Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að ræða hvort fullreynt sé að ná árangri með formanni og forystu“

„Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að ræða hvort fullreynt sé að ná árangri með formanni og forystu“

Páll Magn­ús­son segir bless við Alþingi eftir fimm ára veru þar sem þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins; seg­ist sáttur við sitt fram­lag. Hann segir það deg­inum ljós­ara að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn glími við mik­inn vanda:

„Eftir að ég tók þá ákvörðun að hætta á þingi líður mér sífellt betur með hana. Áhuginn hefur að miklu leyti dofnað og neist­inn kulnað.“ Og „þegar fór að líða að próf­kjör­inu núna í maí fann ég að sú ögrun sem var upp­haf­lega fyrir hendi var farin, en það væri of djúpt í árina tekið að segja að þing­manns­starfið hafi valdið von­brigðum, því margt fannst mér skemmti­legt og ýmis­legt gat ég lagt til mál­anna. Ég hætti ekki í neinni bit­urð heldur kveð ég þingið nokkuð sáttur.“

Páll birti í sumar grein í Morg­un­blað­inu sem fjall­aði um stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þann vanda sem hann standi frammi fyrir; nokk­urs­konar grein­ingu á því hvers vegna flokk­ur­inn hafi verið nán­ast nagl­fastur í kringum 25 pró­senta fylgi all frá frá hruni árið 2008.

„Stundum finnst mér að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé orð­inn nokk­urs konar fram­kvæmda­stjóri Íslands; hann hefur verið lengi í rík­is­stjórn og for­mað­ur­inn lengi í fjár­mála­ráðu­neyt­inu,“ og að mati Páls orsaki þetta að hug­sjónir og raun­veru­leg stjórn­mál víki fyrir skrif­finnsku og emb­ætt­is­ræði,“ og bætir við:

„Árið 1929 runnu Íhalds­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndi flokk­ur­inn saman í Sjálf­stæð­is­flokk­inn og flestar götur síðan bar hann gæfu til að vera breið­fylk­ing borg­ara­legra afla. Nú hefur brotnað úr flokknum í báða enda og flokk­ur­inn er í til­vist­ar­kreppu.“

Páll nefnir einnig að „mér finnst að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætti að taka frum­kvæðið í að laga agnúa á fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­inu, sem í grund­vall­ar­at­riðum er gott. Þegar kemur að grund­vallar­atvinnu­vegi þjóð­ar­innar á Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ekki að sitja hjá aðgerða­laus.“

Páll segir að for­ysta flokks­ins þurfi að horfa í spegil og reyna að upp­færa stöðu stjórnar og flokks­ins sjálfs:

„Í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur skap­ast and­rými fyrir þá skoðun að þú sért að bregð­ast flokknum með því að gagn­rýna for­yst­una. Ég vil hins vegar meina að þú sért að bregð­ast með því að gera það ekki þegar þörf er á, eins og nú er. Hollusta við for­mann má ekki breyt­ast í með­virkni, því þá er hún skað­leg; Sjálf­stæð­is­menn hljóta að ræða hvort það sé full­reynt að ná árangri með núver­andi for­manni og for­ystu.“

Sögur hafa verið uppi um að Páll sé ekki hættur í stjórn­málum og að mögu­lega muni hann stofna nýjan flokk eða ganga til liðs við annan flokk, og þar hefur mest borið á sögu­sögnum þess efnis að Viðreisn gæti orðið næsti áfanga­staður Páls, eða að hann reyni fyrir sér í næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Hann úti­lokar ekk­ert en seg­ist lítið hugsa um slíkt í dag, hvað svo sem fram­tíðin muni bera í skauti sínu:

„Já, já, það er ýmis­legt skrafað og skegg­rætt, en ég er ekk­ert að pæla í því núna.“

Páll færir í tal að hann hafi stutt núver­andi rík­is­stjórn en fljót­lega gert sér grein fyrir að stjórnin myndi hvorki lækka skatta eða draga úr opin­berum umsvifum.

„Í meg­in­at­riðum hafa þær vonir sem bundnar voru við rík­is­stjórn­ina ræst. En það voru komin ýmis gliðn­un­ar­merki í stjórn­ina rétt áður en far­ald­ur­inn skall á,“ og segir Páll að einkum hafi Sjálf­stæð­is­menn ekki verið sáttir við and­stöð­una við einka­rekstur í heil­brigð­is­málum og VG verið ósátt við að frum­varp um mið­há­lend­is­þjóð­garð væri fast. Hann færir einnig í tal að Covid 19 hafi þétt raðir stjórn­ar­liða,  og að fram­hald stjórn­ar­innar – fái flokk­arnir til þess fylgi ráð­ist af VG, sem séu stóra spurn­ing­ar­merkið í kosn­ing­unum; hann nefnir að helm­ingur kjós­enda­hóps­ins ætli ekki að kjósa VG aftur, en fylgið hafi hins vegar aðeins dalað um þrjú pró­sent og virð­ist flokk­ur­inn að mati Páls hafa að stórum hluta skipt um fylgj­endur.

Það vakti mikla athygli þegar Páll, árið 2016, vann bæði sitj­andi ráð­herra í próf­kjöri og flokk­ur­inn hlaut 31 pró­sent í kjör­dæm­inu, en samt hafi Páli ekki verið úthlutað ráð­herra­stól og fund­ist þá sig og kjós­endur sína í Suð­ur­kjör­dæmi hafa verið hlunn­farna; skoðun sem Páll fór ekki leynt með:

„Ég var hissa. Á þessum fimm árum átt­aði ég mig hins vegar á því að ég hefði ekk­ert þurft að verða svona hissa. Ég kom utan frá í póli­tík­ina án þess að eiga mér neitt bak­land eða sögu í flokknum. Það getur verið býsna tor­sótt inni í Sjálf­stæð­is­flokknum. Þegar kemur að ráðu­neytum skiptir það ekki endi­lega mestu máli að hafa sem sterkast lýð­ræð­is­legt umboð, heldur ráða aðrir þættir meiru um það.“

Heimild: Frétta­blaðið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi