Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Runólfur hjá FÍB: „Tryggð er ekki hátt metin hjá tryggingafélögunum – 44% hækkun á örfáum árum“

Runólfur hjá FÍB: „Tryggð er ekki hátt metin hjá tryggingafélögunum – 44% hækkun á örfáum árum“
Runólfur Ólafsson.

Runólfur Ólafsson er fram­kvæmda­stjóri FÍB og er ekki par sáttur með trygg­ing­ar­fé­lögin hér á landi og lætur í sér heyra:

„Trygg­inga­fé­lögin græða á tá og fingri eins og við­skipta­f­réttir bera með sér. Kemur auð­vitað ekki á óvart, við­skipta­mód­elið er skot­helt: Engin verð­sam­keppni, stöðug hækkun iðgjalda, minnk­andi kostn­aður og vel­þóknun stjórn­valda.

Söfn­un­ar­sjóðir trygg­inga­fé­lag­anna belgj­ast út vegna oftek­inna iðgjalda. Um síð­ustu ára­mót lágu félögin á 50 millj­arða króna bóta­sjóði sem þau hafa safnað með ofur­verð­lagn­ingu á iðgjöld ábyrgð­ar­trygg­inga öku­tækja. Þennan sjóð ávaxta þau skatt­frjálst.“

Runólfur nefnir að „bíla­trygg­ingar hafa hækkað um 44% á örfáum árum. Iðgjalda­hækk­anir á bíla­trygg­ingum eru komnar út yfir allt vel­sæmi. Frá 2015 hefur vísi­tala bíla­trygg­inga hækkað um 44% meðan vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 17%. Á sama tíma hefur umferð­ar­slysum fækkað um 14% og slös­uðum fækkað um 23% – tölur Sam­göngu­stofu í árs­lok 2020. Kostn­aður trygg­inga­fé­lag­anna hefur því lækkað til muna eins og gefur að skilja. Samt hækka þau iðgjöldin eins og eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn.“

Hann segir að trygg­inga­fé­lögin hafi mörg und­an­farin ár kynnt fádæma góða afkomu:

„Nýlegt dæmi um þá fjár­muni sem streyma til þeirra úr vösum almenn­ings er sam­ein­ing Trygg­inga­mið­stöðv­ar­innar – TM – og Kviku banka. Kvika hefur verið afar vel rek­inn banki og rakað inn hagn­aði. En fjár­hags­legur styrkur TM var svo mik­ill að trygg­inga­fé­lagið á mik­inn meiri­hluta í hinu sam­ein­aða fyr­ir­tæki. Arion banki keypti trygg­inga­fé­lagið Vörð árið 2016.

Iðgjöld bíla­trygg­inga eru að jafn­aði tvö­falt hærri hér á landi en á hinum Norð­ur­lönd­unum.“

Og bætir við:

„Kostn­aður snar­minnkar meðan iðgjöldin hækka, en trygg­inga­fé­lögin hafa löngum reynt að rétt­læta iðgjalda­okrið með til­vísun í að hlut­fall tjóna af iðgjöldum sé yfir 100%. En und­an­farin miss­eri hefur þetta hlut­fall verið vel undir 100% og allt niður í 80%. Það stað­festir minnk­andi tjóna­kostnað. Samt hefur það engin áhrif á iðgjöldin, heldur þvert á móti – þau hækka jafnt og þétt.“

Runólfur færir í tal að „engin sam­keppni ríkir milli trygg­inga­fé­lag­anna, enda hefði þá eitt­hvert þeirra lækkað iðgjöld til að fá aukin við­skipti. Þess í stað hækka þau iðgjöldin í sam­ræmdum takti. Þau skipta mark­aðnum bróð­ur­lega á milli sín með þegj­andi sam­ráði um að rugga ekki bátnum. Enda skilar það mesta hagn­að­inum ásamt háum launum og bón­usum til stjórn­enda.“

Bendir á að fjöl­skylda með hús­eign og tvo bíla borgar um eða yfir 400 þús­und krónur á ári í iðgjöld trygg­inga.

„Aðeins brot af þessum pen­ingum fer til að kaupa raun­veru­lega trygg­inga­vernd. Restin rennur í ávöxt­un­ar­sjóð­ina og arð­greiðsl­urnar.

Ekkert virð­ist geta stöðvað þetta ofsa­fengna okur á almenn­ingi. Þar sem trygg­inga­fé­lögin telj­ast fjár­mála­fyr­ir­tæki þá heyra þau undir Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans. Árum saman hefur fjár­mála­eft­ir­litið ýmist hvatt trygg­inga­fé­lögin til að hækka iðgjöld eða gæta þess vel og vand­lega að fara ekki í verð­sam­keppni. Neyt­endur eiga ekk­ert skjól hjá þess­ari furðu­legu eft­ir­lits­stofnun.“

Hann kemur einnig inn á eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóð­anna:

Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru aðal­eig­endur VÍS og Sjóvá og bank­anna sem eiga Vörð og Kviku. Líf­eyr­is­sjóð­irnir ávaxta þannig líf­eyri bíl­eig­enda með því að okra á þeim í gegnum trygg­inga­fé­lögin. Kald­hæðnin lekur af þeirri sviðs­mynd.

Er ein­hver von til þess að trygg­inga­fé­lögin dragi úr okr­inu? Ekki munu þau gera það ótil­neydd. Þau birta fag­lega gerðar sjón­varps­aug­lýs­ingar um ekki neitt til að sýn­ast fyrir neyt­endum. Þau gefa út skýrslur um sam­fé­lags­lega ábyrgð og kolefn­is­jöfnun til að sýn­ast ábyrg. Lítil von er til þess að Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hvetji trygg­inga­fé­lögin til að slaka á klónni.“

Runólfur er ekki maður sem gefst auð­veld­lega upp en er orð­inn ansi þreyttur á ástand­inu:

„Enn minni von er til þess að líf­eyr­is­sjóðir almenn­ings beini því til stjórna trygg­inga­fé­lag­anna að draga úr okr­inu á almenn­ingi. Eina skyldan sem þetta fjár­mála­fólk telur sig hafa er að stuðla að sem mestum hagn­aði, sama þó hann sé til kom­inn vegna skorts á sam­keppni og þeirri óeðli­legu verð­lagn­ingu sem því fylgir.“

En geta bíl­eig­endur gert eitt­hvað?

„Það sem bíl­eig­endur geta þó gert, hver og einn, er að óska reglu­lega eftir til­boðum frá öllum trygg­inga­fé­lög­unum og taka ávallt því lægsta. Árlega eða oftar. Það hefur sýnt sig að trygg­inga­fé­lögin eiga það til að lækka sig til að fá nýja við­skipta­vini. Þeir sem halda tryggð við trygg­inga­fé­lagið borga hins vegar áfram hæstu iðgjöldin. Tryggð er ekki hátt metin hjá trygg­inga­fé­lög­unum.

Öll eru trygg­inga­fé­lögin með úrvals starfs­fólk sem veitir skjóta og góða þjón­ustu í tjóna­til­fellum. Þess vegna er engin áhætta tekin með því að skipta sem oft­ast um trygg­inga­fé­lag. Það getur hins vegar borgað sig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi