Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Öfgar um mál Ingós: „Nauðgunarmenning er samfélagslegt vandamál“ – „Dómskerfið brugðist þolendum“

Öfgar um mál Ingós: „Nauðgunarmenning er samfélagslegt vandamál“ – „Dómskerfið brugðist þolendum“

Aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar hefur gefið út yfir­lýs­ingu varð­andi ákærur á hendur tón­list­ar­mann­inum Ingós Veð­urguðs.

Aðgerð­ar­hóp­ur­inn segir það kýr­skýrt að allar frá­sagn­irnar varð­andi meint kyn­ferð­is­af­brot Veð­urguðs­ins komi frá raun­veru­legu fólki og það hafi verið stað­fest áður en sög­urnar voru birtar, en þetta meðal kemur fram í yfir­lýs­ingu hóps­ins:

„Við í Öfgum höfum tekið við fjölda frá­sagna frá konum síð­ustu tvö ár. Hver ein­asta frá­sögn hefur verið stað­fest með því að bera saman send­anda við Íslend­inga­bók, engin frá­sögn sem birt hefur verið hefur komið frá send­anda sem ekki er hægt að stað­festa.“

Þetta líka:

„Það að Ingólfur eða fjöl­miðlar hafi tengt hann við sög­urnar er ekki okkar mál. Við höfum hvergi gefið upp um hvern ræðir og munum ekki stað­festa það hver meintur ger­andi sé. Við tölum um einn mann og fjölda frá­sagna sem okkur hafa borist.“

Eins og fram kom í grein Mannlífs í gær.

segir Ingó að hann „upp­lifi á­sak­an­irnar sem árásir og hefur á­hyggjur af fjöl­skyldu sinni og sínum vinum vegna umræð­unnar,“ og neitar alfarið sök og ætlar að kæra. Hverja/hverjar hann hefur í hyggju að kæra er ekki enn vitað.

En aftur að yfir­lýs­ingu Öfga:

„Frá­sagn­irnar eru nafn­lausar til að vernda þolendur og auk þess hefur meintur ger­andi ekki verið nefndur á nafn þó svo að um sama mann sé að ræða í öllum frá­sögn­unum. Öll kenni­leiti hafa verið fjar­lægð úr frá­sögn­unum til að ekki sé hægt að tengja þær við ákveðin mein­tan ger­anda. Einnig höfum við rætt við þolendur og séð myndir af áverkum.

Stór hluti meintra þolenda var undir lög­aldri þegar meint brot áttu sér stað. Við munum aldrei rjúfa trúnað við þær sem hafa treyst okkur fyrir frá­sögnum sínum. Þolendur hafa rétt á að segja sína sögur án þess að almenn­ingur heimti nafn­grein­ing á meintum ger­anda, meintum þol­anda og að hann sé ákærður og dreg­inn fyrir dóm.“

Segja má að mál Ingós hafi sett íslenskt sam­fé­lag á hlið­ina, sér­stak­lega eftir að Þjóð­há­tíð­ar­nefnd til­kynnti að Ingó sjái um brekku­söng­inn í Eyjum um næstu versl­un­ar­manna­helgi.

„Með þessum frá­sögnum erum við að benda á kerf­is­bundið vanda­mál í sam­fé­lag­inu og þeim veru­leika sem konur búa við,“ segir í til­kynn­ingu Öfga:

„Nauðg­un­ar­menn­ing og kyn­bundið ofbeldi eru sam­fé­lags­leg vanda­mál og hefur dóms­kerfið algjör­lega brugð­ist þolendum. Viðbrögð sam­fé­lags­ins á inter­net­inu und­ir­strika það vel hvers vegna þolendur ofbeldis segja ekki frá fyrr en löngu eftir að brot hefur átt sér stað og fara ekki dóms­leið­ina. Frá­sagnir þolenda eru ákall á breyt­ingar. Dóms­kerfið eitt og sér mun ekki laga vanda­málin sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að nauðg­un­ar­menn­ingu. Þar berum við öll sem sam­fé­lag ábyrgð.“

Öfgar segja einnig að „það að Ingólfur eða fjöl­miðlar hafi tengt hann við sög­urnar er ekki okkar mál. Við höfum hvergi gefið upp um hvern ræðir og munum ekki stað­festa það hver meintur ger­andi sé. Við tölum um einn mann og fjölda frá­sagna sem okkur hafa borist.“

Hér er yfir­lýs­ing Öfga í heild sinni: 

„Við í Öfgum höfum tekið við fjölda frá­sagna frá konum síð­ustu tvö ár. Hver ein­asta frá­sögn hefur verið stað­fest með því að bera saman send­anda við Íslend­inga­bók, engin frá­sögn sem birt hefur verið hefur komið frá send­anda sem ekki er hægt að stað­festa. Frá­sagn­irnar eru nafn­lausar til að vernda þolendur og auk þess hefur meintur ger­andi ekki verið nefndur á nafn þó svo að um sama mann sé að ræða í öllum frá­sögn­unum. Öll kenni­leiti hafa verið fjar­lægð úr frá­sögn­unum til að ekki sé hægt að tengja þær við ákveðin mein­tan ger­anda. Einnig höfum við rætt við þolendur og séð myndir af áverkum.

Stór hluti meintra þolenda var undir lög­aldri þegar meint brot áttu sér stað. Við munum aldrei rjúfa trúnað við þær sem hafa treyst okkur fyrir frá­sögnum sínum. Þolendur hafa rétt á að segja sína sögur án þess að almenn­ingur heimti nafn­grein­ing á meintum ger­anda, meintum þol­anda og að hann sé ákærður og dreg­inn fyrir dóm.

Með þessum frá­sögnum erum við að benda á kerf­is­bundið vanda­mál í sam­fé­lag­inu og þeim veru­leika sem konur búa við.

Nauðg­un­ar­menn­ing og kyn­bundið ofbeldi eru sam­fé­lags­leg vanda­mál og hefur dóms­kerfið algjör­lega brugð­ist þolendum

Viðbrögð sam­fé­lags­ins á inter­net­inu und­ir­strika það vel hvers vegna þolendur ofbeldis segja ekki frá fyrr en löngu eftir að brot hefur átt sér stað og fara ekki dóms­leið­ina. Frá­sagnir þolenda eru ákall á breyt­ingar. Dóms­kerfið eitt og sér mun ekki laga vanda­málin sem við stöndum frammi fyrir þegar kemur að nauðg­un­ar­menn­ingu. Þar berum við öll sem sam­fé­lag ábyrgð.

Frétta­flutn­ingur DV var til þess gerður að draga úr trú­verð­ug­leika þolenda. Blaða­maður DV býr til frétt út frá tvíti á Twitter þar sem ein­stak­lingur seg­ist hafa sent upp­lognar frá­sagnir undir nafn­lausum aðgöngum. Það stenst ekki þar sem við höfum, eins og áður segir, stað­fest alla sendendur. DV hefur sam­band við eina okkar án þess að bera undir hana hvernig frétt­inni verður háttað og reynir síðan að henda henni fyrir lest­ina með því að skella upp týpískri click-bait frétt. Allt er þetta gert á kostnað okkar og meintra þolenda. Auk þess er búið að eyða aðgang­inum á Twitter sem hélt þessu fram og því ekki hægt að hafa sam­band við við­kom­andi til að fá við­brögð.

Það að Ingólfur eða fjöl­miðlar hafi tengt hann við sög­urnar er ekki okkar mál. Við höfum hvergi gefið upp um hvern ræðir og munum ekki stað­festa það hver meintur ger­andi sé. Við tölum um einn mann og fjölda frá­sagna sem okkur hafa borist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi