Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gullfiskurinn smitaði eiganda sinn af fiskberklum- Sjómaður með hringorm

Gullfiskurinn smitaði eiganda sinn af fiskberklum- Sjómaður með hringorm
Gull­fisk­ur­inn smit­aði eig­anda sinn.

Afar fátítt er að fólk smit­ist af sjúk­dómum af gull­fiskum sínum. Þetta er þó þekkt hér á landi. Árið 1995 komu upp tvö dæmi um berkla­smit þar sem fólk hafði smit­ast af fiskum. Þetta var í fyrsta sinn sem slíkt gerð­ist hér­lendis. Annað til­vikið varð þegar ein­stak­lingur, sem óskaði nafn­leyndar, smit­að­ist af gull­fiski sínum. Sá vildi á þeim tíma ekki gefa upp með hvaða hætti smitið barst í hann.

Sama ár smit­að­ist annar ein­stak­lingur af fisk­berklum með snert­ingu við eld­is­fisk.

„Það eru tvö til­vik á hálfu ári þar sem Íslend­ingar hafa greinst með fiski­berkla. Þetta eru fyrstu til­vikin hér­lendis, annað greind­ist í sumar og hitt nýlega. Lækning við þessu fer fram með lyfja­með­ferð,“ sagði Bjarn­heiður Guð­munds­dóttir, líf­fræð­ingur hjá Til­rauna­stöð­inni á Keldum, við DV í jan­úar 1995. Á Keldum var fólk sér­hæft í að greina fiski­berkla. Þar hafa berkla­bakt­er­íur úr fiski verið rækt­aðar. Hún segir að smit ber­ist frá fiskum til manna. Í fyrra til­vik­inu sl. sumar smit­að­ist við­kom­andi af eld­is­laxi en í hinu til­vik­inu voru gull­fiskar smit­vald­ur­inn. „Þessi bakt­ería getur sýkt menn en það er þó mjög sjald­gæft að hún geri það. Þetta er ekki sama bakt­er­ían og berkla­bakt­er­ían en hún er skyld henni. Þetta lýsir sér í því að við­kom­andi fær húð­út­brot. Við hástig sjúk­dóms­ins getur hann náð til líf­færa fólks. Það eru þekkt dæmi um það erlendis að fólk hafi veikst alvar­lega,“ segir Bjarn­heiður við DV á sínum tíma.

„Fólk með skraut­fiska, sem fær húð­út­brot sem ekki lag­ast, ætti að leita húð­sjúk­dóma­læknis. Þar kynni að vera um að ræða þessa bakt­eríu sem getur smit­ast frá fiski til manns. Smit­leið­irnar eru helst þannig að fólk sem fer með hend­urnar ofan í búrin smit­ast. Það er alltaf athuga­vert þegar fólk með gælu­dýr gætir ekki var­úðar og hrein­lætis,“ segir Bjarn­heiður.

Árni Krist­munds­son, deild­ar­stjóri og fisk­sjúk­dóma­fræð­ingur hjá Rann­sókna­stöð­inni á Keldum, segir að ekk­ert til­vik hafi komið upp síðan árið 1995.

„Þetta eru einu skiptin sem svona smit hefur borist úr fiskum í menn,“ sagði hann í sam­tali við Stundina árið 2008.

Annað til­vik um smit var þegar sjó­maður á loðnu­skipi fékk í sig hringorm og þurfti lækn­is­hjálp til að eyða óværunni. Sá hafði borðað hrá hrogn úr loðnu þegar hann var við veiðar. Sjó­mað­ur­inn slapp með skrekk­inn og hann jafn­aði sig að fullu. Ekki er vitað um nema þetta eina til­vik þar sem hringormur hefur tekið sér ból­festu í manni.

Greinin er unnin upp úr fréttum DV og umfjöllun Stund­ar­innar. Höfundur er í öllum til­vikum grein­ar­höf­undur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi