Þröstur Guðbjartsson, leikari og leikstjóri, er látinn 68 ára að aldri. Hann lést þann 17. júlí á Líknardeild Landspítalans, Kópavogi.
Þröstur sem fæddist 23. október árið 1952, hefur bæði leikið í og leikstýrt fjölmörgum leikritum. Hann hefur unnið fyrir Leikfélag Akureyrar, Borgarleikhúsið, Þjóðleikhúsið, Leikhús Frú Emilíu og starfað með hinum ýmsu leikhópum svo eitthvað sé nefnt. Þröstur hefur einnig leikið í kvikmyndum og var hann einna þekktastur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík, þar fór hann á kostum sem smáglæpamaðurinn Elli. Hann var mjög virtur og dáður bæði sem leikstjóri og leikari.
Blessuð sé minning Þrastar og vill Mannlíf votta aðstandendum hans samúð sína.

Sódóma Reykjavík er ein dáðasta íslenska kvikmyndin allra tíma

Þröstur í hlutverki Ella í Sódóma Reykjavík





















Athugasemdir