Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar fóru til Mílanó og Sjanghæ og átu gull: „Það var bara málmbragð“

Íslendingar fóru til Mílanó og Sjanghæ og átu gull: „Það var bara málmbragð“

Þegar útrásin stóð sem hæst og íslenskir vík­ingar fjár­festu um heims­byggð­ina þvera og endi­langa var ýmis­legt sem stóð upp úr. Firr­ingin var á köflum algjör. Hæst reis bruðlið og ruglið þegar útrás­ar­vík­ing­arnir og sam­starfs­menn þeirra lögð­ust í gullát.

Gullflögur á sveppi

Í ferð Glitnis til Sjanghæ í Kína í nóv­em­ber árið 2007 var gest­unum meðal ann­ars boðið að borða gull. DV birti á sínum tíma myndir frá ferð­inni til Sjanghæ þar sem gull­flögur sjást ofan á trufflu­svepp sem hvílir á fisk­stykki. Fisk­ur­inn er lík­ast til þorskur eða ýsa. Með gull­inu og sjáv­ar­fang­inu var borið fram gul­leitt soð og kín­verskt pak choi-kál.
Kína­ferðin var farin í tengslum við ráð­stefnu um sjáv­ar­út­veg sem Glitnir hélt í Sjanghæ í nóv­em­ber það ár en Glitnir hafði opnað útibú þar í borg árið áður.
Gullát Glitnis í Kína er annað til­fellið sem þekkt er þar sem íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki buðu upp á gull til átu í útlöndum.

Risotto með gulli

Fyrra þekkta dæmið um slíkt gullát var í Mílanó­ferð Lands­bank­ans í sept­em­ber þetta sama ár. Greint var frá því í tíma­rit­inu Mannlífi. Ban kinn flutti vild­ar­vini sína til Ítalíu. Þá lögðu um 300 gestir Lands­bank­ans risotto með gull­flögum í sér til munns og sagði einn þeirra í sam­tali við tíma­ritið að gull væri ekki sér­stak­lega ljúf­fengt á bragðið. „Það var
bara málm­bragð af því,“ sagði boðs­gest­ur­inn við DV á þeim tíma.
Nokkuð við­eig­andi hefur því þótt að bera gull á borð fyrir gesti bank­anna í utan­lands­ferðum þeirra á árunum fyrir hrunið. Heim­ild­ar­menn DV sem borðað hafa gull sögðu þó allir að það sé alls ekki borið fyrir fólk vegna þess að það sé herra­manns­matur. Ástæðan sé ein­fald­lega sú að það þyki fínt og flott að leggja sér þennan eðal­málm til munns og sýni svo ekki verði um villst að menn eigi mikið undir sér.
Öfugt við það sem flestir gætu haldið hefur gullát tíðkast í margar aldir og not­uðu eðal­bornir menn í Evrópu það til dæmis til að skreyta risotto, sæt­indi og ávexti á 16. öld.
Sömu­leiðis kann­ast margir mat­reiðslu­menn við slíkt átgull og nota það til skreyt­ingar. Fæst fólk hefur hins vegar heyrt að hægt sé að borða gull og kom það til dæmis flatt
upp á gest­inn í Mílanó­v­eislu Lands­bank­ans sem lýsti veislunnu og oflæti hinna nýríku við Mannlíf. .

Mídas konungur

Sögur af gulláti Íslend­inga í ferðum á vegum íslensku bank­anna fyrir hrunið kalla óhjá­kvæmi­lega fram í hug­ann grísku goð­sögn­ina um Mídas kon­ung. Mídas bað guð­inn Díonýsos að upp­fylla þá ósk sína að allt sem hann snerti yrði að gulli. Díonýsos varð við
þess­ari ósk Mídasar. Fyrst um sinn var hann him­in­lif­andi yfir hæfi­leik­anum en síðar meir átt­aði hann sig á því að honum fylgdu ákveðnir erf­ið­leikar: Dóttir hans unga varð að gulli
þegar Mídas snerti hana og mat­ur­inn sem hann ætl­aði að borða sömu­leiðis. Mídas átt­aði sig á því að hann hefði verið blind­aður af græðgi þegar hann bað Dínýsos um að upp­fylla þessa
ósk sína og bað guð­inn því um að taka hæfi­leik­ann aftur ef hann gæti.
Guðinn varð við þess­ari ósk Mídasar og losn­aði hann þar með við þá bölvun sem fylgdi því að breyta öllu í gull við minnstu snert­ingu.

Hrunið og gullæturnar

Sagan af Mídasi er oft tekin sem dæmi um hvernig farið getur fyrir mönnum þegar þeir verða blind­aðir af græðgi og má líta svip­uðum augum á sög­urnar af gulláti Íslend­inga á útrás­ar­ár­unum. Þetta má til sanns vegar færa. Margir þeirra sem átu gullið á Ítalíu og í Kína urðu undir í hrun­inu. Sumir lentu í fang­elsi og aðrir töp­uðu mestu sínu. Gest­gjafi Lands­bank­ans í Mílanó var Sigurjón Þ. Árnason banka­stjóri. Hann hefur barist fyrir dóm­stólum síðan ghrunið varð. En svo voru það líka gullætur sem komust í gegnum hrunið og héldu öllu sínu.

Greinin  er byggð á skrifum Inga Freys Vil­hjálms­sonar í Mannlífi og DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi