Ein af mörgum einkaþotum sem nú eru hér á landi, lenti á flugvellinum á Rifi á Snæfellsnesi og festist stutt frá flugbrautinni, þegar flugstjórinn ætlaði að koma henni í stæði.
Hjól einkaþotunnar sukku ofan í slitlagið og er hún enn föst; áætlað er að lyfta henni upp á miðvikudag.

Mynd / Adolf Ingi Erlingsson.
Sem betur fer sakaði engan en málið er nú komið inn á borð lögreglu og rannsóknarnefndar samgönguslysa.































Athugasemdir