Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sara Dögg spyr „hvernig við ætlum að lifa með heimsfaraldri og hvert sé plan ríkisstjórnarinnar?“

Sara Dögg spyr „hvernig við ætlum að lifa með heimsfaraldri og hvert sé plan ríkisstjórnarinnar?“
Sara Dögg.

Bæj­ar­full­trú­inn og odd­viti Garða­bæj­ar­list­ans, Sara Dögg Svan­hild­ar­dóttir, ritar áhuga­verðan pistil, þar sem hún spyr hvort rík­is­stjórnin hafi ein­hverja fram­tíð­ar­sýn og áætl­anir varð­andi Covid 19 fyrir kom­andi vetur.

„Eftir versl­un­ar­manna­helgi fara margir að hugsa til hausts­ins. Fólk snýr aftur til vinnu, það fer að verða kerta­ljósa­hæft og rútínan tekur aftur yfir. Sumir leik­skólar opna að nýju eftir sum­ar­frí í þeirri viku og und­ir­bún­ingur grunn­skól­anna er að hefj­ast,“ segir Sara Dögg og bætir við:

„Við, sem starfað höfum við skóla­starf, þekkjum eft­ir­vænt­ing­una og gleði­til­finn­ing­una sem fylgir því að mæta til leiks og und­ir­búa nýtt skólaár. Haust eftir haust. Hitta nýja nem­endur eða heilsa þeim gömlu að nýju. Þetta eru töfr­arnir sjálfir.“

En að mati Söru Daggar er raun­veru­leik­inn tals­vert frá­brugð­inn þeim sem við höfum átt að venj­ast:

„Þetta haustið eru öll sem koma að skóla­starfi hins vegar í tölu­verðri óvissu um upp­haf skóla­árs­ins,“ segir hún og bætir við:

„Ísland er nú statt í stærstu bylgju heims­far­ald­urs­ins. Sem betur fer er stór hluti þjóð­ar­innar bólu­settur. En það er ekki enn ljóst hvaða áhrif bólu­setn­ingin hefur. Það er ljóst að bólu­settir sýkj­ast og smita áfram, þó afleið­ing­arnar fyrir bólu­setta virð­ist væg­ari.

Í þess­ari miðju bylgju, með skóla­starf hinum megin við hornið, hafa stjórn­völd ekki lagt fram neinar áætl­anir um hvernig á að takast á við bylgj­una innan skóla­kerf­is­ins. Eða áætl­anir um hvernig skól­arnir eiga að lifa með veirunni.“

Sara Dögg nefnir að „gefið hefur verið út að starfs­fólk skól­anna, sem flestir fengu eina Jensen sprautu, muni í ágúst bjóð­ast að koma í „búst“ til að verða klárt í slag­inn. En það hefur ekk­ert komið fram um fram­tíð­ar­sýn­ina; en það er alveg ljóst að það þarf að gera ráð­staf­anir. Veiran svífur um og stingur sér niður, að því er virð­ist hvar sem er. Hún er ekki að gufa upp og við munum þurfa að lifa með henni enn um sinn,“ segir Sara Dögg og spyr í kjöl­farið hvert sé „plan rík­is­stjórn­ar­innar?“

„Ætla stjórn­völd að miða við að skóla­kerfið hrökkvi eins og ekk­ert sé aftur í Covid-gír­inn? Með fjar­kennslu og börn og ung­menni sem dúsa heima. Á að við­halda félags­legri ein­angrun sem við ótt­umst öll að hafi langvar­andi nei­kvæðar afleið­ingar. Eða eru ein­hver önnur plön í kort­unum? og hver eru þau þá?“

Sara Dögg seg­ist vita til þess að „for­eldrar og starfs­fólks skóla­kerf­is­ins eru margir áhyggju­fullir yfir stöð­unni og gangi mála; for­eldrar hafa áhyggjur af börnum sínum – hvort þau muni smit­ast í skól­unum þegar börnin og ung­mennin hóp­ast aftur saman eftir sum­ar­frí.“

Og bendir á að „þó þau veik­ist síður en aðrir, þá bera þau samt smit sem getur líka borist til bólu­settra starfs­manna skól­anna. Starfs­fólk leik- og grunn­skóla hefur unnið algjört þrek­virki fram til þessa í þágu sam­fé­lags­ins á sama tíma og því hefur stafað ógn af heims­far­aldr­inum.Þær aðstæður mega aldrei telj­ast sjálf­sagðar.“

Sara Dögg leggur áherslu á að „við getum ekki sætt okkur við að ekki séu lagðar fram skýrar áætl­anir, þannig að ein­hver vissa ríki um það sem koma skal. Einhver vissa önnur en að skóla­starf fari núna af stað í mik­illi óvissu og óör­yggi vegna heims­far­ald­urs­ins, meðal starfs­fólks, barna og ung­menna sem og for­eldra þeirra. Sú óvissa og óör­yggi mun lifa á meðan stjórn­völd leggja ekki fram sýn og plön um hvernig við ætlum að lifa með heims­far­aldri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi