Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðbjörn Guðbjörnsson snýr aftur í „meinsemdina í samfélaginu“

Guðbjörn Guðbjörnsson snýr aftur í „meinsemdina í samfélaginu“

Guðbjörn Guð­björns­son, yfir­toll­vörður, óperu­söngv­ari og fyrrum Sjálf­stæð­is­maður til­kynnir í stöðu­upp­færslu á Facebook í gær að hann sé aftur geng­inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eftir að hafa yfir­gefið flokk­inn með látum fyrir um tíu árum síðan, eins og hann orðar það sjálfur.

„Ég varð afhuga honum árið 2009“

Í við­tali við DV árið 2017 lýsir Guðbjörn hvernig hann hafi fengið nóg af Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Ég er svona miðju-hægri maður og karl­remba í eðli mínu, gat og get bara ekk­ert að því gert. Ég var mjög virkur í flokknum, var í öllum hugs­an­legum ráðum og nefndum og tald­ist til ESB-sinna flokks­ins. Árið 2004, þegar Davíð Oddsson ætl­aði í að keyra í gegn fjöl­miðla­frum­varpið sitt, þá komu fyrstu brest­irnir í sann­fær­ing­una hjá mér. Síðan kom hrunið og þá fengu margir nóg af flokknum. Ég varð afhuga honum árið 2009,“

Guðbjörn hélt áfram og sagð­ist hafa orðið fyrir ein­elti og ofsóknum í Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ótrú­lega áhrifa­mik­ill í kerf­inu. Hann á eig­in­lega lög­regl­una, dóm­stól­ana og 60-70% allra for­stöðu­manna stofn­ana.

Þetta kerfi allt saman – ég vil ekki segja að það sé spillt – heldur að það sé dofið og gegn­sýrt af karl­rembu. Það er líka mikil sam­trygg­ing í því.
Ég veit fyrir víst og af eigin reynslu að það er erfitt fyrir þá sem eru í kerf­inu að koma fram með gagn­rýni hvað þessa karl­rembu-afstöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins varðar, því kerfið hefnir sín á þeim og hótar þeim öllu illu. Hef meira sjálfur orðið fyrir slíku ein­elti og ofsóknum fyrir skoð­anir mínar og ummæli.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn eins og hann er í dag er í raun mein­semd í sam­fé­lag­inu!“

Þetta kerfi allt saman – ég vil ekki segja að það sé spillt – heldur að það sé dofið og gegn­sýrt af karl­rembu

Snýr aftur

Eineltið og ofsókn­irnar virð­ist Guðbjörn vera búinn að fyr­ir­gefa og snýr, að því er virð­ist, ódeigur aftur í flokk­inn.

„Það til­kynn­ist hér með form­lega og opin­ber­lega að ég er á ný geng­inn í Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir að hafa yfir­gefið þann ágæta flokk með látum fyrir um 10 síðan, en ég hafði þá verið liðs­maður X-D frá ung­lings­aldri eða í 35 ár.“

Guðbjörn seg­ist því aftur kjósa Sjálf­stæð­is­flokk­inn, eitt­hvað sem hann hefur ekki gert síðan 2009.

„Ég er því aftur kom­inn heim og hægt að slátra alikálf­inum og halda í Valhöll veislu,“ skrifar Guðbjörn.

Átti ekki heima í Viðreisn

Í stöðu­færsl­unni seg­ist Guðbjörn hafa komið að stofnun Við­reisnar, en síðar kom­ist að því að hann ætti ekki lengur heima í þeim flokki.

„Ég kom lít­il­lega að stofnun Við­reisnar á sínum tíma með frá­bæru og ynd­is­legu hug­sjóna­fólki úr Sjálf­stæð­is­flokknum. Und­an­farin 2-3 ár fór ég að taka eftir því að áherslur Við­reisnar höfðu breyst mjög mikið og mjög hratt. Framkoma Við­reisnar gagn­vart stofn­anda flokks­ins, Benedikt Jóhann­essyni, sýndi mér síðan end­an­lega að ég ætti ekki heima í þeim félags­skap og ákvað því að kveðja Viðreisn end­an­lega.“

Þá hafi hann velt því fyrir sér hvort hann gæti stutt Fram­sókn­ar­flokk­inn eða Mið­flokk­inn.
En segir hegðun Mið­flokks­ins gagn­vart Þor­steini Sæmunds­syni og Ólafi Ísleifs­syni hafa fælt sig frá þeim flokki.

Allir aðrir flokkar, sem eru enn vinstri­s­inn­aðri, koma ekki til greina. Lang­sam­lega „skásti“ kost­ur­inn er því óneit­an­lega gamli góði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með öllum sínum göllum en þó verður að segj­ast einnig með heil­mörgum kostum.

Hægri menn: Snúum saman bökum og hættum að láta smá­vægi­legan ágrein­ing leiða til þess að hægri menn séu í 2-3 stjórn­mála­flokkum og tryggjum örugg­lega X-D hægri rík­is­stjórn 2021-2025.

Hægri menn: Enga póli­tíska til­rauna­starf­semi vinstri manna á tímum óvissu og óró­leika heldur styrka og örugga stjórn X-D öllum lands­mönnum til góða.

Hægri menn: Þéttum rað­irnar og náum 35-40% atkvæða í næstu kosn­ingum, því þannig og aðeins þannig náum við að koma bar­áttu­málum okkar í höfn, skrifar Guðbjörn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi