Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það voru ungabörn sem dóu þarna vegna þess að þau tróðust undir“

„Það voru ungabörn sem dóu þarna vegna þess að þau tróðust undir“

Hún er átak­an­leg saga ungu hjón­anna frá Afganistan, Zeba Sult­ani og Khairullah Yosu­fi, sem flúðu hingað til lands í síð­ustu viku. En hjónin neydd­ust til að skilja tveggja mán­aða gamlan son sinn eftir í Afganistan.

Zeba var í Jafn­rétt­is­skóla HÍ og voru þau á lista íslenskra stjórn­valda yfir þá afganska flótta­menn sem fá hæli hér.

„Daginn sem við flúðum var mikið öng­þveiti við flug­völl­inn og talið er að þennan dag hafi um milljón manns verið þar. Þetta var mið­viku­dag­inn 25. ágúst, dag­inn áður en sprengju­árásin var gerð á flug­vell­inum,“ segir Khairullah í við­tali er birt­ist í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðs­ins nú um helg­ina.

Kairullah segir þau hafa verið komin með leyfi til að fara til Íslands og stað­fest­ing þess efnis hafi þau fengið í tölvu­pósti.

„Við vorum með íslenska fán­ann, vega­bréfin og tölvu­póst­inn og með þessu áttum við að fá að fara inn á flug­völl­inn,“ segir hann og Zeba tekur við.

„Okkur var sagt að halda út á völl þarna um nótt­ina og við lögðum af stað að heiman í bíl, ég og eig­in­maður minn, bróðir, systir, mágur, mamma og barnið okkar. En þegar við nálg­uð­ust flug­völl­inn sáum við að ekki var hægt að keyra þar nálægt því þarna voru þús­undir manna í kös.“

Þau þurftu því að fara úr bílnum og hélt Khairullah á syni þeirra, Arsalan. Verið var að skjóta úr byssum og seg­ist Zeba hafa ótt­ast um son sinn og að heyrn hans myndi skað­ast af hávað­anum.

„Það voru unga­börn sem dóu þarna. Sum vegna súr­efn­is­skorts og sum vegna þess að þau tróð­ust undir.“

Troðn­ing­ur­inn á flug­vell­inum var afar mik­ill og tók Khairullah eftir því þegar þau voru að reyna að kom­ast að hlið­inu þar sem þeim yrði hleypt í gegn að sonur þeirra hafði misst með­vit­und.

„Hann hreyfð­ist ekki og var orð­inn kaldur og opn­aði hvorki augun né munn­inn. Ég hélt hann væri dáinn. Ég fór með hann að húsi þarna í nágrenn­inu og fékk að fara þar inn. Ég setti hann niður og byrj­aði að hnoða brjóst­kass­ann og þá tók hann að anda á ný.“

Úr varð að hjónin skildu son sinn eftir í höndum móðir Zebu og systur.

„Við vorum hrædd um líf son­ar­ins, að hann myndi ekki lifa af troðn­ing­inn. Það voru unga­börn sem dóu þarna. Sum vegna súr­efn­is­skorts og sum vegna þess að þau tróð­ust undir. Sum barn­anna hafa orðið við­skila við for­eldra sína. Það eru of margar sorg­ar­sögur,“ segir Khairullah dapur í bragði.

Þessi hug­rökku hjón vinna nú hörðum höndum að því að koma syni sínum til lands­ins og segj­ast hafa tekið þessa ákvörðun, að koma til Íslands, fyrir hans fram­tíð. „Hann myndi ekki eiga neina fram­tíð í Af­gan­ist­an,“ seg­ir Zeba.

Ítarlegt við­tal við hjónin er í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðs­ins um helg­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi