Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bubbi telur nóg komið og taka þurfi völdin af Þórólfi sóttvarnarlækni

Bubbi telur nóg komið og taka þurfi völdin af Þórólfi sóttvarnarlækni
Bubbi varar við svik­urum

Hörður Ægisson rit­stjóri Mark­að­ar­ins segir að „áfram heldur fárið. Þrátt fyrir að sumir fjöl­miðlar og sótt­varna­yf­ir­völd reyni að telja okkur ítrekað trú um annað, þá er ekki nokk­urt neyð­ar­á­stand í gangi. Það hlýtur því raunar að vera orðið lög­fræði­legt vafa­mál hvort sótt­varna­læknir hafi enn umboð til þess að grípa til aðgerða á borð við þær að skikka reglu­lega með vald­boði þús­undir full­frískra bólu­settra ein­stak­linga, með engin ein­kenni, í stofu­fang­elsi með til­heyr­andi raski fyrir allt sam­fé­lagið og atvinnu­lífið. Með sama fram­haldi er aðeins tíma­spurs­mál hvenær hugs­andi fólk fer eðli­lega að spyrja sig hvort það ætli sér að hlýða þessum ofsa­fengnu sótt­kví­ar­reglum,“ segir Hörður í leið­ara sínum og á Facebook-síðu sinni deilir Bubbi Morthens pistl­inum og skrifar ein­fald­lega við færsl­una: „Sammála.“

Og Hörður heldur áfram:

Ef Covid væri að koma upp núna og tíðni alvar­legra veik­inda væri eins lág og við sjáum um þessar mundir, myndi tæp­ast hvarfla að nokkrum manni að til­efni væri til að ganga eins frek­lega á athafna­frelsi og borg­ara­leg rétt­indi fólks í nafni almanna­ör­yggis. Ísland er með eitt hæsta hlut­fall bólu­settra í heim­inum og spít­ala­inn­lagnir eru ekki mikið meiri en dæmi eru um úr árlegum inflú­ensu­f­ar­öldrum eða svínaflens­unni. Eðlilega rek­inn spít­ali, sem af ein­hverjum ástæðum virð­ist ekki vera staðan í dag, á að ráða vel við slíkt. Alvarleg veik­indi eru sjald­séð og flestir sem grein­ast með Covid eru ekki veikir. Sjúk­dóm­ur­inn er nú svo „alvar­legur“ að í flestum til­vikum finnst hann ekki nema með prófi.“

Hörður nefnir að nágranna­lönd okkar, svo sem Danmörk og Bretland, séu að aflétta öllum hömlum „þrátt fyrir að vera skemur á veg komin í bólu­setn­ingum. Á sama tíma sættum við okkur hins vegar við að fram­fylgja mun harð­ari sótt­varna­ráð­stöf­unum, bæði inn­an­lands og eins við landa­mærin. Það er ekki hægt að lifa við hömlur og ótta til lengri tíma, einkum þegar ljóst er að hættan gagn­vart lífi og heilsu fólks er ekki meiri en raun ber vitni. Við búum í frjálsu sam­fé­lagi þar sem rétt­læta þarf íþyngj­andi aðgerðir með sterkum rökum, svo ekki sé talað um þau efna­hags­legu, félags­legu og and­legu áhrif sem sam­komu­tak­mark­anir og víð­tæk grímu­skylda hafa á allt atvinnu­lífið og almenn­ing.“

Hörður segir að „nýjasta útspil rík­is­stjórn­ar­innar er að setja grímur á börn,“ finnst ein­fald­lega að nú sé „mál að linni og for­ystu­menn stjórn­mála­flokk­anna verða að grípa inn í og taka völdin af sótt­varna­lækni, eins og hann hefur raunar sjálfur kallað eftir. Þjóðinni var lofað frelsi og sem næst eðli­legu lífi ef hún tæki við bólu­efn­inu sem yfir­völd mæltu með – og hefur ræki­lega sannað gildi sitt. Við stóðum við okkar, og nú þurfa stjórn­völd að standa við sitt, ann­ars má búast við því að þeim verði refsað harð­lega í kom­andi kosn­ingum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætti að hafa af því veru­legar áhyggjur.“

Eðlilega hefur far­ald­ur­inn komið illa við alla heims­byggð­ina og líka við tón­list­ar­menn og aðra lista­menn sem hafa tekjur af tón­leik­haldi og því ekk­ert óeðli­legt að Bubbi sé „sam­mála“ Herði um að nóg sé komið, en að tala um að „taka völdin“ af Þórólfi er nú mögu­lega full mikið af því góða, en fólki er auð­vitað frjálst að hafa skoðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi