Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Stefán Einar útmálar okkur sem gyðingahatara og segir að við höfum tekið upp kyndil Hitlers“

„Stefán Einar útmálar okkur sem gyðingahatara og segir að við höfum tekið upp kyndil Hitlers“
Stefán Einar Stef­áns­son.

Einar Steinn Val­garðs­son og Hjálmtýr Heiðdal eru ekki par sáttir við Stefán Einar Stef­áns­son blaða­maður sem skrif­aði grein í Morg­un­blaðið með fyr­ir­sögn­inni: „Illa dulið gyð­inga­hatur.“

Þeir félagar, Einar og Hjálmtýr eru báðir félagar í Félaginu Ísland-Palest­ína og þeir nefna að „grein Stefáns er svar við grein sem við skrif­uðum um skrif Stefáns um rauð­víns­fram­leiðslu á her­teknu landi í Palest­ínu.“

Og bæta við:

„Eins og alvana­legt er hjá þeim sem vilja verja ofbeldi Ísra­els­ríkis gegn Palest­ínu­mönnum, þá byrjar Stefán grein sína á því að útmála okkur sem gyð­inga­hat­ara, og ef trúa má Stefáni, þá höfum við tekið upp kyndil­inn sem féll úr hendi Hitlers á sínum tíma.“

Þeir félagar segja þó að „ávirð­ingar Stefáns Einars í okkar garð eru ekki meg­in­at­riði, meg­in­at­riðið er að hann reynir að blekkja les­endur með full­yrð­ingum sem eiga sér enga stoð í veru­leik­anum,“ og benda á að „í grein Stefáns Einars er nokkrar lyk­il­setn­ingar: „Í þessum aðstæðum gera almennir borg­arar, jafnt Ísraelar og Palest­ínu­menn, til­raun til þess að lifa eðli­legu lífi og upp­fylla vonir sínar og vænt­ingar til lífs­ins“. Enn fremur: „Er aðdá­un­ar­vert að fylgj­ast með fólk­inu, m. a. á Vest­ur­bakk­anum, nýta sér ferða­þjón­ustu og mat­væla­fram­leiðslu til að skapa sér og sínum góð lífs­skil­yrði…Þar starfa gyð­ingar og Palest­ínu­menn hlið við hlið. Hags­munir þeirra eru sam­ofnir.“

Þeir Einar og Hjálmtýr segja að „þessi skrif Stefáns eru annað hvort dæmi um hróp­andi van­þekk­ingu eða sýna okkur að hann er sér­lega ósvíf­inn. Við látum les­endum eftir að kom­ast að nið­ur­stöðu um það, en stað­reyndin er sú að millj­ónir Palest­ínu­manna, bæði þeir sem búa innan Ísraels og þeir sem búa á Vest­ur­bakk­anum og Gaza, lifa ekki eðli­legu lífi; það er ef menn telja eðli­legt líf að vera frjáls til orða og athafna; geta ferð­ast; í stuttu máli að njóta mann­rétt­inda eins og sið­samt fólk telur að allir eigi að njóta. Það er ekki ógn frá Íran sem hindrar að lífið sé eðli­legt eins og Stefán skrifar, það er kúgun Ísra­els­ríkis á Palest­ínu­mönnum sem er orsök vand­ans.“

Þeir færa í tal að „Palest­ínu­menn sem búa innan Ísraels geta ekki valið sér bústað að eigin ósk – það er í raun þannig að stór hluti Ísra­els­ríkis er þeim lok­aður þótt þeir telj­ist vera lög­mætir íbúar lands­ins. Þeir geta sjaldn­ast fengið leyfi til að byggja hús. Þeir geta ekki end­ur­heimt eigur sínar sem var stolið af þeim við stofnun Ísra­els­ríkis. Þeir geta ekki gifst ef ástin þeirra hlýtur ekki náð ísra­el­skra yfir­valda. Ekkert af þessu er eðli­legt og upp­fyllir engar vonir þessa fólks. Og það er vegna þess að fólkið býr í ríki sem skil­greinir sig með lögum sem ríki meiri­hlut­ans en ekki ríki allra lands­manna burt­séð frá upp­runa og trú.“

Og nefna fleiri dæmi um líf það sem Palest­ínu­menn þurfa að horfast í augu við á degi hverjum:

„Íbúar Vest­ur­bakk­ans búa við her­nám og eru ofur­seldir Ísra­els­her, sem ræður öllum sam­göngum að geð­þótta her­mann­anna. Palest­ínskir bændur eru rændir ökrum sínum og skotnir ef þeir mót­mæla. Íbúar Vest­ur­bakk­ans eru innikró­aðir með múr sem klýfur byggðir þeirra og hindrar alla fram­þróun. Ísra­els­her fang­elsar börn og beitir þau bæði and­legum og lík­am­legum pynt­ingum. Íbúar Austur-Jer­úsalem missa hús sín í hendur ofsa­trú­ar­gyð­ingum sem njóta stuðn­ings Ísra­els­hers.“

Benda á að „íbúar Gazastrandarinnar eru í her­kví; eng­inn fer þangað eða þaðan nema með leyfi Ísra­els­hers. Atvinnu­líf er á helj­ar­þröm sökum herkví­ar­innar – vatn er af skornum skammti og einnig raf­magn, meðal ann­ars sökum þess að her Ísraels hindrar aðdrætti til við­gerða á tækja­bún­aði. Fiski­menn á Gaza hætta lífi og limum er þeir reyna að sækja björg í bú. Varð­bátar Ísra­els­hers hindra þá í að sækja gjöful fiski­mið og hafa drepið marga sjó­menn sem eru fyr­ir­vinnur heim­ila sinna.“

Einar og Hjálmtýr von­ast eftir að áður­nefndur Stefán Einar „útskýri fyrir okkur hvernig menn geti gert „til­raun til þess að lifa eðli­legu lífi og upp­fylla vonir sínar og vænt­ingar til lífs­ins“ við þessar aðstæður sem hér er lýst og eru hvergi ýktar eða full­nægj­andi til að lýsa því ástandi sem þarna ríkir.

Þessi fárán­lega lýs­ing á „sam­ofnum hags­munum“ kúg­ar­ans og þess kúg­aða er svo út úr kú að það læð­ist að manni sá grunur að Stefán Einar vilji ekki að orð hans séu tekin alvar­lega. Það væri for­vitni­legt að fá Stefán Einar til að lýsa líf­inu á baðmullarökrum Suð­ur­ríkja Banda­ríkj­anna um 1850, bara smá grein­ar­korn um sam­ofna hags­muni þræl­anna og þræla­hald­ar­ans!“

Þá benda Einar og Hjálmtýr á að „Stefán Einar heldur því fram að Félagið Ísland-Palest­ína sé á móti til­veru Ísra­els­ríkis; að það sé opin­ber stefna félags­ins. Þetta er rangt, á vef­síðu félags­ins má lesa eft­ir­far­andi um mark­mið félags­ins:

„Að beita sér fyrir því, að Íslend­ingar leggi sitt af mörkum til þess að rétt­lát og frið­sam­leg lausn finn­ist á deilu Ísraela og Palest­ínu­manna á grund­velli alþjóða­réttar og mann­rétt­inda­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna og með til­liti til allra sam­þykkta Sam­ein­uðu þjóð­anna sem varða deil­una.“

„Stefán Einar, sem hvetur Íslend­inga til þess að kaupa vín sem er fram­leitt með ólög­legum hætti á landi sem hefur verið stolið, virð­ist ekki sáttur við þá nið­ur­stöðu okkar að hann styðji mann­rétt­inda­brot Ísra­els­ríkis. Allt sem Stefán Einar hefur skrifað um þetta „vín­mál“ snýst um að segja að þetta sé hið besta mál og verður hann að fyr­ir­gefa okkur ef við höfum dregið rangar álykt­anir og að hann styðji alls ekki mann­rétt­inda­brotin sem hann skrifar svo glað­beittur um. Hann verður þá að útskýra það fyrir okkur og les­endum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi