Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristín öskuill í Mosfellsbæ: „Við munum leita að þessum dólgum“

Kristín öskuill í Mosfellsbæ: „Við munum leita að þessum dólgum“
Myndin er sam­sett og teng­ist frétt­inni ekki með beinum hætti.

Kristín nokkur, íbúi í Mos­fellsbæ, kallar eftir vitnum eftir að dóttir hennar var áreitt af tveimur strákum á vespum við Tunguveg. Hún full­yrðir að drengirnir hafi ógnað með bar­efli og sýnt ungu stúlkunni afar ógn­andi hegðun.

Atburð­ar­rásinni lýsir Kristín í íbúa­hópi Mos­fell­inga á Facebook. Hún lýsir upp­lifun­inni með eft­ir­far­andi hætti og óskar eftir vís­bend­ingum frá íbúum.

„Dóttir mín var að koma heim eftir Tungu­veg­inum í kvöld, ca. kl. 23. Það voru tveir strákar á vespu að ógna henni og áreit. Hún var á leið­inni niður í átt að Leir­vogs­tungu og þeir upp, þangað til þeir snéru við til atlögu við hana. Vespan var grá, mögu­lega teip á henni. Öku­mað­ur­inn hjálm­laus og far­þeg­inn líka. Þeir öskr­uðu á hana, keyrðu fram og til baka og annar þeirra var með eitt­hvað bar­efli sem hann sló í átt­ina að henni margoft,“ full­yrðir Kristín. Og heldur svo áfram:

„Ég er öskuill og langar mest út að finna þessa fanta. Allar vís­bend­ingar vel þegnar og for­eldrar stráka á vespum og for­eldrar stráka sem eiga vini á vespum, ef þið kann­ist við lýs­ing­una á strák­unum og vesp­unni viljið þið þá veraí sam­bandi við mig. Þetta er háal­var­legt mál! Við munum leita að að þessum dólgum!“

Fjöl­mörgum íbúum Mos­fells­bæjar er brugðið við færslu Krist­ínar og margir þeirra kalla eftir því að lög­reglu sé blandað í málið. Katrínu líst ansi illa á. „Úff, þetta er svaka­leg lýs­ing“, segir Katrín. Þor­steinn er einn þeirra sem bruðið er. „Þeir finn­ast þessir óþverrar. Hvet alla til að hjálp­ast að með vís­bend­ingar, þannig að svona lagað end­ur­teki sig og verði dag­legt brauð, það er hættan,“ segir Þor­steinn.

Halla á varla til orð. „Hræðileg upp­lifun fyrir hana! Vonandi finn­ast fant­arnir!,“ segir Halla. Guðrúnu er líka mjög brugðið. „Ég get ímyndað mér að hún hafi verið mjög skelkuð, þetta er alvar­legt og að mínu mati þurfa að vera afleið­ingar fyrir þessa drengi,“ segir Guðrún. Dóttir Sig­ur­veigar hefur líka lend í vespu­strákum Mos­fells­bæjar. „Dóttir mín og vin­kona hennar lentu í svip­uðu. Nema ekki bar­efli heldur hjól­uðu ítrekað ógn­andi að þeim,“ segir Sig­ur­veig.

Sonja virð­ist kann­ast við dreng­ina. „Þekki þessa lýs­ingu. Þeir hanga oft uppí sjoppu og hegða sér eins og þeir eigi heim­inn. Þeir gera engan greina­mun á ungum né full­orðnum, rífa kjaft og eru með ógn­andi hegðun,“ full­yrðir Sonja.

Og það virð­ist önnur Halla, sem einnig býr í Mos­fellsbæ, líka gera. „Eru ekki að minnsta kosti alltaf 2 hliðar á öllum málum? Skilj­an­lega hlustum við á börnin okkar og stöndum með þeim alveg sama hvað og það er það sem ég er að gera núna. Ég þekki einmitt til þess­ara drengja, „fanta“ eða „dólga eins og þú orðar svo pent. Þessi drengir eru ekki með þessa hegðun í hjarta sínu. Þeir full­yrða sjálfir að þeir héldur ekki á neinu, ógn­uðu engu eða engum með bar­efli,“ segir Halla og kallar eftir still­ingu meðal bæj­ar­búa:

„Munið það kæru Mos­fell­ingar að við erum að ræða um börn sem hafa til­finn­ingar og get ég full­yrt að þeir eru ekki hopp­andi glaðir með prakk­ara­svip framan í sér, þvert á móti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi