Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Margrét Friðriksdóttir stofnar fjölmiðil gegn þöggun: „Ég kom að báðum foreldrum mínum látnum“

Margrét Friðriksdóttir stofnar fjölmiðil gegn þöggun: „Ég kom að báðum foreldrum mínum látnum“
Margrét Frið­riks­dóttir

„Þetta er fjöl­mið­ill sem mikil eft­ir­spurn er eftir í dag,“ segir Margrét Frið­riks­dóttir sem ásamt fleirum stendur fyrir útgáfu nýs net­mið­ils, frettin.is, sem mun koma út 1. sept­em­ber. „Ég fékk þessa hug­mynd í fyrra og loks­ins er þetta komið í fram­kvæmd. Það hafa verið pínu vand­ræði en þetta var skemmt fyrir mér tvisvar sinnum varð­andi hús­næði og það var ráð­ist á menn sem ætl­uðu að vera með mér í þessu sem er mjög merki­legt. Það er nokkuð ljóst að það eru ein­hverjir hár­karlar þarna úti sem vilja ekki opna umræðu um viss mál­efni.“

Margrét segir að íslenskir fjöl­miðlar hafi tekið þátt í þöggun varð­andi ýmis mál­efni og að slíkt eigi ekki að líð­ast í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi þar sem tján­ing­ar­frelsi og skoð­ana­frelsi séu horn­stein­arnir. „Það er brot á stjórn­ar­skrá að þagga niður tján­ing­ar­frelsið og það er líka brot á fjöl­miðla­lögum að vera hlut­lægur mið­ill og þagga vís­vit­andi niður viss mál­efni. Þessi mið­ill er að fara að taka á því og við munum birta það sem aðrir hafa neitað að birta og reynt að þagga niður.“

Margrét segir að um ýmis mál­efni sé að ræða sem og fals­fréttir eins og til dæmis varð­andi Covid, lofts­lags­mál, inn­flytj­enda­mál og hinsegin mál. „Það er auð­vitað mik­il­vægt að tala um þessi mál en þetta er voða­lega mikið ein hlið og aðrar hliðar fá ekk­ert að koma og ef ein­hver er á annarri skoðun þá er þaggað niður í við­kom­andi, svo­kallað „cancel culture“ eða útskúf­un­ar­menn­ing. Við sem komum að miðl­inum teljum það vera mjög hættu­lega þróun. Við munum birta aðrar hliðar líka þar sem okkur finnst umræðan á Íslandi vera mjög eins­leit og okkur þykir það vera miður.“

Þessi mið­ill er að fara að taka á því og við munum birta það sem aðrir hafa neitað að birta og reynt að þagga niður.

Hefði átt að kjósa um byggingu moskunnar

Margrét nefndi Covid. „Það áhuga­verð­asta er að fólk er að veikj­ast alvar­lega eftir bólu­setn­ingar; það virð­ist sem ónæm­is­kerfið sé hrunið hjá mörgum sem fá hjarta­vanda­mál, blæð­ingar og konur hafa misst fóstur. Fólk þorir ein­fald­lega ekki að stíga fram af ótta við að vera kallað „anti vaxer“ þótt það sé mjög veikt. Þetta er tákn­rænt fyrir ástandið í þjóð­fé­lag­inu. Mér finnst þessi höft vera alger­lega galin að mörgu leyti og ég skil ekki hvernig nokkur maður getur tekið mark á þessu lengur vegna þess að þetta fólk sem er í fram­varða­sveit­inni talar bara í hringi. Þetta er komið út í algera vit­leysu og það eru margir orðnir þreyttir á þessu rugli. Hér eru ströng­ustu reglur í Evrópu að mér skilst og mér finnst það vera skað­legt að vera að loka heil­brigt fólk inni. Ég veit að það er átta til níu mán­aða bið á Kvíða­með­ferð­ar­stöð­inni fyrir ung­linga og ungt fólk og sjálfs­morð hafa auk­ist um 30% á tímum Covid. Það eiga margir erfitt með félags­lega ein­angrun. Þetta er allt gert í ljósi þess að vernda við­kvæma hópa og fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. Það er alveg vitað að börn, ungt fólk og hraust fólk er ekk­ert að veikj­ast alvar­lega af þessu. Það er alla­vega sjald­gæft og rann­sóknir hafa sýnt fram á það. Því miður hefur annað komið á dag­inn varð­andi bólu­setn­ing­arnar; það hafa um 10 manns lam­ast hér á landi vegna þeirra og einnig 30 and­lát í kjöl­far bólu­setn­ingar og þetta er svo­lítið þaggað líka. Þannig að per­sónu­lega vil ég frekar að ég og og börnin mín fáum frekar kvef­pest heldur en að lam­ast eða fá blóð­tappa í kjöl­far bólu­setn­ingar því afar litlar líkur eru á að ungt og hraust fólk veik­ist alvar­lega af þessu sam­kvæmt rann­sóknum,“ segir Margrét sem ekki lét bólu­setja sig.

Margrét nefndi líka útlend­inga­mál. Hún hefur verið með ákveðnar skoð­anir varð­andi inn­flytj­enda­mál og er spurð um skoðun sína á því að bygg­ingar- og skipu­lags­yf­ir­völd í Reykja­vík sam­þykktu á þriðju­dag að leyfa Félagi múslima á Íslandi að byggja tveggja hæða bæna­hús við Suð­ur­lands­braut 76.

„Mér finnst að svona mál eigi að vera í höndum borg­ar­búa og að þeir eigi að fá að kjósa um svona stór mál­efni. Ég er hlynnt beinu lýð­ræði og hef talað fyrir því.“ Hún segir það eiga eftir að koma í ljós hvort og þá að hvaða leyti bygg­ing mosk­unnar muni hafa áhrif. „Mér hefur alltaf þótt vera vit­ur­legt að læra af öðrum sem hafa reynsl­una eins og til dæmis hvað varðar nágranna­lönd okkar; Danmörk, Svíðþjóð og Noreg. Því miður hefur inn­flytj­enda­stefnan brugð­ist í þessum löndum sem eru farin að herða til muna sín inn­flytj­enda­lög vegna vanda­mála þessu tengdu.“

Pabbi svipti sig lífi árið 1995 þegar ég var að verða 18 ára og mamma lést svo árið 2013 eftir skamm­vinn veik­indi.

Margrét hefur í gegnum árin tjáð skoð­anir sínar umbúða­laust og þykir hafa munn­inn fyrir neðan nefið. Hún stofn­aði Stjórn­mála­spjallið á sínum tíma, Facebook-hóp þar sem fólk getur viðrað skoð­anir sínar, og hún seg­ist halda að það sé inn­byggt í sér að hafa áhrif. „Ég hef alltaf verið félags­lynd, opin og frjáls­lynd mann­eskja og mér finnst vera mik­il­vægt að það sé rætt um hlut­ina. Ég ólst upp við það að fólk gat skipst á skoð­unum. Það er í lagi að vera ósam­mála og ef fólk er það ekki í dag þá er það bara úti­lokað og barið jafnve lniður með and­legu ofbeldi og mér finnst það vera slæm þróun. Fólk er hrætt við að lenda í dóm­stóli göt­unnar bara fyrir það að vera með skoð­anir.“

Mestu áföllin í lífi Mar­grétar mót­uðu hana og gerðu hana sterka. „Ég kom að báðum for­eldrum mínum látnum. Pabbi svipti sig lífi árið 1995 þegar ég var að verða 18 ára og mamma lést svo árið 2013 eftir skamm­vinn veik­indi. Þetta hefur nátt­úr­lega mótað mig mikið og gert mig að þeirri per­sónu sem ég er í dag. Ég er mjög sterk og sjálf­stæð kona og ég mun aldrei láta þagga niður í mér. Einnig hafa ferða­lög til fram­andi landa mótað mig mikið en ég bjó til að mynda í Indlandi í tæpt ár, Japan í fjóra mán­uði og hef ferð­ast um Aust­ur­lönd fjær og nær þar sem fram­andi menn­ing er og allt öðru­vísi en á Íslandi. Feðra­veldið ræður enn ríkjum í mörgum af þessum löndum og sorg­legt að sjá hvað sumir eru aft­ar­lega á mer­inni hvað varðar kven­frelsi sem við erum svo vön hér á landi. Og síð­ast en ekki síst þá hefur auð­vitað mótað mig heil­mikið að vera móðir ynd­is­legra stúlkna sem ég er svo blessuð að hafa eign­ast og eru í dag 18 og 15 ára gamlar og erum við mæðgur miklar vin­konur og erum dug­legar að ferð­ast saman og alltaf að bæta í minn­ing­ar­bank­ann sem er svo dýr­mætur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi