Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kolbrún svikin af Salómon-svindlurum: „Vissi ekki hvað þetta var”

Kolbrún svikin af Salómon-svindlurum: „Vissi ekki hvað þetta var”
Póstbíll – Mynd / Skjáskot RÚV.

Fjöldi Íslend­inga hefur fallið fyrir nýstár­legri teg­und svika­myllu sem fer í gegnum póst­send­ingar hjá Póstinum. Fjöldinn greiddi fyr­ir­fram fyrir afhend­ingu send­ing­ar­innar en þegar hún fékkst svo afhent á póst­húsi var um galtómt umslag að ræða frá Salómo­n­eyjum. 

Svika­mylla, þar sem fólk sækir og greiðir fyrir tóm umslög hjá Póstinum, er ein af nýjum leiðum sem óprút­tnir aðilar nýta sér til þess að svíkja pen­ing út af greiðslu­kortum ein­stak­linga. Svika­myllur eru margs­konar og oft erfitt að gera greina­mun á því hvort um raun­veru­lega send­ingu er að ræða eða ekki.

Inni í Facebook-hópnum Verslun á net­inu hefur fólk sagt frá reynslu sinni síð­ustu daga og hafa margir fallið í gildru Salómon-svindlar­anna. Kolbrún nokkur stofnar til umræð­unnar eftir að hafa sjálf fengið afhent tómt plast­umslag á póst­hús­inu: 

„Var að fá pakka frá Sal­omons­eyjum. Tómt umslag. Vissi ekki hvað þetta var svo eg borg­aði bara. Er þetta eitt­hvað scam?? Borgaði ein­hvern 1200kall fyrir tómt plast­umslag!“

Undir færslu Kol­brúnar bregð­ast margir við og flestir þeirra hafa lent í svip­aðri reynslu. Máni er einn þeirra. „Ég var að borga fyrir pakka sem stendur að sé að koma frá Sal­omons­eyjum. Á von á pakka, vona að þetta hafi verið hann en ekki eitt­hvað tómt,“ segir Máni. Og Sunneva er í sömu sporum. „Ugh ég borg­aði þetta í gær, hélt þetta myndi vera eitt­hvað frá ali.. á eftir að sækja,“ segir Sunneva.

Maren lendi líka í klóm svindlar­anna. „Omg ég var að fá tvær send­ingar frá Salómons­eyjum sem ég einmitt borg­aði bara fyrir. Á eftir að sækja þær,“ segir Maren. Ólöf kann­ast líka við málið og veltir fyrir sér hvað hún eigi til bragðst að taka. „Ég var að sjá inná póst app­inu að ég á 2 send­ingar frá sal­omo­n­eyjum líka … vona að ég sé ekki að borga fyrir tóm umslög,“ segir Ólöf.

Þór­hallur skilur hins vegar ekk­ert í þeim sem hafa leyst send­ing­arnar út. „Ef maður pantar ekki neitt frá þessum eyjum, þa á maður ekki að veita neinu við­töku þaðan. Einfalt mál,“ segir Þór­hallur ákveð­inn. 

Póst­ur­inn svarar á end­anum færsl­unni og hvetur fólk til þess að hafa sam­band við þjón­ustu­ver þar sem hvert og eitt mál verði skoðað fyrir sig. Mannlíf hafði jafn­framt sam­band við Póstinn þar sem feng­ust þær upp­lýs­ingar að erfitt væri að verj­ast svona svika­myllum því oft ætti fólk von á nokkrum send­ingum yfir til­tölu­lega stutt tíma­bil. Ráð­legg­ingar Póstsins eru að við­skipta­vinir skoði vel hvaðan það pantar og fylgist með send­ing­ar­núm­erum sínum. Þá er mik­il­vægt að fylgja ekki slóðum sem sendar eru á net­föng eða í far­síma þar sem Póst­ur­inn sendi ekki slík skila­boð á ein­stak­linga sem eiga von á send­ingu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi