Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bára: „Einn af hverjum sex dýralæknum hafa íhugað sjálfsvíg“

Bára: „Einn af hverjum sex dýralæknum hafa íhugað sjálfsvíg“

Nýverið sendi stjórn Dýra­lækna­fé­lags Íslands frá sér nið­ur­stöðu könn­unar sem félagið lét gera og sneri að líðan dýra­lækna í starfi sínu.

Nið­ur­stöð­urnar sýna að and­leg van­líðan og streita hjá dýra­læknum hér á landi er algeng

Formaður Dýra­lækna­fé­lags Íslands, Bára Eyfjörð Heim­is­dóttir, nefnir að Sótt­varna­stofnun Banda­ríkj­anna hafi rann­sakað starfs­­umhverfi og heilsu­tengda þætti á meðal dýra­lækna þar um langt ára­bil, og bætir við að „nið­ur­stöður rann­sókna benda til þess að banda­rískir dýra­læknar séu lík­legri til að upp­lifa and­lega van­heilsu en aðrar stéttir.“

Bára segir að einn af hverjum sex dýra­læknum í Banda­ríkj­unum „sögð­ust hafa íhugað sjálfs­víg ein­hvern tím­ann um ævina og nið­ur­stöður breskra og norskra kann­ana benda til hins sama en sam­kvæmt breskri rann­sókn eru dýra­læknar þrisvar til fjórum sinnum lík­legri til að falla fyrir eigin hendi en með­al­mann­eskjan og norskir dýra­læknar um tvö­falt lík­legri.“

Þetta eru slá­andi upp­lýs­ingar, en hvernig skyldi staðan í þessum málum vera hér á landi?

Í raun liggur ekki fyrir hvort staðan á Íslandi sé jafn hrika­leg og í öðrum löndum; í könnun Dýra­lækna­félags­ins sögð­ust 75 pró­sent svar­enda finna fyrir streitu­ein­kennum vegna mik­ils álags í starfi; 45 pró­sent bæði fyrir lík­am­legum og and­legum ein­kennum.

Bára segir að ástæð­urnar fyrir nið­ur­stöð­unni vera fjöl­þættar, og að „dýra­læknar vinna margs konar og ólík störf og í ólíkum geirum. Þjón­ustu­dýra­læknar í dreifð­ari byggðum lands­ins eru fáir og vakt­svæðin stór,“ segir hún og nefnir dæmi:

„Í dag eru dæmi um að dýra­læknar þurfi að keyra um 200 kíló­metra aðra leið við erf­iðar aðstæður. Þetta gerir það að verkum að þjón­ustan verður engan veg­inn nógu góð út frá sjón­ar­miði dýra­vel­ferðar. Skilyrði eins og þessi eru ekki til að trekkja ungt fólk að og því sífellt erf­ið­ara að fá fólk í þessar stöður.“

Þá er þess vert að geta að helm­ingur svar­enda könn­un­ar­innar taldi álag í starfi vera við þol­mörk en minni­hluti taldi álagið lítið eða í með­al­lagi. Og að álag í starfi virð­ist hafa auk­ist síð­ustu miss­eri en tæp sjö­tíu pró­sent svar­enda sögðu álagið hafa auk­ist, og einn af hverjum fimm sögð­ust hafa skipt um starf vegna álags á lífs­leið­inni og all­nokkrir hættu störfum alfarið.

Einnig spilar inn í stóru heild­ar­mynd­ina auk­inn fjöldi gælu­dýra hér á landi og óvægin umræða á sam­fé­lags­miðlum; óraun­hæfar kröfur við­skipta­vina; ein­mana­leiki; þreyta og mann­ekla.

Formaður Dýra­lækna­fé­lags Íslands, Bára Eyfjörð Heim­is­dóttir.

Bára segir að „streitu­valdar á meðal dýra­lækna eru til dæmis óvægin umfjöllun um störf þeirra á sam­fé­lags­miðlum, oft innan lít­illa hópa. Umfjöll­unin getur verið mjög óvægin og ósann­gjörn og teng­ist oftar gælu­dýra­geir­anum en land­bún­aði.“

Og hún segir líka að „mín skoðun er reyndar sú, því miður, að eft­ir­lits­störfin séu alltof oft töluð niður og talað nei­kvætt um þau. Dýra­vel­ferð­ar­mál sem eru okkur öllum hug­leikin geta oft verið erfið og miklar til­finn­ingar í gangi og þá kemur fyrir að dýra­læknar fái yfir sig skít og skömm þegar þeir eru að vinna vinn­una sína og reyna að gera sitt besta.“

Bára telur ein­sýnt að grípa verði í taumana og skoða hvað sé hægt að gera til að bæta líðan dýra­lækna, en sem stendur er „Dýra­lækna­fé­lag Íslands að líta til þess sem er verið að gera hjá nágranna­þjóðum okkar. Í Noregi í fyrra var farið í þriggja ára rann­sóknir á heilsu dýra­lækna og þá ekki síst and­lega heilsu og í ljósi hás hlut­falls sjálfs­víga í stétt­inni. Þrátt fyrir að ekki séu til tölur um sjálfs­víg dýra­lækna hér á landi höfum við tekið eftir því að fólk er tals­vert að detta úr starfi í veik­inda­leyfi.“

Heimild: bbl.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi