Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stjórn KSÍ hættir ekki: „Ítrekum að starfsfólk KSÍ hefur unnið verk sín af alúð og trúmennsku“

Stjórn KSÍ hættir ekki: „Ítrekum að starfsfólk KSÍ hefur unnið verk sín af alúð og trúmennsku“
Guðni Bergsson vill verða for­maður KSÍ, aftur

KSÍ var rétt í þessu að senda frá sér yfir­lýs­ingu, en fyrr í dag kom yfir­lýs­ing þess efnis að Guðni Bergsson hefði axlað ábyrgð og sagt af sér sem for­maður KSÍ.

Hin yfir­lýs­ingin fjallar um stjórn KSÍ sem ætlar ekki að segja af sér, í það minnsta ekki strax.

Hér má sjá yfir­lýs­ingu frá stjórn KSÍ í heild sinni:

YFIRLÝSING STJÓRNAR KSÍ

Kæru þolendur, við í stjórn Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands trúum ykkur og biðjum ykkur inni­lega afsök­unar. Við vitum að við sem ábyrgð­ar­að­ilar höfum brugð­ist ykkur og við ætlum okkur að gera betur.

Stjórnin hefur fundað und­an­farna daga um þær alvar­legu ásak­anir sem beinst hafa að sam­band­inu að und­an­förnu um þöggun kyn­ferð­is­brota. Við lítum málið afar alvar­legum augum. Nú þegar hefst vinna með utan­að­kom­andi fag­að­ilum um að end­ur­skoða öll við­brögð við kyn­ferð­is­brotum og ofbeldi innan hreyf­ing­ar­innar og hvernig staðið var og verður að stuðn­ingi við þolendur.

Faghópur verður settur á lagg­irnar og heitir stjórn KSÍ því að taka á þessum málum af alvöru og festu og fylgja ráð­legg­ingum fag­hóps­ins. Við viljum auk þess biðja þolendur eða aðra sem hafa upp­lýs­ingar um alvar­legt ofbeldi innan hreyf­ing­ar­innar að leita til okkar. Við munum taka vel á móti ykkur, við viljum að málin fari í við­eig­andi far­veg og viljum tryggja að ábyrgð ofbeldis verði sett á réttan stað, á herðar ger­enda en ekki
þolenda.

Við ætlum að lag­færa þá hluti sem farið hafa aflaga og skoða frá grunni þá menn­ingu sem við lýði er innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar með það fyrir augum að öll sem að starfi þess koma fái upp­lifað vel­ferð og öryggi, um leið og hlustað er á þolendur og til­lit tekið til þeirra hags­muna.

Vegna yfir­lýs­ingar sem stjórnin sendi frá sér þann 17. ágúst sl. þar sem brugð­ist var við ásök­unum um ofbeldi leik­manna karla­lands­liðs­ins, er rétt að taka fram að yfir­lýs­ingin byggð­ist á tak­mörk­uðum upp­lýs­ingum sem þá lágu fyrir hjá stjórn, en þar vant­aði gögn og frek­ari upp­lýs­ingar, sem hafa komið í ljós á síð­ari stigum.

Við biðjum Hönnu Björgu Vil­hjálms­dóttur og aðra sem stóðu í fram­línu þess að benda á ofbeldið innan KSÍ afsök­unar á yfir­lýs­ing­unni sem gerði lítið úr þeirra ásök­unum og var laus við alla ábyrgð og ein­lægni.

Fyrir liggur að for­maður stjórnar KSÍ hefur sagt af sér og þannig geng­ist við ábyrgð á með­ferð þeirra mála sem til umfjöll­unar hafa verið. Þar til annað verður ákveðið munu vara­for­menn stjórnar sinna verk­efnum sem eru á hendi for­manns. Allir stjórn­ar­menn hafa íhugað stöðu sína.

Til að tryggja órofna starf­semi sam­bands­ins þá er nið­ur­staða stjórnar að skyn­sam­legt sé að hún sitji áfram fram að næsta árs­þingi KSÍ sem haldið verður í febr­úar á næsta ári en þá verður kosið til stjórnar.

Við viljum ítreka að almennt starfs­fólk KSÍ hefur unnið verk sín af alúð og trú­mennsku og ber enga ábyrgð á þeirri atburð­ar­rás sem hefur verið í gangi. Þessi mikla bylgja sem dunið hefur á síð­ustu vikur hreyfði við okkur öllum. Sem hluti af stærstu sjálf­boða­liða­hreyf­ingu á Íslandi skiptir máli hvað KSÍ segir og gerir.

Við höfum aldrei verið jafn með­vituð um þetta eins og núna og munum leita hjálpar sam­fé­lags­ins til að gera rót­tækar breyt­ingar, hlúa að þolendum og vera hluti af lausn­inni. Þetta verk­efni mun taka tíma, en við ætlum að hefj­ast handa strax.

Knatt­spyrnu­hreyf­ingin er hluti af sam­fé­lag­inu, og við þurfum öll sem sam­fé­lag að gera betur í því að taka utan um þolendur og berj­ast gegn kyn­ferð­is­of­beldi.

Stjórn KSÍ: Ásgeir Ásgeirs­son, Bjarni Ólafur Birk­is­son, Björn Frið­þjófs­son, Borg­hildur Sig­urð­ar­dóttir, Gísli Gíslason, Guðjón Bjarni Hálf­dán­ar­son, Ingi Sig­urðs­son, Jakob Skúlason, Jóhann Torfason, Magnús
Gylfason, Orri Vignir Hlöðvers­son, Ragn­hildur Skúla­dóttir, Tómas Þór­odds­son, Valgeir Sig­urðs­son, Þor­steinn Gunn­ars­son og Þóroddur Hjalta­lín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi