Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þegar Sædýrasafnið var starfrækt í Hafnarfirði: „Það voru alltaf ljón eða selir heima hjá mér“

Þegar Sædýrasafnið var starfrækt í Hafnarfirði: „Það voru alltaf ljón eða selir heima hjá mér“

Í maí­mán­uði árið 1969 var opn­aður dýra­garður í Hafn­ar­fjarð­ar­hrauni, sunnan Hval­eyr­ar­holts, þar sem nú er Keil­is­völl­ur­inn. Upphafið að ævin­týr­inu má rekja til Hjálp­ar­sveitar skáta, sem þá sem nú, var reglu­lega að leita leiða til fjár­öfl­unar. Þeir fóru því af stað með sýn­ingu á fiskum svo og nokkrum öðrum dýrum. Með tím­anum bætt­ust við íslensku hús­dýrin auk sela, háhyrn­inga, ísbjarna svo og dýra af hlýrri slóðum. Ljón, kengúrur og apar voru í þeim hópi.

Margir höfðu á orði að það væri bilun að opna dýra­garð að erlendri fyr­ir­mynd lengst úti í Hafn­ar­fjarð­ar­hrauni. Sé litið í bak­sýn­is­speg­il­inn er vart unnt að gera annað en vera sam­mála þeim er töldu hug­mynd­ina afspyrnu­vonda.

Keikó í safninu

Ekki ber að efast um að hug­myndin að safn­inu hafi verið byggð á ein­lægum vilja aðstand­enda þess til að kynna land­anum dýra­fánu víðs­vegar að úr heim­inum.  Dýra­garð­ur­inn í Hval­eyr­ar­holt­inu er engu að síður slá­andi dæmi um hvernig hug­myndir manna um aðbúnað og umhverfi dýra hafa gjör­breyst í áranna rás.

Það var Jón Kr. Gunn­ars­son, skip­stjóri og bóká­út­gef­andi, sem átti hug­mynd­ina að sædýra­safn­inu og var hann for­stöðu­maður þess alla tíð. Safnið var fjár­magnað með aðgangs­eyri svo og tekjum sem feng­ust fyrir að fanga háyrn­inga fyrir sædýra­söfn víða um heim. Háhyrn­ing­arnir voru geymdi í þar til gerðri laug í safn­inu áður en þeir voru sendir út. Hinn víð­frægi Keikó var til að mynda geymdur í safn­inu eftir að hafa verið fang­aður árið 1979. Einnig studdi Kefla­vík­ur­bær við safnið.

Ljón á labbi um Hellisgerði

Dóttir Jóns, Ragn­hildur Jóns­dóttir, var átta ára þegar safnið opn­aði. „Ætli við höfum ekki alltaf þótt pínu skrítin. Það voru alltaf ljón eða selir heima hjá mér. Það var samt ábyggi­lega gaman að koma í heim­sókn. En ég pældi ekk­ert í því af því að þetta var svo eðli­legt fyrir mér, ég þekkti ekk­ert annað,“ sagði Ragn­hildur síðar í við­talið við DV.

Í vaska­hús­inu voru ljóns­ung­arnir geymdir og þeim gefin mjólk á pela. „Við settum hundaól á þá og fórum með þá í göngutúr um Hellis­gerði til að viðra þá. Auðvitað yrði þetta ekki gert í dag. Það er svo margt sem maður þarf að skoða út frá þessum tíma. Í dag myndi maður hafa ljón í stærra plássi og maður myndi ekki fara með þau í göngutúr í Hellis­gerði. Þetta var allt annar tími“.

Lesendabréfin

Safnið fékk dýrin víða að, ekki síst í gegnum dýra­garð­inn í Kaup­manna­höfn sem Jón var í miklum og góðum sam­skiptum við. Til að mynda var fyrsta spen­dýrið í garð­inum mun­að­ar­laus ísbjarn­ar­húnn frá Köben. Önnur dýr voru keypt. Íslenskum dýrum var skipt fyrir erlend. Hreindýr voru veidd og móð­ur­lausum selkópum bjargað.  Safninu bár­ust einnig gælu­dýr frá fólki sem vildi losna við þau og varð brátt fyllt­ist safnið af kan­ínum, páfa­gaukum og skjald­bökum.

Ekki leið þó á löngu að almenn­ingur var far­inn að hafa á orði að aðbún­aður dýr­anna í hraun­inu væri ekki boð­legur og má finna fjölda les­enda­bréfa þess efnis á síðum blaða í upp­hafi átt­unda ára­tug­ar­ins.

Ísbjörn með niðurgang

Í við­tali sem Alþýðu­blaðið tók við Jórunni Sörensen, for­mann Sambands dýra­vernd­un­ar­fé­laga Íslands, í til­efni af Degi dýr­anna árið 1976, gagn­rýndi hún harð­lega rekstur sædýra­safns­ins. Sagði hún stjórn félags­ins hafa farið og kannað aðbúnað dýr­anna eftir að mik­ill fjöldi kvart­ana hefði borist. Í kjöl­farið var skrifað bréf þar sem upp voru talin fjöldi atriða sem félagið taldi betur mega fara. Þar var meðal ann­ars bent á að dýrin væru í for­ar­vilpu, skítug upp á herð­ar­kamb og að vatn væri óhreint í gryfju ísbjarn­anna og þar ókræsi­legt um að lit­ast. Sagði Jórunn einnig ljóns­unga dauðan og í frysti, hrein­dýrin með þarma­eitrun og einn ísbjörn­inn með svæsna skitu.

Sagði Jórin svörin hafa verið útúr­snún­inga og yfir­klór; for og skítur væru eðli­legur hlutir þar sem mikið rigndi á svæð­inu. „Það er í raun­inni fárán­legt hvað þetta safn hefur notið mik­ils vel­vilja hjá blöð­unum,” sagði Jórunn í við­tal­inu.

Feldir klístraðir

Árið 1980 birti tíma­ritið Dýra­vernd­ar­inn grein sem sjö Kefla­vík­ur­meyjar skrif­uðu eftir heim­sókn sína í safnið. Þar segir meðal ann­ars að fisk­arnir hafi legið í skítugum búrum og hafi þrengslin verið slík að þeir hafi legið hverjir ofan á öðrum eins og í sard­ínu­dós. Þvínæst hafi þær skoðað ref­ina sem hafi verið með feld­ina klístraða af skít í þröngu búri. Þær taka fram að hjá kan­ínum, kengúrum og hömstrum hafi verið þrifa­legt um að lit­ast en ekki unnt að segja slíkt hið sama um aðbúnað ann­arra dýra. „Hjá ljón­unum og öpunum var fer­leg lykt og karljónið virt­ist í vondu skapi því það stökk á grind­verkið fyrir búr­inu. Þarna er hættu­legt fyrir lítil börn því þau geta kom­ist alveg að ljón­unum.” Sömu sögu höfðu þær að segja ísbirn­ina sem að þeirra sögn voru umlyktir gömlum mat­ar­leyfum sem voru farnar að úldna.

„Í þessu Sædýra­safni er alveg fer­lega sóða­legt og lítið pláss fyrir dýrin og okkur finnst að fólk ætti ekki að láta bjóða sér að skoða þetta Sædýra­safn,” sögðu stúlk­unar í nið­ur­lagi grein­ar­innar.

Margskorinn bangsi

Því má við bæta að stærsti ísbjörn í heimi, sem vistaður var í safn­inu, drapst út blóð­eitrun árið 1984 eftir að hafa skorið sig á brot­inni pilsner­flösku. Var það í þriðja sinn sem bangsi hafði skorið sig illa á flösku sem óprút­tnir aðilar hentu að honum. Einnig höfðu verið brögð að því að gler­köstum hafi verið kastað að fleiri dýrum, einkum öpunum.

Ekki voru þetta einu skiptin sem dýr af safn­inu urðu fyrir illri með­ferð af hendi almenn­ings því eitt skiptið braust ógæfu­fólk þar inn og hafði á brott með sér kengúru sem því fannst grá­upp­lagt að taka með í partí. Aumingja dýrið þurfti að dvelja alla nótt­ina með ölóðu fólki þar til víman rann af mann­skapnum og kengúr­unni var skilað í kassa upp við Ártúns­brekku dag­inn eftir.

Rekstur safn­ins gekk brös­ug­lega í nokkur ár, ekki síst eftir að salan á háhyrn­ingum féll um sjálfa sig í kjöl­far auk­inna mót­mæla hval­frið­un­ar­sam­taka. Fór svo að safnið skellti í lás árið 1987. Ekki reynd­ist unnt að selja dýrin sökum ald­urs og var þeim fargað. Við það má bæta að við frá­gang á safn­inu fund­ust fjórar kengúrur, grind­hor­aðar og tann­lausar, sem gleymst hafði að farga og var ljóst að tenn­urnar hefðu verið dregnar úr þeim. Það mun hafa verið afar sorg­leg sjón.

Var þá úti um dýra­garða á Íslandi þar til Hús­dýra­garð­ur­inn opn­aði með gjör­ó­líku sniði þremur árum síðar.

Bak­sýnispeg­ill­inn er end­ur­birtur. Höfundur: Guðrún Gyða Eyþórs Árna­dóttir. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi