Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baldvin vill hækka laun öryrkja og efla þannig hagkerfið

Baldvin vill hækka laun öryrkja og efla þannig hagkerfið
Baldvin Arnar Sam­ú­els­son

Neytandi vik­unnar er Baldvin Arnar Sam­ú­els­son, stjórn­ar­for­maður, einn eig­enda Tryggja ehf., golfari og lax­veiði­maður.

Hve miklu eyðir fjöl­skyldan í mat og aðrar rekstr­ar­vörur heim­il­is­ins á mán­uði og hvar verslar hún helst?

Ég hugsa að við séum að eyða svona 150 þús­und mán­að­ar­lega og af stórum hluta virð­ast stærstu útgjalda­lið­irnir vera bleyjur og skvísur fyrir yngsta fjöl­skyldu­með­lim­inn. Við verslum helst í Krónunni og Bónus; konan kýs að gera inn­kaupin í Bónus en mér finnst betra að versla í Krónunni vegna þess hve versl­anir Krón­unnar eru þægi­lega upp settar.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

Ég kýs almennt ekki að spara í mat­ar­inn­kaup­unum. Það er ekki þar með sagt að ég vilji heldur bruðla en ég vil kaupa góða mat­vöru. Helstu breyt­ing­arnar sem ég vil sjá í mat­vöru­versl­unum snúa að ávöxt­unum. Ef maður gæti und­an­tekn­inga­laust keypt ferska ávexti þá myndi maður klár­lega velja þá umfram óholl­ari val­kosti sem milli­mál.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er?

Ég spara svo sann­ar­lega og geri það helst með tvennum hætti. Ann­ars­vegar nota ég sparn­að­ar­reikn­ing sem er laus til rað­stöf­unnar til að mæta óvæntum útgjöldum en þegar ég lít til sparn­aðar til lengri tíma fjár­festi ég í hluta­bréfum.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu?

Líti maður á efna­hags­reikn­inga Festis og Haga gefur það vís­bend­ingu um að verð­lag mat­vöru­búða sé hátt. Það er vart við öðru af búast af fyr­ir­tækjum sem rekin eru með arðs­sem­is­stefnu, þ.e.a.s. rekstur þeirra snýst að lokum um að skapa hagnað fyrir hlut­hafa þeirra.

Verðtryggð lán, óverðtryggð lán eða engin lán?

Enginn ætti að vera með neyslu­lán, byrjum þar. Þegar kemur að hús­næð­is­lánum er skyn­sam­leg­ast að taka óverð­tryggð lán að því gefnu að við­kom­andi hafi í raun efni á því en að öðrum kosti er hægt að fara blönd­uðu leið­ina eða taka lán tengt vísi­tölu. Fólk þarf þá að gera sér grein fyrir því að það er að greiða höf­uð­stól­inn marg­falt til baka. Þegar upp er staðið þarf þetta bara að passa í veskið. Ef fólk hefur fjár­magn til er auð­vitað hyggi­legt að sleppa hús­næð­is­lánum alfarið.

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli?

Já, í einu orði sagt. Í þeim fyr­ir­tækjum hvar ég sit í stjórn er það eitt af okkar hjart­ans málum að nýta hvert tæki­færi til þess að nýta græna orku­gjafa, tak­marka papp­ír­inn í umhverf­inu og kolefn­is­jafna. Við gætum þess að öll orka sem félögin nota sé upp­runna­vottuð.

Það er mjög áríð­andi að fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar nýti nátt­úru­auð­lindir með skyn­sam­legum hætti. Við fáum tím­ann okkar hér á jörð lán­aðan og það er okkar að skila plánet­unni okkar í eins góðu ástandi og hægt er þegar við yfir­gefum hana. Við þurfum að hugsa um þær kyn­slóðir sem koma á eftir okkur. Síðast þegar ég vissi var engin önnur leið í boði ef illa tekst til međ þessi heim­kynni.

Hvaða mál og málaflokka telur þú að þurfi að leggja meiri áherslu á?

Í fyrsta lagi ættum við að leggja mun meiri áherslu á að hjálpa eldri borg­urum og öryrkjum að kom­ast frá því að vera þiggj­endur og í átt að því að verða neyt­endur. Þetta gerum við með því að auka ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra. Með auk­inni þát­töku þeirra í hag­kerf­inu verða að lokum til auknar tekjur fyrir Rík­is­sjóð því meiri neysla kallar á auk­inn fjölda starfa.

Það þarf einnig að ein­blína meira á nýsköpun í verslun og þjón­ustu. Reglu­verkið þarf að vera þannig úr garði gert að nýsöpun sé gert hærra undir höfði en ríki og sveit­ar­fé­lög ættu að koma sterk­ari þar inn en verið hefur.

Ég t.d. er mik­ill tals­mađur fyrir nýsköpun í mat og drykk; vil geta verslað beint frá býli eđa pantað frá ein­hverjum af þeim fjöl­mörgu craft brugg­húsum án þess ađ reglu­verkið sé að þvæl­ast fyrir.

Það er í senn atvinnu­skap­andi og myndi auð­velda fólk­inu með hug­mynd­irnar að koma nýrri vöru og þjón­ustu á markað.

Annað sem þú vilt taka fram?

Verð ég ekki að nota tæki­færið og benda fólki á að versla við Tryggja?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi