Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„0,1 prósent skattgreiðenda á 293 milljarða og ríkasta 1 prósent á 902 milljarða í eigin fé“

„0,1 prósent skattgreiðenda á 293 milljarða og ríkasta 1 prósent á 902 milljarða í eigin fé“
Þing­mað­ur­inn Jóhann Páll.

Jóhann Páll Jóhanns­son segir að á Íslandi sé nóg til af pen­ingum en að mest af þeim renni til örfárra lands­manna á kostnað almenn­ings.

Hann nefnir að „rík­asta 1 pró­sent lands­manna á sam­tals 902 millj­arða í eigin fé sam­kvæmt skatt­fram­tals­gögnum rík­is­skatt­stjóra,“ bætir við:

„Þar af eiga 240 heim­ili – rík­asta 0,1 pró­sent skatt­greið­enda – 293 millj­arða.“

Jóhann segir að raun­veru­legar eignir fólks­ins séu reyndar miklu meiri að umfangi, enda eru hluta­bréf talin á nafn­virði í gögnum rík­is­skatt­stjóra og fast­eignir á fast­eigna­mats­verði.

„Í hópnum eru til dæmis eig­endur stór­út­gerð­ar­fyr­ir­tækja sem njóta þeirra for­rétt­inda að fá úthlut­aðan fisk­veiði­kvóta langt undir mark­aðsvirði; arð­greiðslur til fyr­ir­tækj­anna síð­ast­lið­inn ára­tug eru langt umfram það sem þjóðin hefur fengið í arð af auð­lind­inni í formi veiði­gjalds,“ og bætir Jóhann við að „eigið fé rík­asta 0,1 pró­sents­ins jókst um 10,8 millj­arða í fyrra og hefur alls vaxið um 131 millj­arð frá 2010.“

Jóhann færir í tal að „flestir í hópnum lifa á fjár­magnstekjum og borga þannig miklu lægra hlut­fall tekna sinna í skatt heldur en almennt launa­fólk greiðir af sínum tekjum.

Þetta eru engin nátt­úru­lög­mál heldur afleið­ing af póli­tískum ákvörð­unum fólks­ins sem stjórnar Íslandi, flokk­anna sem við­halda gam­al­dags skatt­kerfi, standa vörð um óbreytt gjafa­kvóta­fyr­ir­komu­lag í sjáv­ar­út­vegi og lögðu áherslu á það í miðjum heims­far­aldri að lækka enn frekar skatta á þau ríku, veikja skatt­rann­sóknir og selja eign­ar­hlut rík­is­ins í banka á und­ir­verði.“

Hann segir „sama fólkið lætur eins og það séu ekki til pen­ingar til að reka vel fjár­magnað heil­brigð­is­kerfi; starf­rækja þjóð­ar­sjúkra­hús þar sem sjúk­lingar hír­ast ekki á göngum, sal­ernum og í geymslum og bráða­mót­töku,“ og að „sama fólkið lætur eins og það sé allt á réttri leið þegar það þarf ekki nema þrjár Covid-inn­lagnir til að setja Land­spít­al­ann á hættu­stig; þegar fjöldi sjúkra­plássa á Íslandi miðað við höfða­tölu er undir með­al­tali OECD-ríkja og þegar hund­ruð barna þurfa að bíða í meira en ár eftir nauð­syn­legri geð­heil­brigð­is­þjón­ustu.“

Jóhann segir að við Íslend­ingar vitum betur og að það sé nóg til af pen­ingum hér á landi:

„Og það er hægt að for­gangs­raða öðru­vísi – í þágu sterkrar grunn­þjón­ustu og vel­ferðar.

En það kallar ekki aðeins á skipu­lags­breyt­ingar og betri ráð­stöfun fjár­muna heldur einnig aukin útgjöld, meðal ann­ars var­an­leg rekstr­ar­út­gjöld sem skyn­sam­leg­ast er að mæta með auk­inni tekju­öflun.“

Jóhann telur að það „væri óráð að mæta útgjalda­aukn­ing­unni með hærri sköttum á almennt launa­fólk, til dæmis hjúkr­un­ar­fræð­inga, kenn­ara og afgreiðslu­fólk í versl­unum sem hafa þurft að færa fórnir í heims­far­aldr­inum. Við skulum miklu frekar sam­ein­ast um sann­gjörn auð­linda­gjöld og hærri skatta á allra hæstu eignir og tekjur,“ því þannig „tökum við heild­ar­hags­muni sam­fé­lags­ins fram yfir sér­hags­muni hinna fáu og fjár­sterku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi