Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Atli lögfræðingur myrti í Öskuhlíð og faldi líkið:„Í næstu andrá stóð ég yfir Einari vini mínum látnum“

Atli lögfræðingur myrti í Öskuhlíð og faldi líkið:„Í næstu andrá stóð ég yfir Einari vini mínum látnum“

Fá morð­mál hafa vakið meiri athygli og óhug hin seinni ár en þegar Atli Helgason lög­frœð­ingur varð Einari Erni Birg­is­syni, við­skipta­fé­laga sínum, að bana í Öskju­hlíð 8. nóv­em­ber árið 2000. Hann ók með líkið suður á Reykja­nes þar sem hann faldi það í hraun­sprungu og máði vand­lega út öll vegs­um­merki eftir verkn­að­inn.

Einar og Atli höfðu þekkst um ára­bil en end­ur­nýj­uðu kynni sin snemma árs 2000 og ákváðu að hefja sam­starf við versl­un­ar­rekstur á Lauga­vegi. „Rekst­ur­inn var ómögu­legur án Einars og ég sat einn að skuld­bind­ingum sem voru mér algjör­lega ofviða. Um leið og ég varð
Einari að bana und­ir­rit­aði ég mitt eigið gjald­þrot,“ við­ur­kenndi Atli lög­maður í við­tali eftir morðið.

„Við stöndum öll ráð­þrota frammi fyrir þessu og skiljum ekki hvað hefur getað gerst. Einar Örn er ekki maður þeirrar gerðar að hann láti sig hverfa á þennan hátt. Það er óhugs­andi.“

Þetta sagði Atli hins vegar skömmu eftir hvarf Einars Arnar. Atli myrti Einar Örn með því að berja hann ítrekað með hamri í höf­uðið 8. nóv­em­ber árið 2000. Árásin átti sér stað í Öskju­hlíð.

Atli hefur við­ur­kennt hann hafi verið sturl­aður af kóka­ínn­eyslu á þeim tíma sem hann drap Einar og kom honum fyrir í skotti bif­reiðar. Talið var að Einar hafi jafn­vel verið með lífs­marki á þeirri stundu.

Síðar tók Atli þátt í leit­inni að Einari vini sínum, sat fundi með fjöl­skyld­unni og furð­aði sig á hvarf­inu í sam­tali við Eirík Jónsson á DV. Þjóðin var slegin óhug þegar hinn ungi, reglu­sami dugn­að­ar­forkur hvarf spor­laust og buð­ust ótal Íslend­ingar til að taka þátt í leit­inni.

Hlaut uppreist æru

Fjöl­skylda Einars heldur því fram að Atli hafi aldrei sýnt í verki að hann sjái eftir að hafa myrt Einar. Atli sat í fang­elsi í níu ár vegna morðs­ins. Birgir Örn Birgis faðir Einars sagði í við­tali árið 2016:

„Hann hefur aldrei nokkurn tíma gert eitt eða neitt til að sýna iðrun. Mér finnst það bara vera í beinu fram­haldi af því hversu útsmog­inn hann var á meðan þetta var að ganga yfir.“

Morðið á Einari er eitt þekktasta saka­mál sem upp hefur komið hér á landi. Atli hefur frá því að morðið var framið verið áber­andi í fjöl­miðlum. Hann var tals­maður fanga og var marg­sinnis á síðum blað­anna vegna þessa. Þá hefur hann farið í við­töl til að ræða um morðið á Einari.

Atli var dæmdur í 16 ára fang­elsi fyrir mann­drápið og var sviptur lög­manns­rétt­indum sínum. Lög­mað­ur­inn fékk upp­reist æru árið 2016. Það sama ár lagði hann fram beiðni um að fá lög­manns­rétt­indi sín aftur. Hann dró síðan beiðn­ina til baka og sagði þá ákvörðun byggja á að hann hefði end­ur­vakið þján­ingar aðstand­enda Einars. Hann ákvað svo að sækja um rétt­indin að nýju.

Vinirnir

Atli og Einar Örn voru við­skipta­fé­lagar og opn­uðu saman tísku­versl­un­ina GAP Collection á Lauga­vegi 7. Einar átti 80 pró­sent í fyr­ir­tæk­inu en Atli 20 pró­sent.

Vinirnir kynnt­ust í gegnum knatt­spyrn­una. Atli var fyr­ir­liði Víkings þegar Einar Örn hóf að leika þar með meist­ara­flokki og var fyr­ir­mynd allra ungra drengja í félag­inu. Úr Víkingi lá leið Einars í Val, þaðan í Þrótt og svo til norska 1. deild­ar­liðs­ins Lyn í Ósló þar sem Einar lék eina leik­tíð. Eftir heim­kom­una frá Noregi gekk Einar Örn til liðs við KR.

Einar Örn er sagður hafa verið glaður í bragði síð­degis þann 7. nóv­em­ber árið 2000 þegar hann kvaddi starfs­fólk sitt í GAP Collection. Daginn eftir mælti hann sér mót við atla en sá síð­ast­nefndi bað vin sinn um aðstoð vegna bil­aðs öku­tækis. Ekkert spurð­ist til Einars eftir þennan dag og Atli einn til frá­sagnar um atburða­rás­ina. Hundruð manna og kvenna leit­uðu Einars og öll þjóðin fylgd­ist með.

Atli segir að þeir Einar hafi rætt um fjár­mál og það hafi soðið upp úr. Þá hafi Atli slegið hann með hamri í höf­uðið. Atli hefur haldið fram að hann hafi eftir höggin þungu reynt hjarta­hnoð og að blása lífi í Einar. Áverkar á lík­inu voru miklir, sér­stak­lega á höfði. Í fang­els­is­dómi yfir Atla kom þetta meðal ann­ars fram:

„Árás ákærða var ofsa­fengin og sló hann Einar Örn fjórum sinnum í höf­uðið með hamri og hefur vilji ákærða á þeirri stundu verið styrkur og ein­beittur. Eftir það ákvað ákærði að leyna atburð­inum og los­aði sig við það, sem hann taldi sönn­un­ar­gögn. Eftir játn­ingu ákærða 15. nóv­em­ber sl. hefur hann skýrt greið­lega frá atburðum. Dómurinn telur engar refsi­lækk­unar­á­stæður vera fyrir hendi hjá ákærða. Hann ber fulla refsi­á­byrgð á gerðum sínum.“

Að end­ingu ját­aði Atli á sig morðið og  benti lög­reglu á líkið. Líklega hefur Einar verið nýlát­inn eða með lífs­marki þegar Atli los­aði sig við líkið í Arn­ar­set­urs­hrauni ekki langt frá Grinda­vík.

Með þessum orðum lýsti Atli and­ar­tak­inu örlaga­ríka:

„ Eitt and­ar­takið hlógum við Einar saman eins og okkar var gjaman háttur, enda var allt í lukk­unnar vel­standi, eftir því sem við vissum best. í næstu andrá stóð ég yfir Einari vini mínum látnum. Það hafði gerst af mínum völdum.“

Víðtæk leit

Þegar Atli var í við­tali beð­inn um að lýsa Einari vini sínum hafði hann þetta að segja:

„Einar Örn var strákur sem var alltaf í góðu skapi og vildi öllum vel, kannski gekk hann stundum of langt í því að þjóna öðrum. En hann var ofboðs­lega skemmti­legur og gerði grín að öllum, líka sjálfum sér. Hann var mjög mynd­ar­legur en fór mjög var­lega í umgengni við
konur og var síður en svo neinn kvenna­bósi og mjög heið­ar­legur í öllum sinum sam­skiptum.“

Atli tók þátt í víð­tækri leit sem fjöl­skylda og vinir Einars skipu­lögðu ásamt björg­un­ar­sveitum og lög­reglu. Þá mætti hann einnig á bæna­stundir og fór í við­töl við fjöl­miðla. Þar lýsti hann yfir djúpum áhyggjum vegna vinar síns. Sex dögum síðar var hann hand­tek­inn og fram­kvæmd hús­leit á heim­ili hans. Þar fund­ust blóðug föt. Þá kom einnig í ljós að símar þeirra höfðu verið á sama svæði á Suð­ur­nesjum. Atli var kom­inn út í horn og ját­aði morðið en hafði í fjöl­miðlum látið hafa þetta eftir sér meðan leitin stóð:

„Einar hringdi í mig klukkan rétt rúm­lega tíu á mið­viku­dags­morg­un­inn og sagð­ist þá vera á leið­inni til min; yrði kom­inn innan fimm mín­útna. Síðan hef ég ekki heyrt frá honum.“

Atli við­ur­kenndi að í kjöl­farið morðs­ins  hafi sjálfs­morðs­hugs­anir sótt á hann en hann hafi kosið að lifa og takast á við afleið­ingar gerða sinna. Hann lýsti því síðar hvernig hann ánetj­að­ist fíkni­efnum, hvernig neyslan gerði hann að morð­ingja. DV fjall­aði ítar­lega um æsku, bak­grunn og upp­vöxt Atla. Birtist hún hér að mestu óbreytt.

Árið 1967 fluttu ung hjón með þrjú börn vestan af Holts­götu inn í nýbyggt rað­hús við Sævið­ar­sund. Þetta sama ár fædd­ist þeim fjórða barnið sem var þriðji son­ur­inn og var skírður Atli Guðjón Helgason. Hús­bónd­inn vann í Lands­bank­anum en hús­móð­irin sinnti stækk­andi barna­hópnum sem að lokum taldi sex börn. Þarna ólst Atli Guðjón upp við ást­ríkt upp­eldi í miðjum stórum systk­ina­hópi. Í hverf­inu var mikið af barna­fjöl­skyldum á þessum tíma, þetta var útjaðar borg­ar­innar og þarna bjó unga fólkið. Kjöl­festan í leik og starfi barn­anna í hverf­inu var knatt­spyrnu­fé­lagið Þróttur en völlur félags­ins og höf­uð­bæki­stöðvar eru stein­snar frá heim­ili Atla.

Atli gekk í Lang­holts­skóla og var skóla­ganga hans án stór­tíð­inda en þegar hann var þrettán ára haustið 1980 varð stór­fjöl­skyldan í Sævið­ar­sund­inu fyrir fyrsta stóra áfall­inu. Elsti bróðir Atla lést með svip­legum hætti aðeins 25 ára að aldri og lét eftir sig eig­in­konu og eitt barn. Dauða hans bar að með þeim hætti að lög­reglan veitti bil hans eft­ir­för vestur Skúla­götu að næt­ur­lagi seint í sept­em­ber. Á móts við afgreiðslu Akra­borg­ar­innar snar­beygði bíll hans og ók beint fram af bryggj­unni. Kafari fann bíl­inn 15-20 metra frá bryggju með allar hurðir læstar og öku­mann­inn lát­inn. Við þetta áfall segja kunn­ugir að fjöl­skyldan hafi dregið sig inn í skel og ekki náð að vinna úr sorg­inni með þeim hætti sem nú er gert.

Atli leit mjög upp til bróður síns sem var snjall knatt­spyrnu­maður og honum góð fyr­ir­mynd á flestum sviðum. Fjöl­skyldan hélt áfram lífs­bar­áttu sinni en næsta áfall var mjög skammt undan þegar heim­il­is­fað­ir­inn lést snögg­lega með svip­legum hætti á heim­ili fjöl­skyld­unnar í lok októ­ber 1984. Fráfall hans kom eins og reið­ar­slag bæði fyrir fjöl­skyld­una og félaga hans og varp­aði skugga yfir fjöl­skyld­una sem hefur haft áhrif á hana til þessa dags.

Þrátt fyrir þessi áföll hélt Atli sínu striki í námi og lauk stúd­ents­prófi frá Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti vorið 1987. Hann hafði æft knatt­spyrnu með Þrótti í sínu heima­hverfi en nú skipti hann um félag og gekk til liðs við Víking. Það er mál manna sem þekktu Atla og umgeng­ust hann á þessum árum að hann hafi verið ein­beittur glað­vær félagi sem átti vel­gengni að fagna i leik og starfi. Hann var félags­lyndur og opin­skár og eng­inn virð­ist hafa orðið var við í fari hans áhrif þeirra áfalla sem á fjöl­skyld­unni höfðu dunið.

Velgengnin

Eftir stúd­ents­próf sett­ist Atli á skóla­bekk í Háskóla íslands og lærði lög­fræði. Hann æfði stíft með Víkingi, varð fyr­ir­liði liðs­ins og leiddi það til sig­urs í Íslands­meist­ara­keppni árið 1991. Á þessum árum var Atli í sam­búð með unn­ustu sinni og þau eign­uð­ust saman barn 1989. Atli útskrif­að­ist úr lög­fræð­inni vorið 1993. Eftir útskrift réðst hann til starfa á lög­manns­stofu Atla Gísla­sonar, nafna síns og félaga úr Víkingi, sem var meðal þekktra stuðn­ings­manna liðs­ins.

Þeir sem störf­uðu við hlið hans í knatt­spyrn­unni segja hann hafa verið vin­margan og lífs­glaðan mann sem var gæddur tals­verðum leið­toga­hæfi­leikum og var auk þess góður knatt­spyrnu­maður. Atli skipti um íþrótta­fé­lag árið 1994 og gekk til liðs við Val og lék þar til árs­ins 1997 þegar hann lagði fót­bolta­skóna á hill­una.

Atli Helgason lög­maður.

„Þegar ég hugsa um þig líður mér vel“

Atli Helgason var dæmdur í 16 ára fang­elsi fyrir mann­dráp í maí 2001. Hann var þá einnig sviptur mál­flutn­ings­rétt­indum. Atli sat inni í tíu og hálft ár og lauk afplánun 2010.

„Ég neita því ekki að fyrsta eina og hálfa árið eftir þennan voða­at­burð var líf mitt hreint hel­víti,“ sagði Atli í sam­tali við DV þar sem hann ræddi verkn­að­inn og bætti hann því við að hann vildi ekki vor­kunn.

Atli losn­aði af Litla-Hrauni 2009 og fór þaðan á Vernd. Í frétt á RÚV var sagt að hann hefði starfað sem lög­maður frá árinu 2010 en hann var sviptur mál­fluttn­ings­rétt­indum árið 2001 vegna morðs­ins. Samkvæmt frétt Vísis hóf Atli störf hjá Versus lög­mönnum árið 2011 og var um tíma eini eig­and­inn. Í lok árs 2015 hlaut Atli svo upp­reist æru og telst nú vera með óflekkað mann­orð í skiln­ingi laga. Hann hefur ekki fengið lög­manns­rétt­indi sín aftur.

Atli tók virkan þátt í leit­inni að Einari áður en hann var hand­tek­inn fyrir morðið á sínum tíma og mætti í minn­ing­ar­at­höfn um hann. Birgir Örn Birg­is­son, faðir Einars, sagði í Frétta­blað­inu að morðið hafi haft ómæl­an­leg áhrif á fjöl­skyldu hans.

„Atli hefur aldrei sýnt nokkra iðrun til okkar í þessu sam­bandi. Við höfum aldrei heyrt í honum. Hann hefur aldrei nokkurn tíma gert eitt eða neitt til að sýna iðrun. Mér finnst það bara vera í beinu fram­haldi af því hversu útsmog­inn hann var á meðan þetta var að ganga yfir,“ sagði Birgir Örn.

Birgir Svan Birg­is­son, bróðir Einars, ræddi þennan erf­iða tíma opin­ber­lega í fyrsta sinn við Helgu Arn­ar­dóttur í þætt­inum Manns­hvörf. Þar sagði Birgir: „Það er bara stað­reynd með þennan mann. Það er sama við hvern þú talar. Það var ekki einn illan blett á honum að finna.“Einari hefur af fjöl­skyldu, vinum og kunn­ingjum verið lýst sem ein­stöku ljúf­menni. Báðir for­eldrar hans eru látnir og sagði Birgir, faðir Einars, í við­tali árið 2016 að fjöl­skyldan myndi ekki fyr­ir­gefa Atla.

„Þetta hafði gríð­ar­leg áhrif á hana mömmu mína. Blessuð sé minn­ing hennar,“ sagði Birgir jafn­framt.

Aldís Ein­ars­dóttir, móðir Einars lýsti syni sínum með þessum orðum í Íslandi í dag eftir að í ljós kom að elsku­legur sonur hennar hafði verið myrtur.

„Einar er mjög ljúfur og elsku­legur drengur og það getur engum þótt annað en vænt um hann.“

Þá skrif­aði unnusta Einars í minn­ing­ar­grein:

„Þegar ég hugsa um hversu fal­lega þú kvaddir mig um morg­un­inn líður mér vel. Þegar ég hugsa um þig líður mér vel. En þetta er svo sárt, ástin mín, og ég sakna þín svo mikið. Ég reyni eins og ég get að halda aftur af reið­inni. Ég veit þú vilt að ég sé sterk og dug­leg. Ég ætla að vera sterk og dug­leg en þú verður að hjálpa mér. Vertu alltaf hjá mér. Mig langar svo að finna fyrir þér. Lofaðu mér því að koma til mín á hverju kvöldi og kyssa mig góða nótt.“

Tímalína – Morðið á Einari Erni Birgissyni

7. nóv­em­ber
Einar Örn kveður starfs­fólk sitt í GAP Collection síð­degis, glaður í bragði. Einar Örn leikur
hand­bolta­leik meö gömlum félögum í Vals­heim­il­inu. Félaga­mir skreppa á krá á eftir.

8. nóv­em­ber
Einar Örn sefur fram eftir þar sem hann haföi verið að fylgj­ast með banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum í sjón­varp­inu um nótt­ina. Mælir sér mót við Atla félaga sinn. Hringir einnig í versl­un­ina og seg­ist koma þar við um hádegi eftir fund með Atla. Einar Örn hverfur og umfangs­mikil leit hafin fyrir til­stilli vina og fjöl­skyldu.

9. nóv­em­ber
Bifreið Einars Arnar finnst snemma morg­uns viö Hótel Loft­leiðir. Bif­reiðin var ekki þar
klukkan þrjú nótt­ina áður þegar leit­ar­menn fóru um bíla­stæðin.

10. nóv­em­ber
Atli Helgason tjáir sig í við­tali við DV og er harmi sleg­inn yfir hvarfi félaga síns. Björg­un­ar­sveitir og vinir Einars Arnar leita víðs vegar um höfu­ö­borg­ar­svæðið.

14. nóv­em­ber
Atli Helgason hand­tek­inn á heim­ili sínu og færður tll yfir­heyrslu. Grunaður um að vera viðrifi­inn hvarf við­skipta­fé­laga síns.

16. nóv­em­ber
Einar Örn finnst lát­inn. Atli Helgason játar.

Ævi­fer­ill Atla Helga­sonar í hnot­skurn:

7.mars 1967: Fæðist í Reykja­vík.

  1. sept­em­ber 1980: Missir bróður sinn á voveif­legan hátt.

31 nóv­em­ber 1984: Missir föður sinn.

1987: Stúdent frá Fjöl­brauta­skól­anum í Breið­holti.

1987: Fer úr Þrótti til Víkings.

1989: Eignast barn.

  1. sept­em­ber 1991: Leiðir Víking til sig­urs á Íslands­meist­ara­mót­inu í knatt­spyrnu.
  2. sept­em­ber 1991: Ásgeir Elíasson velur hann í lands­liðs­hóp­inn. Hann kemst þó ekki í liðið.

1993: Yfir­gefur her­búðir Víkings og gengur til liðs við Val.

1993: Útskrif­ast sem lög­fræð­ingur frá Háskóla Íslands.

1993: Hefur störf á lög­manns­stofu Atla Gísla­sonar.

1996: Hættir störfum hjá lög­manns­stofu Atla Gísla­sonar 1996. Fer í með­ferð vegna fíkni­efna­neyslu.

1999 Er bústjóri í dán­ar­búi Agnars W. Agn­ars­sonar sem Þór­hallur Ölver Gunn­laugs­son ban­aði á Leifs­götu 16. júlí 1999.

Sumarið 2000: Er lög­maður Einars Arnar Birg­is­sonar þegar samn­ingi hans við KR er rift í októ­ber.

2000: Verslun Atla og Einars Arnar, GAP Collection, opnuð 8. nóv­em­ber.

2000: Er valdur að dauða Einars Arnar Birg­is­sonar 14. nóv­em­ber.

2000: Hand­tek­inn af lög­regl­unni, grun­aður um aðild að hvarfi Einars Arnar 16. nóv­em­ber.

2000: Játar að hafa banað Einari Erni.

  1. maí 2001: Dæmdur í 16 ára fang­elsi.

2001: Segir frá því í við­tali í bók hvernig neysla eit­ur­lyfja hafi breytt honum í morð­ingja.

2003: Sendir opið bréf í DV og gagn­rýnir refsi­kerfið.

2004: Segir í við­tali við DV að fyrsta eina og hálfa árið hafi verið hreint hel­víti á Litla Hrauni.

2004: Svarar spurn­ingu dags­ins á DV og segir enga stefnu vera í fang­els­is­málum. Hún snú­ist aðeins um refsi­vist. Atli tjáði sig ítrekað við fjöl­miðla á þessum árum sem tals­maður fanga.

2005: Fær dags­leyfi úr fang­elsi og fer í jarð­ar­för og kaupir ís með fjöl­skyld­unni.

2010: DV greinir frá því að Atli sé laus úr fang­elsi eftir níu ára vist á Hrauninu og sé kom­inn á Vernd.

2014: DV greinir frá því að Atli Helgason sé hlut­hafi í Versus lög­mönnum.

2015: Fær upp­reist æru.

2016: Sækir um lög­manns­rétt­indi en hættir við.

2018: Fær lög­manns­rétt­indi aftur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi