Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Magnús hvarf sporlaust við heimili sitt í Kópavogi

Magnús hvarf sporlaust við heimili sitt í Kópavogi

Laug­ar­dag­inn 30. nóv­em­ber árið 1968 fór Magnús Teitsson frá heim­ili sínu að Þing­hóls­braut 63 í Kópavogi, á VW bjöllu bif­reið sinni og ætl­aði að hjálpa kunn­ingja sínum sem bjó í húsi sem hét Strönd og var í landi Sæbóls við Fossvog í Reykja­vík.

Magnús hugð­ist ætla að koma heim aftur um kvöld­mat­ar­leytið, en þegar klukkan nálg­að­ist átta fór fjöl­skyldan að ókyrr­ast. Kom þá í ljós að bif­reið hans var fyrir utan heim­ili þeirra en ekk­ert bólaði á Magnúsi sjálfum. Kom í ljós að lyklar bjöll­unnar voru í læs­ingu bíl­stjóra­hurð­ar­innar.

Eitt dul­ar­fyllsta manns­hvarf sög­unnar átti sér stað.

á Íslandi eru fleiri en margur skyldi ætla: Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur safnað sam­an upp­lýs­ing­um um ein­stak­linga sem hafa horfið allt frá ár­inu 1945, og eru enn ófundn­ir, í eina skrá yfir týnda ein­stak­linga. Í skrá emb­ætt­is­ins er að finna 120 ein­stak­linga, og er hún unn­in upp úr gagna­grunni kennsla­nefnd­ar.

Hafið hefur marga tekið og af þeim 120 ein­stak­ling­um sem eru á list­an­um áður­nefnda hef­ur rúm­lega helm­ing­ur horfið á sjó; alls 64 ein­stak­lingar.

Frá árinu 2000 hafa 8 týnst á sjó, en þar af týnd­ust 5 árið 2001. Árið 1980 er afar áber­andi en þá hurfu 12 á sjó, þar af sjö við Ísa­fjarðar­djúp, en sex þeirra voru rækju­sjó­menn sem hurfu í miklu vonsku­verði 25. fe­brú­ar það ár.

Upp­lýs­ing­arn­ar um hvarf þess­ara 120 ein­stak­linga eru mjög mis­mun­andi og varðar það bæði efn­is­atriði og teg­und­ir gagna. Upp­lýs­ing­arn­ar sem skrá­in bygg­ir á hafa verið færðar inn úr göml­um skjala­skrám og eru upp­lýs­ing­arn­ar um ein­stak­ling­ana oft­ast frá lög­reglu. Einnig eru upp­lýs­ing­ar fengn­ar úr gögn­um Slysa­varna­fé­lags­ins og blaða­úr­klipp­um sem sagðar eru í stök­um til­fell­um vera einu upp­lýs­ing­arn­ar um hvarf ein­stak­linga, en í dag eru upp­lýs­ing­ar um ein­stak­linga sem hverfa og hvarf þeirra skráð með stöðl­uðu verk­lagi og fært inn í gagna­grunn kennsla­nefnd­ar og lög­reglu­kerfið LÖKE.

Þá aftur að Magnúsi.

Magnús Teitsson var fæddur Max Robert Heinrich Keil í Luckau í Þýska­landi 14. jan­úar 1908. Hann hvarf spor­laust þann 30. nóv­em­ber árið 1968.

Magnús flutt­ist til Íslands árið 1930 og fékk fljót­lega íslenskt rík­is­fang. Þegar Ísland var hernumið af Bretum árið 1940, þegar seinni heims­styrj­öldin var komin í fullan gang – fór Magnús ekki var­hluta af því frekar en aðrir Þjóð­verjar sem búsettir voru á Íslandi, að ekki var auð­velt að vera ætt­aður frá Þýska­landi á þeim tíma eða tengdur land­inu á ein­hvern hátt.

Magnús var einn af mörgum Þjóð­verjum sem teknir voru til fanga og fluttir til Englands í stríð­inu.

Hernám Breta á Íslandi gerði öllum Þjóð­verjum og þeim sem höfðu tengsl við Þýska­land erfitt fyrir.

Eftir stríðs­lok kom hann heim til Íslands aftur, og fór hann að vinna fyrir Málningu h/f. Vann svo í fram­hald­inu hjá Hörpu sem var þá að hluta til í eigu Máln­ingar h/f. Magnús var svo síðar gerður að stjórn­ar­manni hjá því fyr­ir­tæki. Eftir það stofn­aði Magnús fyr­ir­tækið Stálborg og var fram­kvæmd­ar­stjóri þess.

Almennt var talið að Magnús hefði verið góður stjórn­andi af þeim sem til þekktu; hann reglu­maður og afar stund­vís.

Kona Magnúsar var Helga Þor­steins­dóttir og börn þeirra eru Elísabet, Þor­steinn, Ásdís og Sigríður. Helga lést 1994.

Samkvæmt áður­nefndum kunn­ingja Magnúsar sem hann fór að hjálpa fór Magnús frá honum úr Foss­vog­inum um klukkan sjö og sagð­ist ætla heim á leið. Kunn­ing­inn sagð­ist ekki hafa séð neitt óvenju­legt í fari Magnúsar og sama kvöld var til­kynnt um hvarf hans og hófst leit að honum í fram­hald­inu; sem varð æ umfangs­meiri eftir því sem leið á kvöldið og nótt­ina og næstu daga.

Auglýst var eftir Magnúsi í blöð­unum, þar sem Magnúsi var lýst sem svo: Hann sagður vera klæddur í ljósa úlpu með dökkum ull­ar­kraga, dökkum buxum og skó­hlífum. Notar gler­augu og er með­al­hár og í með­al­lagi í vexti.

53 ár eru liðin frá hvarfi Magnúsar og hefur ekki tangur né tetur fund­ist af honum; aldrei fékkst nein skýr­ing á hvarfi Magnúsar; ekk­ert hefur spurst til hans þrátt fyrir umfangs­mikla leit. Ekkert fannst í raun, sak­næmt eða ósak­næmt, um hvarf Magnúsar sem er eitt hið dul­ar­fyllsta í sögu manns­hvarfa á Íslandi.

Heim­ildir:

Bjarki H. Hall hjá Íslensk Manns­hvörf

tima­rit.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi