Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Glæsihús í 101 með tíu svefnherbergjum og sjö baðherbergjum til sölu á 225 millur: Sjáið myndirnar!

Glæsihús í 101 með tíu svefnherbergjum og sjö baðherbergjum til sölu á 225 millur: Sjáið myndirnar!
Sögu­frægt hús til sölu.

Eitt af dýr­ari hús­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er nú til sölu: Sól­eyj­ar­gata númer 29, og án efa eru margir áhuga­samir um eign­ina, og þá er um gera að skoða hana og gera til­boð.

En það er hins vegar deg­inum ljós­ara að hinn almenni borg­ari Íslands á mjög lík­lega ekki fyrir þeirri upp­hæð sem húsið er til sölu á; verð eign­ar­innar, metið af fast­eigna­sölu og eig­anda/eig­endum, er litlar 225 millj­ónir króna.

Mögu­legur eig­andi húss­ins, eða að minnsta kosti annar af tveimur ein­stak­lingum sem er skráður með aðsetur á Sól­eyj­ar­götu 29, er graf­íski hönn­uð­ur­inn Nina Ruth Knudsen. Nina er skráð sem for­ráða­maður og stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tækis sem heitir NRH reyk ehf; fyr­ir­tækið er skráð til „heim­ilis“ á Sól­eyj­ar­götu 29 og hefur vænt­an­lega aðsetur sitt þar.

Hinn ein­stak­ling­ur­inn – líka mögu­legur eig­andi húss­ins – sem skráður er með búsetu í hús­inu stóra, glæsi­lega og dýra, er Sig­hvatur Blöndahl.

Óhætt er að segja að húsið sé mjög fal­legt og stað­setn­ingin er frá­bær; mitt í hjarta Reykja­víkur, eins og mynd­irnar með þess­ari frétt stað­festa.

Húsið er rúm­ir fjögur hund­ruð fer­metr­ar að stærð og er með tíu svefn­her­bergj­um og sjö bað­her­bergj­um, og eng­inn þarf að hafa áhyggjur af því að vakna í spreng um miðja nótt og kom­ast ekki á kló­settið, því miklar líkur eru á því að alla­vega eitt bað­her­bergj­anna tíu sé laust.

Þess má geta að arki­tekt­inn Sigurður Guð­munds­son teikn­aði húsið sem var reist árið 1933. Sigurður er risa­stórt nafn í arki­tekta­sögu/bygg­ing­ar­list­ar­sögu Íslands og hann teikn­aði húsið við Sól­eyj­ar­götu 29 fyrir Thor Thors, en Thor var sendi­herra í Banda­ríkj­unum og fyrsti fasta­full­trúi Íslands hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum.

Thor Thors.

Sigurður teikn­aði einnig – meðal ann­arra húsa – árið 1929 fyrsta íbúð­ar­hús hér á landi eftir hug­myndum módern­ism­ans; hús Ólafs Thors í Garða­stræti 41, en bygg­ing þess mark­aði tíma­mót í íslenskri húsa­gerð­ar­sögu.

Garða­stræti 41 eins og það leit upp­haf­lega út.

Sigurður Guð­munds­son var annar í röð þeirra Íslend­inga sem fyrstir nutu háskóla­mennt­unar í upp­hafi ald­ar­innar, næstur á eftir frum­herj­anum Guðjóni Sam­ú­els­syni.

Sigurður Guð­munds­son

En þá aftur að eign­inni Sól­eyj­ar­götu 29.

Það er Fold fast­eigna­sala sem „kynnir til sölu eða í lang­tíma­leigu: Rúmlega 400 fer­metra ein­býl­is­hús á besta stað við Sól­eyj­ar­götu 29 í 101 Reykja­vík. Húsið er mjög virðu­legt með tíu svefn­her­bergjum, þar af fimm her­bergi með sér bað­her­bergi inn af her­berg­inu með sturtu og sal­erni. Önnur her­bergi með aðgangi að upp­gerðum bað­her­bergjum. Góð loft­hæð er í hús­inu.“

Eignin Sól­eyj­ar­gata 29 stendur á sjöhund­ruð og sex­tíu fer­metra eign­ar­lóð og er stein­steypt; var byggt árið 1933.

Eins og við má búast í svona stóru, rán­dýru og sögu­fræga húsi er all­ur frá­gang­ur fyrsta flokks á heim­il­inu – sem er afar stíl­hreint, fal­legt og hrein­lega glæsi­legt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi