Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Leikmönnum Everton stranglega bannað að tala við Gylfa

Leikmönnum Everton stranglega bannað að tala við Gylfa

Samkvæmt heim­ildum enska fjöl­mið­ils­ins Daily Star eru – eins og stendur – fyrrum liðs­fé­lagar Gylfa Sig­urðs­sonar afar óánægðir með stöðu mála í kjöl­far frétta um Gylfa, sem grun­aður er um ósæmi­legt athæfi gagn­vart ólög­ráða stúlku. Ekkert hefur þó verið sannað í mál­inu og Gylfi liggur undir grun; hefur ekki verið sak­felldur fyrir eitt né neitt, nema af dóm­stóli göt­unnar.

Daily Star heldur því blákalt fram að liðs­fé­lagar Gylfa vilji að hul­unni sé svipt af nafni hans í fjöl­miðlum á Bret­landseyjum, en hér á landi var mbl.is fyrst til að birta nafn Gylfa opin­ber­lega þótt málið sé enn til rann­sóknar, og Gylfi sak­laus uns sekt sann­ast, ef það ger­ist á annað borð.

Breskir fjöl­miðlar hafa þó ekki gengið eins langt og mbl.is gerði fyrstur miðla í heim­inum, að nafn­greina grun­aðan mann, en þó er það ekki af ein­hverjum mann­úð­ar­á­stæðum; fyrst og síð­ast er ástæðan af laga­legum toga.

Engu að síður eru leik­menn Everton „virki­lega æstir og þeir eru mjög óánægðir með að hafa sog­ast inn í mál Gylfa sem er til rann­sóknar“ hefur Daily Star eftir heim­ild­ar­manni sínum, sem bætir við að „reynd­ustu leik­menn félags­ins hafa fengið mörg sím­töl á öllum tímum sól­ar­hrings­ins frá, til að mynda, öðrum leik­mönnum ensku úrvals­deild­ar­innar; allir vilja vita meira og halda virki­lega að liðs­fé­lagar Gylfa lumi á fréttum um málið og séu til­búnir að deila upp­lýs­ingum um þetta sorg­lega og við­kvæma mál, sem leik­menn Everton eru svo sann­ar­lega ekki að fara að gera, enda vita þeir ekki meira um málið en almenn­ingur.“

Fabian Delph leik­maður Everton hefur farið hvað verst út úr þessu máli, en sú saga fór á flakk í netheimum að hann væri sá leik­maður sem hand­tek­inn var vegna gruns um barn­a­níð.

Í lokin nefnir síðan Daily Star eftir heim­ild­ar­manni sínum „að einn leik­maður Everton hafi verið fokvondur eftir að hafa fengið fimm sím­hring­ingar frá Gylfa, en sím­hring­ing­arnar áttu sér stað eftir að for­ráða­menn Everton skip­uðu leik­mönnum sínum að hafa alls ekki sam­band við Gylfa á meðan á rann­sókn máls­ins stendur yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi