Lasu eftir hádegi í dag varð bílslys á austanverðum Biskupshálsi á hringveginum á milli Mývatns og Egilsstaða.Fram kemur á heimasíðu lögreglunnar á Austurlandi að fimm erlendir ferðamenn voru í bifreið sem valt og slösuðust þrír þeirra. Þeir voru allir fluttir með sjúkrabifreiðum til læknisskoðunar á Akureyri en einn þeirra hlaut talsverða áverka en hinir minni.Tveir þeirra sem í bílum voru slösuðust ekki og voru fluttir í lögreglubifreið til Akureyrar. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir og eru til rannnsóknar.































Athugasemdir