Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hörður lögmaður Kolbeins: „Stjórn KSÍ bannaði þjálfurunum að velja Kolbein“

Hörður lögmaður Kolbeins: „Stjórn KSÍ bannaði þjálfurunum að velja Kolbein“

Hörður Felix Harð­ar­son lög­maður Kolbeins Sig­þórs­sonar er ekki sáttur við gang mála og tjáir sig um efnið:

Málefni knatt­spyrnu­manns­ins Kolbeins Sig­þórs­sonar hefur verið mikið í umræð­unni síð­ustu daga. Upphaf umræð­unnar er að rekja til þess að kona sem kveðst hafa orðið fyrir ofbeldi af hálfu lands­liðs­manns­ins á árinu 2017 steig fram. Afleið­ing­arnar eru þekktar. Formaður KSÍ sagði af sér og síðar öll stjórnin. Áður en til afsagnar stjórnar KSÍ kom tók hún ákvörðun um að taka Kolbein Sig­þórs­son út úr lands­liðs­hópnum. Fram hefur komið að þjálf­arar liðs­ins, sem hafa það hlut­verk að ákveða hverjir skipi lands­liðs­hóp­inn hverju sinni, höfðu ekk­ert með þessa ákvörðun að gera,“ segir Hörður í pistli á Vísi og heldur áfram:

„Áhrif þess­arar umræðu eru hins vegar ekki bundin við Ísland. Ákvörðun stjórnar KSÍ um að nafn­greina Kolbein og taka hann út úr lands­liðs­hópnum, vegna þessa 4 ára gamla atviks, hefur leitt til mik­illar umfjöll­unar um Kolbein í erlendum miðlum. Víðast hvar er rætt um alvar­leg ofbeldis- eða kyn­ferð­is­brot enda lítið vitað um eðli ætl­aðra brota. Þá hefur komið fram að atvinnu­rek­andi Kolbeins, IFK Gauta­borg, líti málið alvar­legum augum og þar ytra hefur verið ákall um að samn­ingi við leik­mann­inn verði rift.“

Hörður segir að „konan sem steig fram, og hefur farið mik­inn í fjöl­miðlum, lýsti því svo að lög­maður á vegum KSÍ hafi haft sam­band við hana og boðað hana til fundar með með­limum stjórnar KSÍ til að ganga frá „þagn­ar­skyldu­samn­ingi“. Vakti þetta mikla athygli enda án nokk­urs vafa frétt­næmt ef ein­hver á vegum sam­bands­ins hefði gegnt þessu hlut­verki. Síðar kom fram hjá umræddri konu að und­ir­rit­aður hafi að lík­indum verið sá lög­maður sem í hlut átti. Í þess­ari frá­sögn er hins vegar ekki eitt sann­leiks­korn. Und­ir­rit­aður átti aldrei í sam­skiptum við kon­una, var ekki að vinna fyrir KSÍ í þessu máli, boð­aði ekki til fundar með stjórn­ar­manni KSÍ og bauð henni ekki á nokkrum tíma­punkti „þagn­ar­skyldu­samn­ing“. Þessi fram­setn­ing var hins vegar óneit­an­lega meira frétta­efni en sann­leik­ur­inn,“ segir hann og heldur áfram:

„Kolbeinn Sig­þórs­son lét frá sér yfir­lýs­ingu í vik­unni, í til­efni af umfjöllun kon­unnar, sem er að öllu leyti sann­leik­anum sam­kvæm. Umrædd kona, og vin­kona hennar, lögðu fram kæru til lög­reglu vegna ætl­aðrar hátt­semi Kolbeins á skemmti­stað. Kolbeinn tók þá kæru alvar­lega, eðli máls­ins sam­kvæmt, og leit­aði aðstoðar und­ir­rit­aðs. Minni hans og upp­lifun af atvikum þetta kvöld var tals­vert önnur en kvenn­anna tveggja. Hann sýndi hins vegar ábyrgð og átti fund með kon­unum þar sem þær lýstu sinni upp­lifun. Hann sýndi því skiln­ing og baðst inni­legrar afsök­unar á sínum þætti í mál­inu. Þá varð hann við öllum kröfum kvenn­anna um greiðslur og mál­inu var lokað í sátt og sam­lyndi. Lög­reglan felldi málin tvö niður í kjöl­farið.“

Hörður er afar ósáttur við KSÍ vegna brott­vikn­ingar Kolbeins úr lands­lið­inu:

„Nú rétt um 4 árum frá umræddu atviki stendur Kolbeinn frammi fyrir því að vera því sem næst útskúf­aður í sam­fé­lag­inu. Stjórn KSÍ hefur gripið til þeirrar for­dæma­lausu ákvörð­unar að taka fram fyrir hendur þjálf­ara liðs­ins og banna þeim að velja Kolbein til lands­liðs­verk­efna. Á sama tíma er Kolbeinn í sínu besta formi, eftir margra ára erfið meiðsli, og var kom­inn hingað til lands til að leggja sitt af mörkum. Ákvörð­unin hefur sem fyrr segir vakið athygli víða um heim og Kolbeinn, sem er atvinnu­maður í knatt­spyrnu, stendur frammi fyrir því að missa hugs­an­lega lífs­við­ur­væri sitt.“

Og spyr:

„Er þetta raun­veru­lega það þjóð­fé­lag sem við viljum lifa í? Er það rétt og eðli­legt að ein­stak­lingar séu for­dæmdir og útskúf­aðir með þessum hætti, án dóms og laga? Átti Kolbeinn að bregð­ast öðru­vísi við á sínum tíma eða er það ein­fald­lega svo að fer­ill knatt­spyrnu­manna sé á enda við hvers kyns hugs­an­legar mis­fellur eða ásak­anir? Það er mat und­ir­rit­aðs að þessi ákvörðun stjórnar KSÍ hafi verið ein­stak­lega mis­ráðin en eflaust hefur sú geðs­hrær­ing sem ein­kennt hefur alla umræðu í þjóð­fé­lag­inu und­an­farna daga haft þar mikil áhrif. Jafn þarft og sjálf­sagt og mál­efnið er þá verður að gæta þess að jafnt umræða sem þær ákvarð­anir sem teknar eru, og varða mik­ils­verð rétt­indi ein­stak­linga, séu teknar fag­lega og af yfir­vegun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi