Tryggvi nokkur, íbúi í Grafarvogi, er einn fjölmargra hverfisbúa sem hefur fengið nóg af þeim fnyk sem berst frá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi. Það er ekki bara fnykurinn sem íbúarnir hafa fengið nóg af heldur líka flugnaplágunni sem virðist fylgja í kjölfarið.
Tryggvi gerir pláguna að umtalsefni í hópi hverfisbúa á Facebook. Þar segir hann:
„Ertu komin/n með nóg af flugum og skítalykt úr Gufunesi? Hvet alla til að senda kvörtun á [email protected] Það er með öllu oþolandi að geta ekki haft opinn glugga og þurfa að hlaupa um allt með Morgunblaðið til að drepa óvelkomna gesti sem eru griðarlega snöggir og fljotir að flyja. Vonandi verður starfsleyfið afturkallað og fyrirtækjunum gert að flytja sina starfsemi i burtu.“
Fjölmargir íbúar virðast þekkja vandann. Áslaug er ein þeirra. „Moltugerðin í Gufunesi, flugurnar sem koma inn í hýbílin þarna er skýringin. Þó ég finni ekki þessa lykt, þá koma flugurnar og yfirfylla heimilið,“ segir Áslaug.
Heiðbjört nokkur virðist hafa sloppið við lyktina en flugurnar að gera útaf við hana. „Hér er allt fullt af flugum og 50+ fara í ryksuguna á dag. Hef aldrei fundið umrædda lykt og aldrei áður orðið fyrir svona fluguinnrás,“ segir Heiðbjört.





















Athugasemdir