Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn Steinbekk brjálaður út í borgina: „Þetta er algjörlega til skammar“

Björn Steinbekk brjálaður út í borgina: „Þetta er algjörlega til skammar“
Björn Stein­bekk

Athafna­mað­ur­inn Björn Stein­bekk er brjál­aður út í Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra og Lilju Alfreðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra. Hann er sann­færður um að hvor­ugt þeirra myndi sætta sig við sömu vinnu­að­stöðu og börnin í Foss­vogs­skóla og leik­skól­anum Kvista­borg. Björn taggar þau bæði við skammar­færslu sína inn í hópi hverf­is­búa Smá­í­búða­hverf­is­ins á Facebook.

Neyð­ar­á­stand ríkir í hús­næð­is­málum Foss­vogs­skóla. Myglu­skemmdir hafa haft á­hrif á skóla­starfið í Foss­vogs­skóla síð­ustu ár. Raka­skemmdir eru enn til staðar og þá fannst asbest í glugga­kistum í bygg­ing­unum. Að óbreyttu munu 2. til 4. bekkur tíma­bundið stunda nám í hús­næði íþrótta­fé­lags­ins Víkings í Fossvogi, vegna mygl­unnar í Foss­vogs­skóla. For­eldrar nem­enda við skól­ans eru álíka reiðir og Björn, eins og sjá má á yfir­lýs­ingu for­eldra­fé­lags skól­ans sem finna má hér neðar.

Skóla­starf Foss­vogs­skóla mun í vetur fara fram í færan­legum kennslu­stofum og í Korpu­skóla. Bráða­birgða­skúr sem átti að taka á móti yngsta skóla­stig­inu í Foss­vogi er hins vegar ekki til­búinn og því munu krakk­arnir fá kennslu í Víkinni, fé­lags­heim­ili Víkings, þangað til.

Björn er afar ósáttur með stöðu mála og við skulum gefa honum orðið:

„Myndir þú sætta þig við sömu vinnu­að­stöðu og börnin í Foss­vogs­skóla og Kvista­borg? Upp er komin mygla í enn og aftur og segir sagan, sem skóla­stjórn­endur hvorki neita né játa, að þessir bekkir eigi að vera í úti­kennslu fyrstu vik­urnar (svona svipað og þú mættir í vinn­una og yrði sagt að fara með tölv­una eða verk­færin þín í Hús­dýra­garð­inn í 8 tíma). Já, enn heldur meiri­hlut­inn í Reykja­vík og emb­ætt­is­menn borg­ar­innar áfram að brjóta lög um skóla­hald og kennslu,“ segir Björn ákveð­inn.„Kvista­borg er svo enn ein hörm­ungin. Þar hefur ekki verið lyft hamar eða rök­hugsun í allt sumar og börnin send um hvipp­inn og hvapp­inn (vona að þetta sé rétt stafað). Það er verið að brjóta lög sem eiga að tryggja börnum okkar við­un­andi starfs­um­hverfi og menntun.“Ljóst þykir að fjöldi hverf­is­búa er afar ósáttur með stöðu mála í hverf­inu þegar kemur að grunn- og leiks­skóla­starf­inu. Ragnar nokkur er einn þeirra: „Þetta er algjör­lega til skammar,“ segir Ragnar.For­eldra­fé­lag Foss­vogs­skóla hefur sent frá sér harð­orða yfr­lýs­ingu þar sem segir meðal ann­ars að það hús­næði sem bjóða eigi börn­unum sé með öllu óboð­legt og dóm­greind­ar­leysi borg­ar­yf­ir­valda sé með ein­dæmum. Yfir­lýs­ing­una má sjá í heild sinni hér að neðan.

Yfir­lýs­ing frá stjórn for­eldra­fé­lags Foss­vogs­skóla

Komið er upp neyð­ar­á­stand í hús­næð­is­málum 2.-4. bekkjar í Foss­vogs­skóla í byrjun skóla­árs. Skóla­yf­ir­völd í Reykja­vík hafa ákveðið að hola minnst 130 börnum í kjall­ara og and­dyri íþrótta­húss Víkings. Umrætt hús­næði er full­kom­lega óboð­legt sem kennslu­hús­næði og lýsir valið á hús­næð­inu dóm­greind­ar­leysi skóla­yf­ir­valda á þörfum barna og starfs­fólks í námi og starfi. Mál er að linni. Við skorum á borg­ar­yf­ir­völd að bregð­ast við og finna án tafar við­eig­andi og heilsu­sam­legt hús­næði fyrir þessi 7, 8 og 9 ára gömlu börn og kenn­ara þeirra. Ekki má fórna einum ein­asta skóla­degi fyrir vand­ræða­gang og van­höld borg­ar­yf­ir­valda í mál­inu.

Stjórn for­eldra­fé­lags­ins lýsir furðu á seina­gangi yfir­valda og úrræða­leysi þessa stærsta sveit­ar­fé­lags lands­ins, þegar ljóst var fyrir mán­uði síðan að fær­an­legar kennslu­stofur yrðu ekki til­búnar í tæka tíð. Börn og starfs­fólk Foss­vogs­skóla hafa verið á ver­gangi meira og minna í tæp þrjú ár og stærstan hluta þess tíma vegna aðgerð­ar­leysis borg­ar­yf­ir­valda. Starfs­fólk og for­eldrar hafa sýnt van­mætti yfir­valda lang­lund­ar­geð, langt umfram það sem til má ætl­ast. Enn höggva borg­ar­yf­ir­völd í sama knérunn og mis­bjóða umbjóð­endum sínum. Kennarar og starfs­fólk sem leitað hafa til okkar eru upp­gefin og raun­veru­leg hætta er á að fleiri reynslu­miklir starfs­menn yfir­gefi skól­ann en gerðu síð­ast­liðið vor. For­eldrar vilja stöð­ug­leika og náms­frið fyrir börnin og sumir hverjir eru að leita hóf­anna í öðrum skólum af þeim sökum.

Jafn­framt lýsir stjórn von­brigðum með sam­skipta­leysi við for­eldra og starfs­fólk. Líkt og lög kveða á um starfar skóla­ráð við Foss­vogs­skóla og í því eiga for­eldrar og starfs­fólk full­trúa. Lögboðið hlut­verk skóla­ráðs felst m.a. í að vera umsagn­ar­að­ili um meiri­háttar breyt­ingar á skóla­starfi og vaka yfir heilsu og vellíðan nem­enda í hví­vetna. Skólaráð hefur ekki verið virkjað á neinum tíma­punkti í aðdrag­anda skóla­byrj­unar, þrátt fyrir aug­ljósa þörf. Full­trúar for­eldra og starfs­fólks frétta af mál­efnum skól­ans í gegnum fjöl­miðla og klór­þvegnar frétta­til­kynn­ingar skóla­yf­ir­valda og upp­lýs­inga­full­trúa borg­ar­innar. Samstarf við skóla­sam­fé­lagið er hverf­andi nú líkt og oft áður, þrátt fyrir lof­orð um bót og betrun úr ræðu­stóli borg­ar­stjórnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi