Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðni Ágústsson snýr aftur heim á Selfoss: „Krakkarnir sögðu að ég væri með þingmanninn í maganum“

Guðni Ágústsson snýr aftur heim á Selfoss: „Krakkarnir sögðu að ég væri með þingmanninn í maganum“

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því Guðni Ágústs­son kvaddi stjórn­málin fyrir þrettán árum síðan. Hann bjó í ára­tugi á Selfossi þar sem Ölfusá rennur í gegn eins og tím­inn. Þegar stjórn­mála­ferl­inum lauk flutti hann og eig­in­kona hans, Margrét Hauks­dóttir, til Reykja­víkur og þar hafa þau búið síðan í Skugga­hverf­inu. Nú verður breyt­ing þar á en þau eru búin að setja íbúð sína í sölu og hafa fest kaup á íbúð í nýja mið­bænum á Selfossi þar sem fjöldi manns hefur lagt leið sína til að berja hann augum á und­an­förnum vikum. Það er eins og for­tíðin stígi þar fram og heilsi á sinn hátt en eins og flestir vita er búið að byggja þar glæsi­legt svæði þar sem hús í gömlum stíl og í ýmsum litum gleðja augað.

„Nú vil ég heim. Við Margrét viljum heim á Selfoss. Tíminn er kom­inn.

Mér sýn­ist allir vera að fara austur. Ekki bara við heldur fjöldi fólks sem vill flytja þangað og ég held að höf­uð­borgin sé á leið­inni austur. Við erum að fylgja straumnum í þetta sinn. Römm er sú taug sem rekka dregur föð­ur­túna til. Þarna er rót mín. Þar áttum við Margrét ynd­is­leg­ustu ár ævi okkar og þar ólum við upp stelp­urnar okkar og þekkjum nátt­úr­lega þar mikið af fólki. Það verður gaman að vera þar en það er auð­vitað alls staðar gaman að vera sé maður lífs­glaður.“

Guðni ólst upp á bænum Brúna­stöðum í Árnes­sýslu og flutti að heiman 14 ára gam­all þegar hann fór í Hér­aðs­skól­ann á Lauga­vatni. Hann segir það vera mesta drama sem hann hefur upp­lifað.

„Það var kvíð­væn­legt. Maður var feim­inn, ég sakn­aði heim­il­is­ins en á 10 dögum var búið að taka mann inn í nýtt og lif­andi sam­fé­lag. Þetta var eins og að fara í hernað, við vorum lokuð inni á nótt­unni og þetta var harður skóli. Svo gengum við krakk­arnir um götur á kvöldin og hlust­uðum á Lög unga fólks­ins en sumir voru með útvörp undir hend­inni. Öll þessi lög, I cant get no og allt hvað þetta hét nú, glumdu í fjalla­sal.

Þarna varð ég að manni á einum vetri. Það var ann­ars gott að fara á heima­vist 14 ára gam­all innan um 140 krakka og upp­lifa ynd­is­lega tíma; frelsi æsk­unnar og Bítlana og Rolling Stones sem gerðu allt vit­laust. Ég lifði þessa frels­is­bylt­ingu æsk­unnar. Ég sá strák­ana verða síð­hærða og þeir voru teknir fastir og keyrðir til rak­ar­ans. Þetta voru merki­leg ár.“

Hann segir að hann hafi verið orð­inn þing­manns­efni á Lauga­vatni.

„Krakk­arnir sögðu að ég væri með þing­mann­inn í mag­anum, enda þing­manns­sonur. Ég var far­inn að halda ræður. Ég var víga­legur með mik­inn karlaróm, svona ungur strákur. Ég fór að leika þannig að ég varð strax svo­lítið athygl­is­sjúkur og það hefur sem betur fer varað og hald­ist.“

Hann átti sér samt draum. Hann vildi verða bóndi. Hann varð hins vegar síðar land­bún­að­ar­ráð­herra.

Ferillinn

Guðni Ágústs­son:

Fæddur á Brúna­stöðum í Hraun­gerð­is­hreppi 9. apríl 1949. For­eldrar: Ágúst Þor­valds­son (fæddur 1. ágúst 1907, dáinn 12. nóv­em­ber 1986) alþing­is­maður og bóndi, og kona hans Ing­veldur Ást­geirs­dóttir (fædd 15. mars 1920, dáin 6. ágúst 1989) hús­móðir. Maki (2. júní 1973): Margrét Hauks­dóttir (fædd 3. apríl 1955) For­eldrar: Haukur Gíslason og kona hans Sig­ur­björg Geirs­dóttir. Dætur: Brynja (1973), Agnes (1976), Sig­ur­björg (1984).

Búfræði­próf Hvann­eyri 1968.

Mjólk­ur­eft­ir­lits­maður hjá Mjólk­ur­búi Flóa­manna 1976–1987. Skipaður 28. maí 1999 land­bún­að­ar­ráð­herra, lausn 23. maí 2003. Skipaður 23. maí 2003 land­bún­að­ar­ráð­herra, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.

Formaður Umf. Baldurs í Hraun­gerð­is­hreppi 1969–1974. Formaður Félags ungra fram­sókn­ar­manna í Árnes­sýslu 1972–1975. Formaður kjör­dæm­is­sam­bands fram­sókn­ar­fé­lag­anna á Suð­ur­landi 1979–1986. Formaður Sambands ungra fram­sókn­ar­manna 1980–1982. Í stjórn Holl­ustu­verndar rík­is­ins 1982–1986. Í banka­ráði Bún­að­ar­banka Íslands 1990–1998, for­maður 1990–1993. Í stjórn Stofn­lána­deildar land­bún­að­ar­ins 1990–1997, for­maður 1990–1993. Formaður stjórnar Lána­sjóðs land­bún­að­ar­ins 1998–1999. Í full­trúa­ráði Sólheima í Gríms­nesi 1990–1994. Í Þing­valla­nefnd 1995–2008. Vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins 2001–2007, for­maður hans 2007–2008.

Alþing­is­maður Suð­ur­lands 1987–2003, alþing­is­maður Suð­ur­kjör­dæmis 2003–2008 (Fram­sókn­ar­flokkur).

Vara­þing­maður Suð­ur­lands nóv­em­ber 1986.

Land­bún­að­ar­ráð­herra 1999–2007.

  1. vara­for­seti sam­ein­aðs þings 1989–1990. 3. vara­for­seti Alþingis 1995–1999.

Sam­göngu­nefnd 1991–1995 og 2007–2008, land­bún­að­ar­nefnd 1991–1999 (for­maður 1995–1999), heil­brigðis- og trygg­inga­nefnd 1995–1999, sér­nefnd um stjórn­ar­skrár­mál 1995–1996, iðn­að­ar­nefnd 2007–2008.

Íslands­deild Vest­nor­ræna ráðs­ins 2007–2008.

Guðni Ágústs­son og Margrét Hauks­dóttir.

Berst fyrir bændur og sveitinni

Guðni er spurður hvað standi upp úr í póli­tískum ferli hans.

„Að vera land­bún­að­ar­ráð­herra Íslands í átta ár. Koma sveit­unum í tísku og jafn­vel sveita­mönnum. Ég berst enn fyrir bændur og sveit­inni. Þar er feg­urðin.“

Hvað er íslensk sveit í huga Guðna? Íslensk nátt­úra?

„Ég held að við eigum alveg ein­stakt land. Íslensk nátt­úra er óskap­lega fal­leg. Við eigum þessa jökla, þessa hveri og þessar ár og læki.

Við búum hér á heil­mik­illi auð­lind og hér eru mikil tæki­færi.“

Guðni er spurður hvort hann eigi upp­á­halds­stað á Íslandi.

„Já, auð­vitað er minn upp­á­halds­staður Árnes­sýsla. Þing­vellir. Auðvitað æsku­slóðir mínar á Brúna­stöðum. Það eru margir staðir á Íslandi sem ég elska og sem gaman er að koma til. Það er gaman að hugsa til þess hvað frelsið er mikið og hvað sam­göng­urnar eru loks­ins að batna í höndum stjórn­mála­mann­anna núna, Sigurðar Inga og félaga í ríks­stjórn­inni. Núna getur fólk farið á sól­skins­stað­ina fyrir austan og norðan þegar rign­ing er hér á suð­vest­ur­horn­inu. Við þurfum fyrst og fremst á einum hálendis­vegi að halda til að auð­velda þetta fyrir almenn­ing. Akfær vegur yfir Kjöl, hina fornu þjóð­leið.“

Hann er spurður um skoðun sína á kaupum erlendra auð­manna á jörðum á Íslandi.

„Ég er and­vígur þeim Ég vil að við eigum okkar land. Við verðum að eiga okkar land. Við getum tapað því á auga­bragði.“

Mætti bæta móralinn

Það gefur oft á bát­inn á Alþingi. Guðni er þekktur fyrir að vera húmoristi og það hefur án efa komið að góðum notum í starfi.

„Við skömm­uðum hvern annan oft­ast að gamni okkar þegar ég var á þingi og auð­vitað líka í alvöru. En þetta var ekk­ert per­sónu­legt. Það voru engin per­sónu­leg illindi þótt maður hafi skammað Össur, Stein­grím J. eða Halldór Blöndal. Þá drakk maður kaffi með við­kom­andi á eftir til að fara yfir málin. Þannig var þetta. Þegar ég byrj­aði á þingi þá henti Helgi Seljan, sem var Alþýðu­banda­lags­maður, til mín bréfa­skutlu, eins og var gert í skól­anum, og hafði skrifað fal­leg orð á blaðið:

Mér að skapi mjög svo er

mál­flutn­ingur slíkur.

Festu­legur fylg­inn sér

föður sínum líkum.

Ég fékk sjálfs­traust við hólið.“

Guðni segir að mórall­inn mætti núna vera betri í Alþing­is­hús­inu.

„Svona er þetta ekki lengur. Ég held að fólk þar sé ekki eins góðir vinir og fólk var á þessum tíma. Það mætti alveg bæta móral­inn.“

„Þetta voru erf­iðir dagar“

Jú, það gefur oft á bát­inn. Guðni segir að í lífi sínu hafi það verið erf­ið­ast þegar hann yfir­gaf póli­tík­ina.

„Þetta voru erf­iðir dagar en ég taldi mig vera að gera þetta til að bjarga flokknum mínum svo menn átt­uðu sig á því að þeir yrðu að standa saman og vera vinir. Það var allt í rugli hjá okkur í Framsókn þá. Menn vildu ganga í Evr­ópu­sam­bandið sem ég hef aldrei séð fyrir mér. Ég vil að við eigum okkar land­búnað, okkar land­helgi og sjó­menn og okkar frelsi hér á Íslandi. Það er okkur fyrir bestu. Ég er ekki reiður við neinn. Og menn í öllum flokkum eru orðnir góðir við mig og voru það reyndar alltaf.

Alþingi er bara vinnu­staður eins og hver annar vinnu­staður en að vísu með troð­fullt hús af egóistum “

Guðni er spurður hvað hann hafi lært af því að vera í stjórn­málum.

„Ég get sagt þér það að þegar ég byrj­aði í póli­tík þá var ég tal­inn vera afburða leið­in­legur. Árni Johnsen sagði að ég væri eins og Þjórsá í klaka­böndum; ég væri svo leið­in­legur og brúna­þungur. Ég held að þetta hafi verið rétt hjá honum. En svo fór af mér feimnin og ég kynnt­ist öllu þessu fólki og þess­ari þjóð og það breytti mér von­andi til batn­aðar.“

Í fýlu

Það stytt­ist í kosn­ingar í haust.

„Ég sé Fram­sókn­ar­flokk­inn minn rísa. Ég trúi á gott fólk í öllum flokkum. Ég stend með núver­andi rík­is­stjórn og ég tel hana hafa unnið vel í mörgum stórum og erf­iðum málum. Breidd hennar er mikil og þar liggur núna heil­mikil þekk­ing og ábyrgð. Þau ættu að vera næstu fjögur árin en svo er alltaf gott að skipta á ein­hverjum tíma­bilum um rík­is­stjórn því menn þurfa að vera báðum megin við borðið. Stjórn­mála­menn sem fara aldrei í stjórnar-and­stöðu vita ekki hvað lífið er.

„Sig­mundur Davíð stofn­aði Mið­flokk­inn af því að hann fór í fýlu“

Hvað með Mið­flokk­inn?

„Hann var búinn til utan um Sigmund Davíð og hann er auð­vitað flokk­ur­inn. Ég held að hann renni inn í Fram­sókn­ar­flokk­inn aftur. Það hefur bara allt sinn tíma. Þetta hefur gerst áður í sögu flokks­ins og það hefur alltaf endað vel. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur klofnað þrisvar eða fjórum sinnum. Viðreisn fer síðan í Sjálf­stæð­is­flokk­inn áður en varir. Flokkar eru yfir­leitt stofn­aðir vegna óánægju manna. Stein­grímur J. Sig­fús­son stofn­aði Vinstri græna af því að hann fór í fýlu. Þor­gerður Katrín stofn­aði Viðreisn af því að hún fór í fýlu. Og Sig­mundur Davíð stofn­aði Mið­flokk­inn af því að hann fór í fýlu. Þannig er þetta.“

Ágætis maður

Guðni er húmoristi eins og flestir vita.

„Ég hef tamið mér að vera lífs­glaður og mér finnst vera skemmti­legra að segja eitt­hvað fal­legt heldur en að vera í fílu. Það versta sem maður gerir er að fara í fílu og vera þung­lyndur þannig að maður þarf að halda sinni gleði og reisn.“

Fer Guðni aldrei í fýlu?

,,Það þyngir yfir stundum. Ég á mína erf­iðu daga eins og allir en oft­ast góða daga. Og það er nýtt til­hlökk­un­ar­efni að koma heim í bæinn sinn og finna sig þar á nýjan leik. Við Margrét eigum svo sum­ar­hús í okkar gömlu sveit, þar hlustum við á fugla­söng og dáum blóm­skrúð. Þar tökum við á móti börn­unum okkar og vinum við eigum sjö barna­börn og köllum okkur niðja­þjóna.“

Hann hefur verið ræðu­maður og uppi­stand­ari og sagt fjöld­ann allan af skemmti­legum sögum. Hann er spurður um upp­á­halds­sög­una og nefnir þá þegar séra Hjálmar kall­aði á sig til sín í Dóm­kirkj­una.

„Hann lét mig flytja ræðu, prest­ur­inn, og svo lík­aði fólki mjög vel ræðan mín. Ég held það hafi klappað og svo orti Hjálmar þessa vísu:

Það sem Guðni gerir best

gleður þjóð­ar­múg­inn.

Þar fór efni í afbragðs prest

algjör­lega í súg­inn.

Ég ætl­aði að verða prestur þegar ég var lít­ill. Ég predik­aði yfir systk­inum mínum, sem voru 15, og hermdi eftir prestum. Svo gat ég ekki tónað af því að ég er lag­laus. Þá hætti ég við að verða prestur og varð stjórn­mála­maður.“

Er hann mjög trú­aður?

„Já, ég trúi á guð og að yfir manni sé vakað. Ég fer með bænir. Manni var kennt það við móð­ur­kné að signa sig og það var gert á Brúna­stöðum þótt krakk­arnir hafi verið 16. Okkur var kennt að fara með bænir og hugsa fal­legt á stórum stundum. Ég bið stundum í hljóði þegar erfitt verk er fram undan. Ég græt í jarð­ar­förum, það er eft­ir­sjá að góðu fólki. Ég er miklu mýkri heldur en ég lít út fyrir að vera. Ég er ekki eins og Þjórsá í klaka­böndum eins og vinur minn, Árni Johnsen, sagði.“

Er Guðni mjúkur maður?

„Já, ég er bara sann­gjarn. Ágætis maður, held ég.“

Hvernig myndi hann lýsa sjálfum sér?

„Ég vil að fólk minn­ist mín sem heið­ar­legs dreng­skap­ar­manns sem vill hvers manns vand­ræði leysa.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi