Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gunnar Smári: „Ísland er oft líkara helsjúkri meðvirkri fjölskyldu en opnu lýðræðissamfélagi“

Gunnar Smári: „Ísland er oft líkara helsjúkri meðvirkri fjölskyldu en opnu lýðræðissamfélagi“
Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar smári líkt og Ragnar Freyr læknir vandar stjórn­völdum ekki kveðj­urnar vegna fram­göngu sinnar gegn heims­far­aldr­inum Covid-19. Gunnar tjáir sig um málið bæði á Facebook síðu sinni og í pistli sem birt­ist á Visi.is.

Gunnar Smári segir að hann hafi skrifað nokk­urs konar frétta­skýr­ingu um stefnu rík­is­stjórn­ar­innar og stöð­una í sótt­vörnum: „Var orð­inn leiður á að hlusta á langar frétta­skýr­ingar ráð­herr­anna sjálfra í öllum frétta­tímum. Hvar nema í ein­ræð­is­ríkjum er ráð­herrum falið að flytja allar fréttir af mik­il­væg­ustu mál­unum? Í löngum sjálf­hælnum ein­ræðum. Ísland er oft lík­ara hel­sjúkri með­virkri fjöl­skyldu en opnu lýð­ræð­is­sam­fé­lagi, við sitjum löngum stundum undir ein­ræðum drukk­ins fjöl­skyldu­föður sem talar um að hvað hann er snjall, elsk­aður og dáður. Þessi grein and­mælir þessum ræðum“.

Pistill Gunnars Smára

Í pisli sínum fer Gunnar Smári á mjög ítar­legan hátt í gegnum stað­reyndir sem liggja fyrir tengdar heims­far­aldr­inum. Pistill Gunnars Smára hefst á þessum orðum: „Í dag eru 500 dagar síðan að fyrst voru settar á sam­komu­tak­mark­anir á Íslandi vegna kór­ónafar­ald­urs­ins. Og þetta er líka fyrsti dag­ur­inn í nýjum tak­mörk­unum. Í gær var síð­asti dag­ur­inn af 29 dögum án sam­komu­tak­mark­ana, einu dag­arnir af þessum 500 sem Íslend­ingar hafa verið lausir við sam­komu­tak­mark­anir og aðrar heft­andi sótt­varnir. Það er skilj­an­legt að mörgum sé um og ó. Þrátt fyrir síend­ur­teknar full­yrð­ingar ráð­herr­anna um að þeir hafi full tök á ástand­inu er raunin allt önnur“.

Ísland og Nýja Sjáland

Gunnar smári ber saman Nýja Sjáland og Ísland í bar­átt­unni við heims­far­ald­ur­inn og segir að árangur þar í landi sé 69 til 74 pró­sent á meðan árang­ur­inn hér á landi sé ein­ungis 6 pró­sent. „Til að glöggva okkur á sam­an­burð­inum getum við sagt að á Nýja Sjálandi hafi 69-74% dag­anna verið án tak­mark­ana en aðeins innan við 6% á Íslandi. Munurinn er eig­in­lega skelfi­legur“.

„Ástæðan fyrir þessum mun er að á Nýja Sjálandi hafa sótt­varnir verið með hefð­bundnu sniði, því sem reynt hefur verið og mótað í gegnum ald­irnar. Harðar sótt­varnir á svæðum þar sem far­sóttin geisar en síðan frjálst venju­legt líf þess á milli varið af hefð­bund­inni 14 daga sótt­kví á landa­mær­unum. Almenn­ingur hefur stutt þessa stefnu heils­hugar. Stjórn­völd hafa starfað í takt við vilja almenn­ings. Þau sem hafa mót­mælt eru færri á Nýja Sjálandi en þau sem hafa mætt á Aust­ur­völl til að mót­mæla sótt­vörnum“ segir Gunnar Smári. Hann segir svo frá því að Félags­vís­inda­stofnun hafi fram­kvæmt könnun í apríl, sem kann­aði hvaða stefnu í sótt­vörnum það kysi og nið­ur­staðan var sú að flestir kusu stefnu sem lík­ist Nýsjá­lensku leið­inni. 92 pró­sent vildi harðar sótt­varn­ar­að­gerðir til þess að verja dag­legt líf. „Þetta er hins vegar ekki sú stefna sem íslensk stjórn­völd hafa rekið. Sótt­varn­ar­yf­ir­völd virt­ust reyndar komin á þessa línu síðla vetrar en sú útgáfa sem kom frá rík­is­stjórn og Alþingi virk­aði ekki. Og um leið og hertar aðgerðir voru kynntar lýstu ráð­herrar því yfir að þær yrðu aft­ur­kall­aðar fljót­lega“.

Vill að íslenska þjóðin fái afsökunarbeiðni

Gunnar Smári segir að rík­is­stjórnin skuldi íslensku þjóð­inni afsök­un­ar­beiðni: „Og hvað gera ráð­herr­arnir? Koma þeir til þjóð­ar­innar og biðja hana afsök­unar? Nei, þeir koma fram og segja þjóð­inni að nú þurfi hún enn og aftur að axla byrð­arnar af kol­rangri sótt­varn­ar­stefnu sem rekið er gegn aug­ljósum meiri­hluta­vilja þjóð­ar­innar“.

Pistill Gunnars Smára er mjög vel útfærður, ítar­legur og á manna­máli. Hér má sjá hann í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi