Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Íslenskt heilbrigðiskerfi er ekki á heimsmælikvarða – Hvaða mælikvarða ætti að nota? Richter?“

„Íslenskt heilbrigðiskerfi er ekki á heimsmælikvarða – Hvaða mælikvarða ætti að nota? Richter?“

Elín Tryggva­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur er með ákveðnar skoð­anir og deilir þeim með okkur.

Hún byrjar á því að segja að „fyrir Alþing­is­kosn­ingar lofa margir fram­bjóð­endur fögrum fyr­ir­heitum um upp­bygg­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins. Gull­slegin lof­orð þeirra fuðra flest upp um leið og atkvæðin falla ofan í kjör­kass­ann. Á botn­inum eru þau geymd á öruggum stað þar til fram­bjóð­and­inn þarf aftur á atkvæði almúg­ans að halda. Fram­bjóð­endur vita nefni­lega að það er Íslend­ingum hjart­ans mál að heil­brigð­is­kerfið gangi eins og smurð vél. Þeir vita að það er sama hvaða stjórn­mála­stefnu kjós­and­inn aðhyllist, hann vill eiga tryggan aðgang að heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir sig og sína.“

Heldur áfram:

„Þetta lof­orð er eins og mantra sem sumir fram­bjóð­endur þylja upp af gömlum vana án nokk­urs vilja til efnda,“ og spyr „af hverju þarf heil­brigð­is­kerfið á vænni inn­spýt­ingu að halda? Er ekki búið að ausa for­múgu í þessa hít sem gefur engan arð? Er heil­brigð­is­kerfið á Íslandi ekki á heims­mæli­kvarða?“

Og svarar og spyr aftur:

„Nei, haldið ykkur fast. Íslenskt heil­brigð­is­kerfi er ekki á heims­mæli­kvarða. Ég veit ekki einu sinni hvaða mæli­kvarða við ættum að nota til að meta stöðu okkar Íslend­inga í heil­brigð­is­málum. Richter?“

Elín nefnir „þjóð­ar­sjúkra­hús Íslend­inga er stað­sett í um hund­rað bygg­ingum á sautján stöðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Húsin eru komin til ára sinna og ein­býlin eru af skornum skammti, þannig að erfitt er að sinna sótt­vörnum eins og vera ber. Við munum öll hvernig fór á Landa­koti síð­ast­liðið haust. Við höfum beðið í ára­tugi eftir nýrri bygg­ingu sem stenst nútíma­kröfur og enn þurfum við að bíða. Holan stóra við Hring­braut er tákn­ræn fyrir aðgerð­ar­leysi rík­is­ins und­an­farin ár. Táknræn fyrir botn­inn á kass­anum þar sem atkvæði þitt verður að engu,“ bendir á að „sjúk­lingar liggja á göngum, á sal­ernum og inni í geymslum.

Það þarf ekki mikið að ger­ast til að allt fari á hlið­ina. Staða Land­spít­ala er svo brot­hætt að þegar fjórða bylgja heims­far­ald­urs­ins lét á sér kræla í lok júlí var staða sjúkra­húss­ins færð yfir á hættu­stig eftir að ein­ungis þrír sjúk­lingar með Covid 19 höfðu verið lagðir inn. Þrír.

Það er alheims­far­aldur – en ástandið var hættu­legt löngu áður en hún Covid litla kór­óna ákvað að valda usla. Það þarf ekki alheims­far­aldur til að steypa langs­veltu þjóð­ar­sjúkra­hús­inu fram af brún­inni. Það þarf ekki meira til en öldrun þjóð­ar­innar.“

Elín segir að á legu­deildum Land­spít­al­ans dvelja á annað hund­rað aldr­aðra sem kom­ast hvorki lönd né strönd.

„Þeir sem stýra frá­bæra heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerf­inu virð­ast nefni­lega hafa gleymt því að fólk eld­ist. Í stað þess að verja ævi­kvöld­inu á öldr­un­ar­stofnun eyða aldr­aðir síð­ustu mán­uð­unum á lyf­lækn­inga­deildum sjúkra­húss­ins þrátt fyrir að hafa fyrir löngu lokið með­ferð við veik­indum. Elli er nefni­lega ekki sjúk­dómur og okkur ber að sjá til þess að aldr­aðir eigi öruggt skjól. Gleymum því ekki.“

Hún segir að það séu ekki bara aldr­aðir sem standi höllum fæti í „óheil­brigð­is­kerf­inu. Langir biðlistar eru í aðgerðir sem margar hverja auka lífs­gæði til muna. Enn aðrar spara sam­fé­lag­inu stórfé með minni lyfja­kostn­aði, færri inn­lögnum og virkni þeirra sem aðgerð­irnar þurfa. Hugsaðu þér að þurfa að ganga á ónýtri mjöðm mán­uðum saman þegar bein nudd­ast við bein í hverju sárs­auka­fullu skrefi.“

Elín segir að „löng hefð er fyrir fjársvelti fjórð­ungs­sjúkra­hús­anna og þar hefur nið­ur­skurð­ur­inn náð inn að beini; átrösk­un­arteymin eru yfir­full; börn fá ekki tíma hjá tal­meina­fræð­ingum og erfitt er að fá sál­fræði­að­stoð nema við­kom­andi geti pungað út tug­þús­undum fyrir klukku­tím­ann. Biddu fyrir þér ef barnið þitt sýnir frá­vik í þroska eða hegðun. Biðin eftir grein­ingu leng­ist með hverjum deg­inum sem líður.“

Og Elín færir í tal að „heil­brigð­is­kerf­inu, sem greini­lega er langt frá því að vera á heims­mæli­kvarða, tókst að tapa trausti helm­ings lands­manna á einu auga­bragði þegar krabba­meins­skoð­anir voru færðar til. Konur sætta sig ekki við að leikið sé með líf þeirra. Og lítum til einka­fram­taks­ins. Þótt tryggja þurfi eðli­legt eft­ir­lit upp­lifa sér­fræði­læknar að ekki sé á þá hlustað og deila þeirra við sjúkra­trygg­ingar fer ekki fram við samn­inga­borðið heldur í fjöl­miðlum. Hvernig væri að taka upp árang­urs­ríkt sam­tal og leggja ein­hverjar línur áður en skít­ur­inn flýgur í vift­una?“

Að mati Elínar þurfum við Íslend­ingar „öruggt og öfl­ugt heil­brigð­is­kerfi sem vex með þjóð­inni og aðlag­ast breyttum aðstæðum þegar við á. Við verðum að gera heil­brigð­is­þjón­ustu lands­manna að sjálf­bærri heild sem getur brugð­ist við neyð­ar­á­standi sama í hvaða formi það birt­ist okkur.

Það er mjög auð­velt að benda á það sem betur má fara og henda fram inni­stæðu­lausum tékkum. Það er hins vegar erf­ið­ara að fram­kvæma og efna lof­orðin. Það krefst hug­rekkis og heið­ar­leika að gera breyt­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi