Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Steypan skapar gjá milli Dags og Rósu – Hafnfirðingar koma af fjöllum

Steypan skapar gjá milli Dags og Rósu – Hafnfirðingar koma af fjöllum

Deilur eru á milli meiri­hlut­ans í borg­ar­stjórn Reykja­víkur varð­andi mál­efni mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða sem er stað­sett í Reykja­vík og er í eigu borg­ar­innar. Fyr­ir­hug­aður er flutn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins til Hafn­ar­fjarðar, og þá spruttu upp enn meiri deilur; svo virt­ist sem meiri­hluti bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar, undir for­ystu bæj­ar­stjór­ans Rósu Guð­bjarts­dóttur, hafi ekki haft grænan grun um að Reykja­vík­ur­borg væri að færa mal­bik­un­ar­stöð­ina til Hafn­ar­fjarðar.

Íbúar á Ásvöllum í Hafn­ar­firði vilja alls ekki fá Höfða til Hafn­ar­fjarðar og nú er í gangi und­ir­skrift­ar­söfnun gegn gjörn­ingnum.

Mannlíf náði tali af Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra Reykja­víkur og spurði hann út í þetta „mal­bik­un­ar­mál“ sem mikið er í umræð­unni þessi miss­erin.

„Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði er sjálf­stætt fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar og með sjálf­stæða stjórn. Félagið hefur und­ir­búið flutn­ing und­an­farin miss­eri og skoðað fjöl­marga kosti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir Dagur og bætir við að „fyr­ir­tækið hefur lagt sig fram um að vanda til verka. Lóðin sem um ræðir í Hafn­ar­firði fellur vel að rekstr­inum að mati fyr­ir­tæk­is­ins, enda hefur þar verið rekin mal­bik­un­ar­stöð und­an­farin ár. Samkvæmt mínum upp­lýs­ingum er stöð Höfða sam­bæri­leg þeirri sem fyrir var, en er nýrri og mengar minna.“

Dagur bendir á að kaupin á lóð­inni eru „gagn­vart fyr­ir­tæk­inu sem var þarna fyrir en ekki gagn­vart sveit­ar­fé­lag­inu. Í raun er því um hefð­bundin fast­eigna­við­skipti að ræða sem almennt koma ekki inn á borð kjör­inna full­trúa.“

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn um málið til Reykja­vík­ur­borgar og segir Dagur að „vegna fyr­ir­spurn­ar­innar hef ég aflað upp­lýs­inga um það. Þegar samn­ingar um lóð­ina  í Hafn­ar­firði voru í aug­sýn í við­ræðum fyr­ir­tækj­anna tveggja ósk­uðu full­trúar mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða eftir fundi með full­trúum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar.

Lögmaður fyr­ir­tæk­is­ins sendi beiðni um slíkt til lög­manns bæj­ar­ins 17. maí sem benti á sviðs­stjóra umhverf­is­sviðs bæj­ar­ins. Haldinn var fundur 27. maí með sviðs­stjóra umhverf­is­sviðs Hafn­ar­fjarðar þar sem fram kom að starf­semi Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar félli að skipu­lagi á við­kom­andi svæði og að gerðar yrðu sömu kröfur til Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar Höfða og þeirra sem fyrir var. Þau skil­yrði treystir Mal­bik­un­ar­stöðin sér til að upp­fylla. Rekstr­ar­leyfi hennar var til árs­ins 2035. Samn­ingar voru kláraðir í kjöl­farið og kaupin eru gengin í gegn,“ segir Dagur og bendir á að fyr­ir­tæki borg­ar­innar eigi það flest sam­eig­in­legt að starf­semi þeirra nær til alls höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og oft víðar:

„Nægir að nefna Orku­veitu Reykja­víkur, Faxa­flóa­hafnir og byggða­sam­lögin Strætó og Sorpu; öll í sam­eign borg­ar­innar og mis­mun­andi ann­arra sveit­ar­fé­laga. Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði er einnig með starf­semi um allt svæðið þótt hún sé alfarið í eigu borg­ar­innar. Ég veit fyrir víst að Mal­bik­un­ar­stöðin ætlar að standa vel að verki og von­ast eftir góðum sam­skiptum við Hafn­ar­fjarð­arbæ og aðra í tengslum við þetta mál.“

Það virð­ist því ljóst sam­kvæmt orðum Dags að innan Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar hafi verið til staðar full vit­neskja um málið, þvert ofan í það sem til dæmis Rósa Guð­bjarts­dóttir bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar hefur sagt, til að mynda á fundi bæj­ar­stjórnar:

„Bæjarráð – 3577. Haldinn í fund­ar­sal bæj­ar­ráðs, Strand­götu 6, 01.07.2021.

2106621 – Höfði, mal­bik­un­ar­stöð. Til umræðu. Bæjarráð lýsir yfir furðu sinni með þau áform sem fréttir ber­ast af um að Mal­bik­un­ar­stöðin Höfði hygg­ist flytja starf­semi sína til Hafn­ar­fjarðar. Bæj­ar­stjóra er falið að ræða við borg­ar­stjór­ann í Reykja­vík vegna þessa og afla upp­lýs­inga um fyr­ir­ætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins, áhrif á umhverfi- og umferð á svæð­inu og fleira sem mál­inu teng­ist.“

Það er í það minnsta deg­inum ljós­ara nú að lög­maður Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, Ívar Bragason, vissi allt um málið, sem og sviðs­stjóri umhverf­is­sviðs Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, Sigurður Har­alds­son.

Ívar lög­maður (að ofan) og Sigurður sviðs­stjóri vissu um málið en virð­ast ekki hafa greint Rósu bæj­ar­stjóra frá því.

Eins og fram kemur í fund­ar­gerð­inni hér að ofan, virð­ist Rósa bæj­ar­stjóri koma algjör­lega af fjöllum varð­andi mál Höfða á fund­inum, þrátt fyrir vit­neskju Ívars og Sigurðar, og verður það að telj­ast heldur óvenju­legt að svo hátt­settir aðilar innan stjórn­sýslu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar hafi af ein­hverjum ástæðum ákveðið að upp­lýsa ekki yfir­mann sinn, Rósu bæj­ar­stjóra, um und­ir­rit­aðan samn­ing við Reykja­vík­ur­borg þess efnis að mal­bik­un­ar­stöðin Höfði myndi flytja starf­semi sína til Hafn­ar­fjarðar; nánar til­tekið til Ásvalla, sem er stórt, mjög vax­andi og afar fjöl­skyldu­vænt hverfi í Hafn­ar­firði.

Það er líka ljóst af orðum Dags að Reykja­vík­ur­borg hefur ekki haft neitt að fela í þessu máli – öll gögn er varða það eru uppi á borð­inu og í raun virð­ist málið mjög ein­falt, en ekki við fyrstu sýn.

Í byrjun, þegar und­ir­skrift­ar­söfn­unin var sett af stað, virt­ist Rósa bæj­ar­stjóri ekk­ert hafa vitað af mál­inu, en eins og fram kom í grein Mannlífs um málið telja flestir í minni­hluta bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar afar hæpið að æðsti og valda­mesti ein­stak­lingur Hafn­ar­fjarðar hafi ekki vitað um málið þrátt fyrir und­ir­rit­aðan samn­ing og þá stað­reynd að lög­maður bæj­ar­ins og sviðs­stjóri vissu um málið. Þess vegna verður að spyrja þeirrar spurn­ingar, hver er að segja satt og hver er að segja ósatt?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi