Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svona spararðu stórfé í búðinni: Einfalt að halda eftir 150 þúsund krónum á ári

Svona spararðu stórfé í búðinni: Einfalt að halda eftir 150 þúsund krónum á ári
mat­vöru­búð

Ísland er eitt dýrasta land í Evrópu til að gera mat­ar­inn­kaupin. Fyrir mörg okkar sem eyðum 12-14 pró­sentum af laun­unum okkar í mat­vöru skiptir það gríð­ar­legu máli að halda mat­ar­kostn­aði í lág­marki.

Ef okkur tekst að spara þús­und­kall á viku í mat­ar­kostnað spörum við 52 þús­und á ári og ef við náum reikn­ingum niður um þrjú þús­und krónur á viku endum við með 156 þús­und auka­lega í vas­anum eftir árið!

Þetta er ekki flók­inn reikn­ingur en áhuga­vert að hafa þetta svona fyrir aug­unum.

Það hljómar eins og tugga en margt smátt gerir eitt stórt.

Gerðu lista

Þetta hljómar ótrú­lega ein­falt en gerðu lista í hvert sinn sem þú gerir stórinn­kaupin og haltu þig við hann eftir fremstu getu. Það er svo hætt við að við veljum óþarfa og gleymum því nauð­syn­lega. Listinn flýtir líka fyrir, því mörg þurfum við að drösl­ast í gegnum troð­fullar búðir með vinnu­dag­inn ennþá á herð­unum, með hund­inn úti í bíl og börnin að hjálpa til.

Blaðið og penn­inn eru óbrigðult ráð en það eru ýmsir aðrir kostir fyrir okkur í dag sem geta létt okkur lífið. Frábær öpp eins og AnyList, Out of Milk hjálpa þér að gera lista en svo eru önnur ítar­legri eins og Yummly eða Spoonacular sem hjálpa þér líka til dæmis að skipu­leggja mál­tíðir og fylgj­ast með birgða­stöð­unni.

Skipulegðu máltíðir

„Hvað eigum við að hafa í mat­inn í kvöld?“ er mögu­lega sú setn­ing sem aðilar sem búa saman hafa hvað oft­ast hent á milli sín. Þá eru skáp­arnir opn­aðir og nið­ur­staðan liggur fyrir; það er ekk­ert til nema hakk. Þá þarf að fara í búð­ina og heim kemur bréf af faj­itas kryddi sem endar svo við hlið­ina á hinu faj­itas krydd­inu í krydd­skápnum.

Með því að stilla upp mál­tíðum viku fram í tím­ann verður auð­veld­ara að gera inn­kaupa­list­ann og sporna við mat­ar­sóun. Það þurfa ekki allar mál­tíðir að vera þriggja rétta með sósu og eft­ir­rétti.

Farðu yfir skápana heima fyrst

Að kaupa ekki það sem við eigum til er 100% sparn­aður. Við vitum alltaf nákvæm­lega hvað er til í skáp­unum þangað til einn dag­inn áttum við okkur á því að við eigum sex pakka af Ritzkexi, bland­aðar teg­undir af pakkanúðlum, tvö hálf glös af kar­dimommu­dropum, þrjá ryk­fallna Royal búð­inga og svo tvær dósir af nið­ur­soðnum ávöxtum sem eng­inn man eftir að hafa viljað.

Eigðu nóg af því sem þú notar mest

Það er miklu erf­ið­ara að velja dýran og óhollan skyndi­bita þegar það er flest til í fljót­lega rétti heima. Til dæmis pasta, hrís­grjón, krydd, nið­ur­suðu­vara og pakka­vara geym­ast vel og henta í marga fljót­lega rétti.

Kauptu í magni, skiptu upp í smærri einingar og frystu

Margir sem búið hafa erlendis þekkja það að kaupa í magni, skipta niður í frysti­poka eða box og grípa svo í það sem vantar eftir hent­ug­leika. Oftar en ekki er ódýr­ara að kaupa í magni og smá forði af vöru í frysti eða frystikistu fækkar ferðum í búð­ina. Kjöt, fiskur, brauð­meti, bakk­elsi, sumir ostar, mjólk og margar mjólk­ur­af­urðir og álegg henta vel til þess að frysta og geyma.

Veldu öftustu vöruna

Það er þekkt að mat­vöru­búðir stafli nýj­ustu vör­unum aft­ast til að passa upp á að elstu vör­urnar selj­ist fyrst. Ef þú tekur þessa öft­ustu ertu að tryggja þér að varan end­ist lengur hjá þér og renni síður út.

Settu þér eyðslumarkmið

Áætlaðu þér ákveðna upp­hæð á viku í mat­ar­inn­kaup og taktu frá í byrjun mán­að­ar­ins. Að setja reiðufé í umslag er klass­ísk aðferð en í dag erum við með svo mörg raf­ræn tól til að hjálpa okkur við þetta í dag. Ef við fylgj­umst með því sem við eyðum erum við lík­legri til að spara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi