Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristbjörn: „Átta ára var mér nauðgað af kaupmanni í Kópavogi sem hafði áhorfanda.“

Kristbjörn: „Átta ára var mér nauðgað af kaupmanni í Kópavogi sem hafði áhorfanda.“
Hrylli­leg reynsla sem Krist­björn varð fyrir sem ungur drengur.

Umræða um kyn­ferð­is­of­beldi – nauðg­anir og áreiti – skekja íslenskt sam­fé­lag í dag. Það sam­tal sem nú á sér stað hefur opnað augu margra fyrir því hversu algengt slíkt ofbeldi virð­ist vera á Íslandi, og ekki bara í dag eða á síð­ustu árum. Líka á síð­ustu ára­tugum. Og hefur umræðan opnað upp á gátt þá stað­reynd að þolendur þora nú meira en áður að stíga fram og segja sögu sína; skila skömminni vit­andi að það var ekki þol­and­anum á neinn hátt að kenna, en margir hafa slig­ast með slíkar til­finn­ingar ára­tugum saman. Kyn­ferð­is­legt ofbeldi er alltaf ger­and­anum að kenna.

Saga Krist­bjarnar Árna­sonar er eitt dæmi um slíkt við­bjóðs­legt ofbeldi sem hann varð fyrir þegar hann var ein­ungis lít­ill drengur. Hann hefur skilað skömminni og opnað sig um ofbeldið fyrir fjöl­skyldu sinni og opin­ber­lega.

Saga Krist­bjarnar er óhugn­an­leg en því miður ekk­ert eins­dæmi.

„Það eru ekki bara konur sem verða fyrir kyn­ferð­is­legu áreiti og ofbeldi eins og nauðgun. Almennt tel ég að ofbeldi fylgi mun fremur stétta­mis­mun fólks; að fólk í ráð­andi stöðu gagn­vart öðru fólki beiti það ofbeldi með afar fjöl­breyttum hætti “ segir Krist­björn Árnason sem segir slá­andi sögu sína af kyn­ferð­is­of­beldi sem hann var beittur sem barn.

„Konur beita aðrar konur og stelpur ofbeldi af öllu tagi. Þær beita einnig karla og drengi ofbeldi af öllu tagi. Sama á við um karla. Ég get tekið sjálfan mig sem dæmi um að hafa þolað slíkt ofbeldi bæði af körlum og konum,“ segir Krist­björn sem rifjar upp atvik sem áttu sér stað þegar hann var ein­ungis sex ára gam­all:

„Það fyrsta sem ég minn­ist var þegar ég var sex ára gam­all í Þing­holt­unum, þegar tví­bura­systur um ferm­ing­ar­ald­ur­inn drógu mig gjarnan á ákveð­inn felu­stað það sum­arið. Þær tos­uðu síðan niður um bux­urnar mínar og með­höndl­uðu typpið á mér. Einnig tóku þær aðra hönd mína og nudd­uðu með henni djásnin sín. Ég vissi auð­vitað ekk­ert hvað var um að vera og hafði ekk­ert vit á þessum hlutum. Síðar var þetta mér afar óþægi­leg lífs­reynsla.“

Tveimur árum síðar – ein­ungis átta ára gam­all – varð Krist­björn fyrir mun verra ofbeldi og segir frá:

„Á níunda árinu var mér nauðgað af kaup­manni í Kópavogi og hann hafði áhorf­anda. Ég man þennan atburð eins og hann hefði gerst í gær. Mér fannst ég bera ábyrgð á þessum óþverra, enda hafði hann oft gefið mér sæl­gæti. Síðar um vet­ur­inn komu tveir lög­reglu­menn í fullum skrúða og sóttu mig í Kópa­vogs­skóla þrisvar sinnum og farið var með mig í yfir­heyrslu. Aldrei minnt­ust for­eldrar mínir á þennan atburð.“

Krist­björn segi að „kaup­mað­ur­inn var dæmdur fyrir að nauðga okkur fjórum nem­endum; tveir þeirra eru löngu dánir og það tók mig rúm­lega hálfa öld að geta rætt þetta við mína nán­ustu. Mér fannst sem krakka að mér hefði verið refsað og ég ætti það skilið.“

Árinu eftir þennan hrylli­lega atburð – 1955 – var Krist­björn sendur í sveit vestur í Gufu­dals­sveit þar sem faðir hans hafði verið vinnu­maður um all­langt tíma­bil í æsku.

„Við voru þrír drengir þarna í sveit. Í aldri var ég í miðið. Þarna var þá barn­a­níð­ingur sem kvaldi okkur tvo yngri þegar við vorum komnir upp í rúm á kvöldin. Með því að klípa og kreista á okkur kyn­færin. Það var mjög sárs­auka­fullt. Á svona stað voru ungir drengir í fjar­lægri sveit algjör­lega ein­angr­aðir og óvarðir.“

Árið 1956 fór Krist­björn í fyrsta sinn sem kaupa­maður austur í Árnes­sýslu og dvaldi þar tvö sumur.

„Þangað var ég sendur til að vinna og það langan vinnu­dag. Seinna sum­arið var ráðs­konan far­inn að hafa mik­inn áhuga á að fikta í mér. Þarna var ég varn­ar­laus í afskekktri sveit, en mér tókst að sleppa frá kon­unni,“ segir Krist­björn og heldur áfram að rifja upp erf­iða hluti úr æsku sinni.

„Þegar ég var orð­inn fjórtán ára varð ég oft fyrir áreitni kvenna á miðjum aldri; þær beittu ýmsum ráðum eins og að sýna sig og bjóða mér upp á hluti sem ég var ekki til­bú­inn að fara í, lík­lega vegna þess hversu feim­inn ég var. Það hefði bara þótt hneisa ef ég hefði verið að kvarta undan slíku.“

Upp úr þessu fór „ég að hafa áhuga fyrir stelpum og verða vitni að því að stelp­urnar höfðu miklu meiri áhuga fyrir „stæl­gæjum“ er sýndu af sér ofbeldi gagn­vart öllum sem þeir þorðu.“

Eðlilega hafa þessir atburðir markað líf Krist­bjarnar og það tók hann fimm­tíu ár að gera þessa atburði – nauðgun og annað kyn­ferð­is­of­beldi – upp og segja frá; fjöl­skyldu sinni og á opin­berum vett­vangi.

Krist­björn telur lít­inn vafa leika á því að saga hans sé ekki eins­dæmi, heldur saga margra stráka á Íslandi í gegnum tíð­ina:

„Ég er viss um að margir strákar á mínum aldri hafi svip­aða sögu að segja og ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi