Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anton Sveinn synti í Tókýó með sorg í hjarta eftir sjálfsvíg föður síns: „Sofðu rótt, ég elska þig“

Anton Sveinn synti í Tókýó með sorg í hjarta eftir sjálfsvíg föður síns: „Sofðu rótt, ég elska þig“

Anton Sveinn McKee er ein­fald­lega einn allra besti sund­maður sem Ísland hefur af sér alið. Hann fór á sína fyrstu Ólymp­íu­leika í London árið 2012 aðeins nítján ára gam­all og hefur síðan þá verð lang­besti sund­maður Íslands.

Anton Sveinn tók þátt í Ólymp­íu­leik­unum í Tókýó sem eru enn í gangi, en frammi­staða hans var undir þeim mark­miðum sem hann hafði sett sér sjálfur, en allt þetta ár hefur verið erf­iður tími fyrir Anton Svein, því faðir hans lést 17. des­em­ber í fyrra.

Eftir að ljóst var að Anton Sveinn hafði ekki náð sínum mark­miðum sagði hann í sam­tali við íþrótta­deild RÚV að lík­lega hafi hann spennt bog­ann of hátt og hefði ekki verið nægi­lega raun­sær miðað við þær erf­iðu aðstæður og sorg sem hann hefur glímt við í nokkurn tíma:

„Ég er jákvæður og hvergi nærri hættur þótt þetta hafi ekki gengið upp að þessu sinni,“ sagði Anton og bætti við: „Leiðin liggur bara upp á við hjá mér núna.“

Þessi glæsi­legi íþrótta­maður og heil­steypti per­sónu­leiki sem skarað hefur fram úr í sund­inu í langan tíma sagði að „maður var búinn að und­ir­búa sig, því miður, undir það að pabbi væri að fara bráð­lega,“ en faðir Antons Sveins, Róbert Ólafur Grétar McKee, greind­ist með hinn hræði­lega tauga­hrörn­un­ar­sjúk­dóm MND, í des­em­ber árið 2019, og á innan við ári lagði sjúk­dóm­ur­inn hann að velli.

MND er ólækn­andi sjúk­dómur en mis­jafnt er hversu hratt hann leggst á fólk, en í til­viki Róberts föður Antons Sveins, ágerð­ist þessi hræði­legi sjúk­dómur afar hratt:

„Pabbi var greindur með MND og hann fór mjög hratt frá okkur; hann tók sitt eigið líf og það voru miklar og erf­iðar til­finn­ingar hjá fjöl­skyld­unni frá því hann greind­ist og þangað til hann lést. Ég gaf mér tíma til að syrgja og takast á við sorg­ar­ferlið, en ég held að miðað við þessar aðstæður hafi ég gert óraun­hæfar vænt­ingar til sjálfs míns varð­andi Ólymp­íu­leik­ana; núna átta ég mig á því að það að koma hingað til Tókýó og ætla að skara fram úr eftir þessa erf­iðu tíma var ekki raun­hæft mark­mið hjá mér,“ sagði topp­mað­ur­inn Anton Sveinn sem á afar fal­legar minn­ingar um föður sinn:

„Ég væri ekki keppn­is­mað­ur­inn sem ég er án þess upp­eldis og kennslu sem ég fékk frá pabba,“ sagði hann í við­tali við Fjarð­ar­póst­inn á sínum tíma:

„Hann var alltaf mik­ill íþrótta­maður sjálfur og hvatti mig áfram. Ég mun synda fyrir hann áfram.“

Eft­ir­nafnið „McKee kemur frá föður mínum, Róberti Ólafi Grétari McKee, sem var hálfur Banda­ríkja­maður. Ég er því einn fjórði Kani, en eins íslenskur og ég get orðið; inn­fæddur Gaflari; fæddur og upp­al­inn í Hafn­ar­firði.“

Það lýsir því vel hversu mik­ill kær­leikur var á milli feðganna Antons Sveins og Róberts þegar lesin eru minn­ing­ar­orð sem son­ur­inn skrif­aði til föður síns:

„Elsku pabbi minn. Ég vildi ég hefði getað sagt þessi orð við þig, þér við hlið á þinni hinstu stundu. Það er vont að vita að þú hafir farið í sum­ar­landið án þess að fá að heyra mig segja við þig einu sinni enn hversu mikið ég leit upp til þín, hversu mikið ég elskaði þig og hversu vænt mér þótti um öll þau skipti sem þú kenndir mér á lífið, þótt ég hafi stundum streist á móti.

Ég er þakk­látur fyrir allar þær stundir sem við áttum saman og fyrir alla þá kennslu sem þú veittir mér í gegnum lífið, hún gerði mig að þeim manni sem ég er í dag og ég á þér allt að þakka sem mér hefur tek­ist að áorka í líf­inu. Þú kenndir mér að gef­ast aldrei upp, sama hversu erfitt verk­efni lá fyrir eða óhugs­andi mark­mið þurfti að vera sett. Þú hafðir alltaf trú á mér og gafst aldrei upp á mér.

Eftir sigr­ana kennd­irðu mér að fara ekki fram úr mér, melta sig­ur­inn og horfa svo á hvaða mark­mið tækju við næst. Ég gleymi því aldrei hvað ég var glaður að sjá þig fyrir utan sund­laug­ina eftir 200 m bring­una á EM 2019 og eftir að hampa fram­förum í smá­stund var umræðan strax komin í hvað hefði mátt fara betur og hvernig við ætl­uðum að bæta það á æfingum.

Allur sá árangur sem ég náði var þér að þakka. Þú vaktir mig alltaf klukkan fimm á morgn­ana og keyrðir mig á morg­un­æf­ingu, sást til þess að ég færi ekki fram úr mér með auka­æf­ingum eða álíka vit­leysu, að ég nærð­ist vel og hjálp­aðir við heima­lær­dóm­inn svo ég gæti farið fyrr að sofa. Minn árangur var og er þökk sé þínum fórnum og kennslu á lífið.

Ég verð alltaf þakk­látur fyrir það sem þú hefur gefið mér á lífs­leið­inni og ég vona að ég geti verið jafn góður faðir og þú varst í fram­tíð­inni. Þín verður sárt saknað og það verður erfitt að halda áfram án þinna ráð­legg­inga, en ég mun gera mitt besta til að halda heiðri þínum á lofti í öllu sem ég geri. Hlakka til að synda með þér í Tókýó.

Sofðu rótt, ég elska þig.

Þinn,

Anton Sveinn McKee.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi