Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að bera grímu eða ekki bera grímu það er stóra spurninginn – Ráðuneytið skerpir á reglunum

Að bera grímu eða ekki bera grímu það er stóra spurninginn – Ráðuneytið skerpir á reglunum

Mikil ringul­reið hefur verið varð­andi það hvar og hvenær eða jafn­vel hvort, sé skylda að bera grímu. Sumar versl­anir hafa skikkað sína við­skipta­vini til þess að vera með grímur. Nú hefur ráðu­neytið sent út frá sér yfir­lýs­ingu sem á að leið­rétta allan mis­skiln­ing varð­andi málið.

Samkvæmt regl­unum virð­ist það vera fólks­ins að meta ástandið hverju sinni, jafn­vel geð­þótta­á­kvörðun í mörgum til­fellum, sem ein­hverjum gæti þótt óvið­un­andi. Þórólfur sótt­varn­ar­læknir hefur þá sagt að það hefði verið skarpara að hafa tveggja metra reglu en það lagði hann einmitt til að yrði gert en rík­is­stjórnin fór ekki eftir hans til­mælum hvað það varðar.

Ragnar Þór er ekki sáttur

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR hefur sett fram gagn­rýni á það að ekki sé verið að vernda fram­línu­fólk í versl­unum og hvetur hann versl­un­ar­eig­endur til þess að setja tveggja metra regl­una upp á sitt eins­dæmi til verndar síns starfs­fólks. í færslu á Facebook síðu sinni segir Ragnar: „Síð­ast­liðið ár hefur verið versl­un­ar­fólki afar erfitt og krefj­andi á tímum Covid. Það er í raun óskilj­an­legt hversu lítið til­lit hefur verið tekið til mik­il­vægi fram­línu­starfa eins og í verslun. Það er varla hægt að gera sér í hug­ar­lund hvernig staðan væri ef almenn­ingur hefði ekki nær óheftan aðgang að nauð­synja­vöru og annarri þjón­ustu. Á meðan stjórn­völd völdu starfs­stéttir í for­gang í bólu­setn­ingar var ekk­ert hugsað um starfs­fólk í versl­unum þrátt fyrir að VR hafi ítrekað bent stjórn­völdum á mik­il­vægi þess að verja okkar hópa betur. Ég hef miklar áhyggjur af nýrri bylgju far­ald­urs­ins og skiln­ings­leys­inu á stöðu þeirra sem standa vakt­ina í verslun. Það er því ekki annað í stöð­unni að við sem sam­fé­lag tökum málin í eigin hendur. Sýnum fram­línu­fólki í verslun þá virð­ingu sem það á skilið. Bíðum ekki eftir frek­ari fyr­ir­mælum og setjum upp grímuna og not­umst við 2 metra regl­una þegar við förum út í búð. Þannig getum við best þakkað þeim hetjum fyrir sem sjá okkur fyrir nauð­synja­vörum og annarri þjón­ustu á meðan þessi bylgja gengur yfir. Vin­sam­lega deildu og taktu þátt í að bæta öryggi fram­línu­fólks í verslun“.

Á vef ráðu­neyt­is­ins kemur eft­ir­far­andi fram:

Tryggja skal að minnsta kosti 1 metra á milli ein­stak­linga sem ekki eru í nánum tengslum, til að mynda á sam­komum, vinnu­stöðum, versl­unum, söfnum og í allri annarri starf­semi, hvort sem er innan- eða utandyra.

Grímu­skylda er þar sem ekki er unnt að við­halda 1 metra nálægðartakmörk­unum og þar sem hús­næði er illa loft­ræst. Þetta á til að mynda við um heil­brigð­is­þjón­ustu, versl­anir, söfn, inn­an­lands­flug og -ferjur, almenn­ings­sam­göngur, leigu­bif­reiðar og hóp­bif­reiðar,í verk­legu öku­námi og flug­námi, starf­semi hár­greiðslu­stofa, snyrti­stofa, nudd­stofa, húð­flúr­stofa, hunda­snyrti­stofa, sól­baðs­stofa og í annarri sam­bæri­legri starf­semi.

Grímu­skylda er í gildi fyrir áhorf­endur á íþrótta­við­burðum og sviðs­list­ar­við­burðum á borð við leik­sýn­ingar, bíó­sýn­ingar og tón­leika.

Börn fædd 2006 og síðar eru und­an­þegin reglum um grímu­skyldu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi