Raunveruleikastjarnan og áhrifavaldurinn skemmtilegi, Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, opnaði sig um þyngdaraukningu sína á Twitter nýlega.
Binni Glee tók sig taki og byrjaði á kúr sem kallaður er ketó, í árslok 2019. Binni er opinn og skemmtilegur maður sem leyfði fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast með árangri sínum í átakinu.
Í júlímánuði í fyrra greindi hann frá því að hann hafði lést um heil fimmtíu kíló.
Binni er Akureyringur en fluttist til Reykjavíkur í vor og hefur sagt að eftir flutninnginn hafi matarfíkn hans orðið æ erfiðari viðureignar, og hefur Binni bætt á sig um þrjátíu kílóum.
Hann opnaði sig á Twitter um þyngdaraukninguna og það sem hann telur vera fitufordóma í sinn garð, sem hann segist hafa orðið fyrir barðinu á samfélagsmiðlum nýlega, og sérstaklega er hann ósáttur við viðbrögð eins fjölskyldumeðlims hans:
„Ég er svo fkn þreyttur af fitufordómum sem ég fæ í lífinu frá báðum fjölskyldum mínum og öðrum,“ segir hann meðal annars í færslunni sem vakið hefur mikla athygli.
Og bætir við:
„Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá er ég búinn að þyngjast um 30 kg síðan ég flutti suður. Matarfíknin „kikkaði“ mjög fljótt inn og ég er búinn að vera sjúklega þunglyndur og bara ekki ég sjálfur. Mér finnst þetta bara svo leiðinlegt því það lætur mér líða enn verr og allt sem ég var búinn að afreka í þyngdartapinu fór í ruslið. Ég veit alveg að sumir eru að reyna að hjálpa en það er hægt að segja hlutina öðruvísi.“
Hann nefnir ummæli frá fjölskyldumeðlim sem særðu hann mikið:
„Frænka mín bókstaflega skrifaði við mynd af mér sem mamma deildi: „Brynjar is so fat, take care of it.“ Skilurðu, er ekki í lagi???“































Athugasemdir