða millj­arða en fólkið sem býr til þessa millj­arða er ekki að njóta þeirra nema örfáir vegna þess að launa­skipt­ingin í land­inu er með því­líkum ólík­indum. Þetta er ekki líkt nor­ræna mód­el­inu. Þetta er líkt amer­íska hag­kerf­inu þegar það lítur sem verst út.“

Skugginn og ljósið

Lögin hans Bjart­mars hafa hljó­mað á íslenskum heim­ilum árum saman. Áratugum saman. Hvað ætli tón­skáldið og söngv­ar­inn leggi áherslu á þegar hann semur lögin og text­ana? Hver er stíll­inn?

„Ég legg fyrst og fremst áherslu á að vera heið­ar­legur gagn­vart sjálfum mér, bæði í tóni og texta. Og ég geri engar sér­stakar kröfur til þess að það sé neitt sér­stak­lega hlustað á mig en ef fólk hefur gaman af því sem ég er að gera og ef það skilur það sem ég er að gera sem ég skil varla sjálfur þá er það bara mjög gott. En ég er ekk­ert mjög æstur í það að vera að gapa framan í þjóð­ina að öðru leyti. Það má kannski segja að text­inn sem ég sem sé „mitt komment“ en ég skrifa aldrei komment á Facebook eða á net­miðla.“

Bjartmar seg­ist vera stíl­laus í mynd­list­inni.

Covid-19-heims­far­ald­ur­inn hefur haft mikil áhrif á tón­list­ar­menn eins og aðra og hefur Bjartmar þurft að fella niður tón­leika eins og fleiri. „Ég er núna að semja nýtt efni sem fer á þessa plötu og svo er ég búinn að vera að mála nokkuð mörg mál­verk en ég er mynd­list­ar­maður að mennt og skuld­aði mál­verk­unum dálítið mik­inn tíma þannig að ég fékk tíma til þess að mála á meðan ég komst varla út úr húsi út af Covid-19.“

Hvað með stíl­inn í mynd­list­inni?

„Ég er stíl­laus maður í einu og öllu. Þegar ég mála myndir þá er mér alveg sama hvort ég teikna skop­myndir eða mála með olíu­litum eða akríl á striga. Í lögum og ljóðum er ég rokk­ari en ég get líka búið til lög fyrir börnin. Ég er sem sagt stíl­laus maður. Ég er búinn að vera með sömu hár­greiðsl­una nær allt lífið og það er ákveðið stíl­leysi. Annars spilar þetta allt saman hjá mér – það er ljóðið, lagið og myndin.“

Ljóð, lag og mynd. Þetta er þrenn­ing sem teng­ist æsk­unni. Drengnum Bjart­mari sem þá var ekki stíl­laus. Eða hvað?

„Þegar ég var lít­ill drengur þá var mikið lesið af sögum og ljóðum í minni fjöl­skyldu og ég hlust­aði mikið á Suð­ur­sveit­ung­ana, frændur mína, þegar þeir komu til pabba og mömmu í heim­sókn. Það síað­ist inn í mig ljóðið og sér­stak­lega stakan. Þeir svör­uðu með stökum. Og þessar stökur fylgdu mér og ein­hvern veg­inn hugs­aði ég ljóð­rænt þegar ég var krakki. Svo byrj­aði ég snemma að teikna. Ég held að allt sem ég geri komi út frá ljóð­inu. Að grunn­tónn­inn sé þar.“

Bjartmar fékk meiri tíma fyrir mynd­list­ina í Covid.

Allt kemur frá ljóð­inu. Lista­mað­ur­inn er spurður um upp­á­halds­ljóðið.

„Ég man það nú ekki alveg. Ég lærði svo mörg ljóð þegar ég var krakki. Til dæmis „Gömul vísa um vorið“ eftir Stein Steinarr. En ég hef heill­ast mest af ljóðum hans. Ég var von­laus í skóla en átti auð­velt með að læra ljóð, sögur og að teikna. Einu glæpa­sög­urnar sem ég les eru Íslend­inga­sögur og hef verið  „hooked“ á þeim frá því að ég var ung­lingur.“

Hvað með fal­leg­asta orðið? Hvert er það að mati Bjart­mars?

„Ljós. Við þurfum ljós. Við þurfum líka á skugg­unum að halda til þess að meta ljósið.“

Þetta er eins og með gleð­ina og sorg­ina. „Því lífið það er ljóða­brot og lagstúfur sem gjarnan fylgir með“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi