Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þingkonan Rósa: „Þurfum að horfast í augu við að hetjurnar okkar hafa ekki staðið undir aðdáuninni“

Þingkonan Rósa: „Þurfum að horfast í augu við að hetjurnar okkar hafa ekki staðið undir aðdáuninni“

Þing­konan og femínist­inn Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir segir að „nýaf­staðnir atburðir innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar hafa varla farið fram hjá neinum þar sem frá­sagnir af kyn­bundnu ofbeldi knatt­spyrnu­manna í fremstu röð hefur komið upp á yfir­borðið.“

Hún bætir við að „for­ysta knatt­spyrnu­sam­bands­ins hefur því miður ekki játað opin­ber­lega vit­neskju um ofbeldið og hefur mis­tek­ist að miðla þeim sjálf­sögðu skila­boðum að kyn­bundið ofbeldi verði aldrei liðið innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar á Íslandi.“

Rósa telur breyt­inga vera þörf:

„Vinnulag íþrótta­hreyf­ing­ar­innar í heild, sem hefur veiga­miklu sam­fé­lags­hlut­verki að gegna og er studd af miklu leyti af opin­berum fjár­munum, verður líka að vera skýr. Til að breyta við­horfi og upp­ræta kynj­aða og eitr­aða menn­ingu innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar, verða að eiga sér stað rót­tæk­ari breyt­ingar og það verður að umbylta vinnu­brögðum með jafn­rétti kynj­anna að leið­ar­ljósi. Kynja­hlut­föll í stjórnum og ráðum íþrótta­hreyf­ing­ar­innar verður nú að jafna hratt og fjár­munum verður að dreifa jafnt milli kvenna og karla, stráka og stelpna. Ofbeldi má aldrei líð­ast í einni allra fjöl­menn­ustu fjölda­hreyf­ingu á Íslandi sem gegnir svo veiga­miklu hlut­verki í upp­eldi og for­vörnum barna og ung­menna.“

Rósa bendir á að við séum ennþá í stormi #metoo bylgj­unnar sem hófst af fullu undir lok árs 2017.

„Metoo hefur reynst mörgum afskap­lega erfið enda hefur verið varpað ljósi á myrkvaðar hliðar sam­fé­lags okkar. Steinum hefur verið velt við, sár hafa verið ýfð upp og við höfum flest­öll þurft að horfast í augu við skugga­hliðar menn­ingu okkar og sam­fé­lags þar sem kyn­bundið ofbeldi og áreitni, klám­væð­ing og nauðg­un­ar­menn­ing þrífst. Við höfum kraf­ist þess að með­virkni og þögg­un­ar­menn­ing í kringum þetta allt hætti og víki fyrir upp­byggi­legri og jákvæðri menn­ingu sem byggir á jafn­rétti. Við höfum líka þurft að horfast í augu við að hetj­urnar okkar og barn­anna okkar, hafa ekki staðið undir upp­hafn­ing­unni og aðdá­un­inni sem þær hafa fengið.“

Hún bendir einnig á að „íþrótta­hreyf­ingin er ekki eyland þegar kemur að kyn­bund­inni áreitni, kyn­bundu ofbeldi eða eitr­aðri karl­mennsku. Við höfum séð það um allt sam­fé­lagið. Til að breyta því þurfum við öll að leggj­ast á árarnar. Til að breyta við­horfum og vinnu­brögðum og upp­ræta eitr­aða menn­ingu sem eru mann­skemm­andi. Og það er hægt ef vilji og þor er til staðar.“

Rósa er með hug­myndir að nýju og betra verk­lagi:

„Við þurfum að koma kynja­fræðslu inn í skóla­kerfið og láta kyn­fræðslu snú­ast um umburð­ar­lyndi og virð­ingu fyrir sínum eigin mörkum og ann­arra í nánum sam­skiptum. Kynjuð fjár­laga­gerð verður að vera hluti af allri opin­berri fjár­mála­stefnu til að tryggja að opin­bert fé okkar allra renni til okkar allra, í þágu allra kynja. Það á líka við um opin­beran stuðn­ing sveit­ar­fé­laga til íþrótta­fé­laga. Við þurfum líka að meta reynslu kvenna og störf þeirra að verð­leikum með því að vinna bug á kyn­skipt­ingu vinnu­mark­að­ar­ins og útrýma launa­mun kynj­anna.“

Og bætir við:

„Margir hafa fundið til varn­ar­leysis gagn­vart svoköll­uðum dóm­stól göt­unnar í kyn­ferð­is­af­brota­málum. Til þess að sú leið verði ekki ráð­andi verðum við að tryggja að rétt­ar­vörslu­kerfið okkar virki sem skyldi. Þolendur sem treysta ekki rétt­ar­vörslu­kerf­inu upp­lifa að það kerfi sé ekki fyrir þau og leita því ann­arra leiða til að vekja athygli á ofbeldi sem þau hafa verið beitt. Við þurfum að gera miklar umbætur á rétt­ar­stöðu þolenda svo að þau geti trúað og treyst kerf­inu okkar ef brotið er á þeim.“

Rósa færir í tal að „upp­fræða þarf lög­reglu­fólk, verj­endur, sækj­endur og dóm­ara mark­visst og með reglu­legum hætti um kyn­bundna áreitni, kynja­kerfið og kyn­ferð­is­legt ofbeldi og áhrif þess konar ofbeldis á þolendur. Við þurfum líka að stytta máls­með­ferð­ar­tíma í kyn­ferð­is­af­brota­málum og tryggja máls­að­ild þolenda þegar réttað er yfir ger­endum í kyn­ferð­is­af­brota – og heim­il­is­of­beld­is­málum. Við þurfum að lög­binda rétt til laun­aðs leyfis í kjöl­far kyn­ferð­is­brots svo þolendur fái and­legt og til­finn­inga­legt næði. Það þarf að rýmka gjaf­sókn­ar­reglur svo fólk geti leitað réttar síns óháð tekjum og stétt­ar­stöðu. Og það þarf líka lang­tíma­stuðn­ing og öryggi fyrir þolendur á meðan mál eru til rann­sóknar.“

Rósa leggur mikla áherslu á að jafna stöðu kynj­anna og ráðast af alefli gegn kerf­is­bund­inni mis­munun og fordómum og tryggja jafna með­ferð á öllum sviðum samfélags­ins óháð kynjum, kyn­hneigð, kyn­vit­und, kynein­kennum eða kyntjáningu.

„Ísland hefur iðu­lega komið sér á verð­launa­pall á Evr­ópu­mót­inu og Heims­meist­ara­keppn­inni þegar kemur að jafn­rétti kynj­anna. Sum okkar hafa bent á að þrátt fyrir þann góða árangur, er hér víða pottur brotin í jafn­rétt­is­málum. Til að við höldum okkur í fremstu röð ríkja á alheims-jafn­rétt­is­leik­unum, þurfum við að gefa kyn­bundnu ofbeldi rauða spjaldið og vera óhrædd við að dæma úr leik hvers kyns þöggun og með­virkni með þess konar ofbeldi eða eitr­aðri menn­ingu. Það er til mjög mik­ils að vinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi