Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lára þakklát að hafa lifað af fæðingar barna sinna

Lára þakklát að hafa lifað af fæðingar barna sinna

Tón­list­ar­konan Lára Rún­ars­dóttir er undir Stækk­un­ar­gleri Mannlífs þessa vik­una.
Á dög­unum gaf Lára út nýtt lag, Andblær, sem er þriðja smá­skífan af vænt­an­legri breið­skífu söng­kon­unnar.
Segir Lára það vera 69. lagið sem hún gefur út. Lára lýsir lag­inu sem til­rauna­djas­spoppi og má með sanni segja að til­raun hennar hafi heppn­ast afar vel, en hlusta má á ljúfa tóna Láru hér að neðan.
Mannlíf komst að því að Láru finnst lífið fyndið, henni leið­ist hroka­fullt fólk og segir fjöl­skyld­una það mik­il­væg­asta í líf­inu.

Fjöl­skyldu­hagir? Gift Arnari Þór Gísla­syni og saman eigum við Emblu Guðríði 12 ára og Rúnar Kormák 7 ára.

Menntun/atvinna? Kennari, kynja­fræð­ingur, tón­list­ar­kona, jóga­kenn­ari og nemi í NA- Sham­an­isma. Eigandi MÓA studio, Bolholti 4 sem opnar 6.sept.

Upp­á­halds Sjón­varps­efni? Fleabag og ég elska heim­ilda­myndir um líf fólks og afrek.

Leikari? Emma Thompson og Ingvar E.

Rit­höf­undur? Haruki Murakami og Guðrún Eva Mínervu­dóttir.

Bók eða bíó? Bók.

Besti matur? Fer við öll hátíð­leg til­efni, stór og smá, út að borða á Austur Indi­a­fé­lag­inu og fæ mér Alloo Baigan Rajawadi….. best í heimi!

Kók eða Pepsí? Ulla­bjakk.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Vest­firðir.

Hvað er skemmti­legt? Fíflast, hoppa í fossa, borða, elskast, fara í gufu, horfa á börnin mín gera það sem þau elska mest, fara á tón­leika með Dr. Spock, semja tón­list, mat­ar­boð með fjöl­skyld­unni, glíma, jóga, skapa MÓA studio, kenna, fara á trúnó, kafa djúpt, læra eitt­hvað nýtt, eld­ast.

Hvað er leið­in­legt? Að fest­ast, bíða í röð, vera van­máttug, taka bensín, stress, flýta sér, óheið­ar­leiki, gubbupest og covid er ekk­ert sér­stakt.

Hvaða flokkur? Flokk­ur­inn sem vandar sig.

Hvaða skemmti­staður? Sirkus.

Kostir? Fúsleiki til góðra verka, sam­skipta og dýpri tengsla.

Lestir? Hvatvís, óþol­in­móð, félags­fælin (stundum) og frest­un­ar­árátta.

Hver er fynd­inn? Lífið er fyndið.

Hver er leið­in­legur? Þessi hroka­fulli.

Trúir þú á drauga? Ég trúi á verur og vætti en ég mundi ekki kalla það drauga.

Stærsta augna­blikið? Fæðing barna minna, bæði það að hafa lifað af fæð­ing­arnar og svo að vera treyst fyrir þessu ótrú­lega krefj­andi og ánægju­lega hlut­verki að vera mamma.

Mestu von­brigðin? Að þurfa að velja.

Hver er draum­ur­inn? Halda áfram að elska, vera elskuð, vera hraust, hug­rökk, læra meira, gera betur, skapa, gefa af mér, þroskast og eld­ast.    

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Að halda geð­heilsu þrátt fyrir allt sem er í gangi í sam­fé­lag­inu og í lífi mínu. Svo er ég mjög stolt af MÓUM studio og plöt­unni sem ég er að gefa út.

Ertu búin að ná öllum þínum mark­miðum? Já að hafa frelsi til að velja og velja að vera frjáls í því sem ég vel.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Brand­ar­arnir mínir eru allir svona ‘you had to be there’ og fæstum finnst þeir eins fyndnir og mér.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Ung­lings­árin voru vand­ræða­leg.

Sorg­leg­asta stundin? Úrræða­leysi geð­heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Mesta gleðin? Augna­blikin sem maður finnur fyrir ham­ingju.

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Fjöl­skyldan í allri sinni merk­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi