Valdimar Örn Flygenring, leikari, deildi á Facebooksíðu sinni mynd af hreint út sagt viðbjóðslegum kamri.
„Heilbrigðisvandamálin eru víða. Ætluðum við ekki að nota tímann í covid til að endurskipuleggja ferðamannastaðina?“ Skrifar hann við myndina.

„Hvernig endurskipuleggur maður umgengni?“ Spyr Guðrún S. Gísladóttir leikkona þá.
„Þetta hefur varla neitt með umgengni að gera, klósettið er fullt og þarf að tæma. Ferðamennirnir geta það ekki. Það er ef til vill þeirra sem selja bílastæðin þarna,“ svarar Valdimar af bragði.
„Jú það stóð til og verkefnið var sent til til ráðgjafastofnunnar: „SEP“ – Somebody’s else’s problem,“ skrifar Einar Bergmundur.





















Athugasemdir