Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólafur Teitur missti konu sína fyrir tveimur árum: „Mér líður vel þótt sorgin verði alltaf með mér“

Ólafur Teitur missti konu sína fyrir tveimur árum: „Mér líður vel þótt sorgin verði alltaf með mér“

Ólafur Teitur Guðnason missti konu sína, Eng­il­björtu Auð­uns­dóttur, fyrir rúmum tveimur árum. Saman áttu þau tvo syni og gengur hann enn með gift­ing­ar­hring­inn á hendi. Ólafur horfir bjart­sýnn fram á veg­inn og er þakk­látur fyrir að hafa átt svo ynd­is­lega mann­eskju sem lífs­föru­naut sinn.

Ólafur Teitur hefur ritað minn­ing­ar­bók þar sem hann fjallar um sorg­ar­ferlið og segir hann að skrifin hafi gefið sér mikið. Í bók­inni skrifar Ólafur um veik­indin, sjúkra­hús­leg­una í Gauta­borg, til­finn­ingar sínar, ótta og vonir.

Eng­il­björt lést í blóma lífs­ins hinn 11. apríl 2019, þá aðeins 46 ára að aldri. Í við­tali Morg­un­blaðs­ins við Ólaf kemur fram að Engi­björt var hámenntuð glæsi­leg kona, móðir, eig­in­kona, dóttir og vin­kona. Þá er hún sögð hafa verið með ein­stak­lega dill­andi hlátur.

Sjöundi mars 2019 er dagur sem líður Ólafi seint úr minni. Eng­il­björt vakti hann snemma morg­uns með þeim orðum að hann yrði að hringja á sjúkra­bíl, hún væri lík­lega komin með það sama og síð­ast. Tveimur árum áður fékk hún bólgu í band­vef utan um hjartað en náði sér á nokkrum vikum.

„Hún vakti mig og var mjög illa haldin og mátt­farin. Ég varð ekki strax mjög óró­legur því síð­ast hafði hún jafnað sig á þessu,“ segir Ólafur. Þegar hann kom hins var út í bíl fyrir utan Land­spít­al­ann brast hann í grát. „Ég upp­lifði í fyrsta sinn að Eng­il­björt gæti verið í alvar­legri lífs­hættu. Eftir á að hyggja tók ég þarna út fyrstu sorg­ina yfir því að missa hana. Dauðinn gerði vart við sig í vit­und minni og ég hug­leiddi í fyrsta sinn að hún gæti dáið.“

Fjöl­skyldan á góðri stundu. Hjónin ásamt son­unum tveimur; Guðna Þór og Kára Frey. Mynd / Eng­il­bjort.is.

Staða Eng­il­bjartar var svo alvar­leg að hún var send með hraði til Sví­þjóðar. Ólafur ótt­að­ist mjög að Eng­il­björt myndi ekki lifa af. „Það sem dró úr von­inni var sú stað­reynd að lækn­arnir voru mjög heið­ar­legir með stöð­una og voru ekki með bjart­sýni sem ekki var inni­stæða fyrir. Ég er þakk­látur fyrir það. Hún var sett í margar aðgerðir og fyrir eina aðgerð­ina sagði lækn­ir­inn við okkur Kára að hún myndi mögu­lega ekki lifa aðgerð­ina af,“ segir Ólafur og heldur áfram:

„Ég var búinn að ótt­ast þetta allan tím­ann. Ég hafði gert mér grein fyrir að þetta gæti farið á versta veg. Þetta hékk á blá­þræði alveg frá því dag­inn sem við fórum fyrst á Land­spít­al­ann. Bjart­sýnin hafði samt alveg átt rétt á sér því við höfðum náð að sigla fram hjá mörgum skerjum,“ segir Ólafur.

Þegar hér er komið við sögu segir lækn­ir­inn Ólafi að kveðja Eng­il­björtu og síðan yrði slökkt á vél­unum sem héldu í henni lífnu. „Þetta er allt í lagi elskan mín, þú mátt fara,“ eru orðin sem Ólafur Teitur minn­ist að hafa hvíslað að Eng­il­björtu. Á fáeinum mín­útum lét hún smám saman af líf­róðr­inum í full­kominni frið­sæld.

Í dag gengur Ólafur enn með gift­ing­ar­hring­inn á hendi en erf­ið­ast þótti honum að fara í gegnum föt Eng­il­bjartar. Það var ekki fyrr en ári eftir and­látið sem hann treysti sér til þess.

„En þetta voru rosa­lega þung skref að taka því mér leið eins og ég væri að gefa yfir­lýs­ingu um að hún væri ekki vel­komin aftur; eins og ég væri að henda henni út. Þetta var eig­in­lega það erf­ið­asta við allt ferlið; að setja þennan punkt aftan við allt saman. Ég hef kom­ist að því að það er hægt að vera mjög sorg­mæddur og mjög glaður á sama deg­inum, sitt á hvað. Og það sé ekki óheil­brigt. Ég er hvorki bitur né reiður. Manni má líða illa en manni má líka líða vel. Mér líður vel þótt sorgin verði alltaf með mér. Henni lýkur ekk­ert og hún getur verið fal­leg líka. Þótt það sé mót­sagna­kennt þá er ein­hver feg­urð í sorg­inni. Það er engin regla og allir upp­lifa það ekki þannig, en ég þarf ekki að skamm­ast mín fyrir að vera öðru hverju líka glaður,“ segir Ólafur.

Hér má finna við­tal Morg­un­blaðs­ins við Ólaf í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi