Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafró haft af Íslandi hundruð milljarða og fiskveiðikerfi okkar er kerfi sóunar og spillingar

Hafró haft af Íslandi hundruð milljarða og fiskveiðikerfi okkar er kerfi sóunar og spillingar

Arthur Bogason for­maður Lands­sam­bands smá­báta­eig­enda er myrkur í máli varð­andi fisk­veiði­kerfið hér á landi og segir að nú er „svo er komið í umræð­unni um fisk­veiði­kerfið að telja má á fingrum ann­arrar handar þá sem dirfast að gagn­rýna það.“

Hann nefnir að til langs tíma hafi hags­muna­sam­tök stór­út­gerð­ar­innar, í sam­vinnu við opin­bera stjórn­sýslu og fleiri, „breitt þann boð­skap út um heims­byggð­ina að Íslend­ingar hafi fundið upp og sett á fót fisk­veiði­kerfi sem sé í senn rekið af ábyrgð með sjálf­bærni að leið­ar­ljósi og því öllum til eft­ir­breytni.

Til að gera langa sögu stutta:

Settar eru á fót syk­ur­húð­aðar ráð­stefnur þar sem fræði­menn mæra og dásama kvóta­kerfið.

Í mínum huga er þetta ófyr­ir­gef­an­legur og and­styggi­legur blekk­ing­ar­leikur. Hvernig væri að þessir sömu aðilar upp­lýsi um „árang­ur­inn“ frá 1984 varð­andi upp­bygg­ingu þorsk­stofns­ins? Ástand humar­stofns­ins? Ástand loðnu­stofns­ins? – svo fátt eitt sé talið,“ segir Arthúr  sem nefnir að „árið 1984 ráð­lagði Haf­rann­sókna­stofnun 220 þús­und tonna veiði af óslægðum þorski. 37 árum síðar leggur stofn­unin til 222 þús­und tonna veiði, en ætti í raun að leggja til 188 þús­und tonn.

Hvers vegna? Jú, vegna fárán­legs ákvæðis um „sveiflu­jöfnun“ sem kemur reikni­módeili Hafró í sjálfu sér ekk­ert við; stað­reyndin er sú að Hafró hefur rekið nýt­ing­ar­stefnu sem er löngu kol­fallin á próf­inu og þessi þrá­kelni Hafró hefur að öllum lík­indum haft af þjóð­inni hund­ruð millj­arða í gjald­eyr­is­tekjum frá árinu 1984.“

Hann segir að til lands­ins sé á hverju ári „boðið vel mein­andi og fróð­leiks­þyrstu fólki um vel­ferð veiði­manna og fisk­verka­fólks á eigin heima­svæðum – til dæmis Afríku – sem við hér í norðr­inu tölum hik­laust niður til með því að kalla „van­þróuð“ ríki – og þá „van­þróað fólk,“ Vænt­an­lega.“

Arthur segir að yfir þessu „van­þró­aða“ fólki „er messað um stór­kost­legan árangur Íslend­inga í fisk­veiði­stjórnun og þeim ráð­lagt að yfir­færa dásemd­ina heim til sín. Í þessu sam­bandi rifja ég upp sögu sem mér var sögð fyrir löngu:

Í einu ríkj­anna við Vest­ur­strönd Afríku var ákveðið að setja á fram­selj­an­legt kvóta­kerfi í humar­veiðum. Veið­arnar fóru og fara vænt­an­lega enn þannig fram að menn vaða út frá strönd­inni og kafa eftir bráð­inni. Einn stærsti kvót­inn lenti í fangi rak­ara inni í Mið-Afríku sem aldrei hafði séð sjó. Sjálf­sagt var það til­viljun að rak­ar­inn var náfrændi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herr­ans,“ segir Arthur og bætir við:

„Til langs tíma hafa hags­muna­sam­tök stór­út­gerð­ar­innar, í sam­vinnu við opin­bera stjórn­sýslu og fleiri, breitt þann boð­skap út um heims­byggð­ina að Íslend­ingar hafi fundið upp og sett á fót fisk­veiði­kerfi sem sé í senn rekið af ábyrgð með sjálf­bærni að leið­ar­ljósi og því öllum til eft­ir­breytni.“

Og bætir við að það „að ráð­leggja fólki frá slíkum ríkjum og svæðum að taka upp fram­selj­an­legt, ein­stak­lings­bundið kvóta­kerfi, þar sem spill­ingin er botn­laus í stjórn­sýsl­unni, er ótrú­leg ósvífni. Þeir Íslend­ingar sem þar eiga hlut að máli ættu að skamm­ast sín. Þeir vita mæta­vel og jafn­vel betur er margur hvert fram­haldið er.“

„Stað­reyndin er sú að við Íslend­ingar höfum ekki fundið upp neinar töfra­lausnir varð­andi nýt­ingu og umgengni fiski­miða,“ segir Arthur og heldur áfram:

„Ekkert af því sem Hafró lof­aði í upp­hafi varð­andi „upp­bygg­ingu“ þorsk­stofns­ins, hvað þá ann­arra stofna, hefur stað­ist. Frá því Hafró var fært alræð­is­vald hvað þetta varðar er ekki hægt að benda á eitt ein­asta dæmi um „upp­bygg­ingu“ eins ein­asta fiski­stofns við landið sem heyrir undir afla­mark.“

Arthuri er ekki skemmt:

„Kald­hæðnin ríður ekki við einteym­ing. Sá stofn sem „stækk­aði“ mest á milli áranna 2020 til 2021 var hrogn­kelsa­stofn­inn – grá­sleppan. Hún er í sókn­ar­marki.“

Og Arthur er ekki hrif­inn af því sem heitir afla­marks­kerfi:

„Með því að úthluta veiði­heim­ildum í magni (kg) ger­ist það óhjá­kvæmi­lega. Stór hluti þeirra sem sækja miðin velja þau kíló úr sjó sem skila mestum verð­mætum. Lái þeim hver sem vill. Þetta liggur í hlut­ar­ins eðli.“

Og „hér er smá mynd­lík­ing: ef X fjölda ein­stak­linga yrði hleypt inn í stór­markað eftir mat­vælum þeim að kostn­að­ar­lausu og við­kom­andi gefið fyr­ir­fram að hann mætti tína saman ákveðið magn (kg), er lík­legt að við­kom­andi kæmi til baka með kart­öflur og lauk á til­boði til að upp­fylla „kvót­ann“?“ spyr Arthur og segir að „þetta vanda­mál end­ur­spegl­ast í ákæru Fiski­stofu gagn­vart Bergvík GK 22, sem var stað­inn að grófu og óaf­sak­an­legu brott­kasti á fiski fyrir örfáum dögum. Í ljósi þeirrar kæru Fiski­stofu ætla ég að leyfa mér að giska: Fiski­stofa hefur undir höndum upp­lýs­ingar um brott­kast á mið­unum sem dregur upp gjör­ó­líka mynd af því sem við viljum telja þjóðum heims – og sjálfum okkur – trú um.

Brott­kast á Íslands­miðum hefur við­geng­ist löngu fyrir vél­væð­ingu fiski­skipa­flot­ans. Eftir vél­væð­ing­una jókst þetta stór­kost­lega,“ segir Arthur og heldur því fram fullum fetum að
„brott­kast hefur alla tíð verið stundað í fisk­veiðum. Ekki bara hér­lendis – þetta er vanda­mál alls staðar í heim­inum. Árlega eru veidd um það bil hund­rað milljón tonn af villtum fiski. Segjum sem svo að „ein­ungis“ 5% sé kastað í hafið. Það þýðir 5 millj­ónir tonna, eða ríf­lega fimm­falt það sem íslenski fiski­skipa­flot­inn dregur að landi árlega er fargað.“

Og aftur talar Arthur um afla­marks­kerfið sem hann segir að bjóði „upp á sóða­skap. Það er með inn­byggðum hvata til brott­kasts – það er að hirða það sem er verð­mæt­ast og kasta hinu,“ og hann við­ur­kennir „fús­lega að ég hafði í gegnum árin talið mér trú um að brott­kastið hefði að mestu horfið með tím­anum, væri að sjálf­sögðu eitt­hvað – en hverf­andi. Ég vildi trúa því að öll þessi „umhverf­is­vakn­ing“ og sjálf­bærni­hjalið væri meira en orðin tóm. Ég er kom­inn á þá skoðun að ég hafi haft rangt fyrir mér. Það er kom­inn tími til að gera upp við núver­andi fyr­ir­komu­lag, afla­marks­kerfið.“

Arthur segir að það sé kom­inn „tími til að horfast í augu við þá stað­reynd að „besta fisk­veiði­kerfi í heimi“ er kerfi sóunar og spill­ingar. Það er spill­ing að henda fiski – svo það sé sagt,“ og „dróna­eft­ir­lit Fiski­stofu mun litlu sem engu breyta í þessum efnum.“

Arthur er í „ágætu sam­bandi við fjöl­marga erlenda aðila í „fiski­brans­anum“ og flestir þeirra hafa þá ímynd af íslenskum fisk­veiðum að hér hafi veri fundin upp töfra­lausn varð­andi nýt­ingu fiski­stofna og umgengni um fiski­mið.

Gerum þeim grein fyrir stað­reyndum og hættum blekk­ing­ar­leiknum. Það er mun betra að við gerum það áður en þeir átta sig á því hver sann­leik­ur­inn er í mál­inu því það mun óhjá­kvæmi­lega ger­ast, fyrr eða síðar.“

Heimild: bb.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi